Rúnar Páll samdi við Stjörnuna til þriggja ára Kolbeinn Tumi Daðason skrifar 23. október 2013 07:44 Rúnar Páll á bekknum hjá Stjörnunni. Mynd/Valli
Rúnar Páll Sigmundsson verður næsti þjálfari karlaliðs Stjörnunnar í knattspyrnu. Garðabæjarfélagið sendi frá sér tilkynningu þess efnis. Rúnar Páll var hægri hönd Loga Ólafssonar síðastliðið sumar. Logi var látinn fara á dögunum eftir allsérstakan aðdraganda. Þannig leituðu Stjörnumenn að nýjum þjálfara, og fóru ekki í felur með það, án þess að Loga hefði verið sagt upp störfum. Legið hefur fyrir í nokkra daga að Rúnar Páll myndi taki við liðinu eins og Fréttablaðið greindi frá en nú hefur það loks verið staðfest. Stjarnan hafnaði í þriðja sæti deildarinnar í sumar og komst í úrslitaleik bikarsins.Rúnar Páll Sigmundsson skrifaði í dag undir þriggja ára samning við knattspyrnudeild Stjörnunnar um þjálfun meistaraflokks karla hjá félaginu.Rúnar Páll er félaginu að góðu kunnur bæði sem leikmaður og þjálfari. Hann var aðstoðarþjálfari hjá félaginu á nýliðinni leiktíð og gerði einnig 2. flokk félagsins að Íslandsmeisturum. Rúnar Páll hefur áður þjálfað meistaraflokk m.a. hjá HK og Levanger í Noregi. Rúnar Páll er hæfileikaríkur og vel menntaður þjálfari og er það mikið ánægjuefni að fá hann til starfans.Það eru spennandi tímar framundan hjá Stjörnunni enda hefur góður árangur náðst á undanförnum árum. Markmiðið er að byggja enn frekar ofan á þann góða grunn sem er til staðar hjá félaginu. Félagið hefur metnað til að viðhalda sterkum leikmannahópi þannig að liðið festi sig í sessi sem eitt af toppliðunum á landinu. Þá er lögð áhersla á að vinna markvisst í að auka færni og getu yngri leikmanna þannig að sem flestir þeirra nái markmiðum sínum um að verða góðir knattspyrnumenn. Rúnar Páll mun, ásamt sínu teymi, sinna þjálfun liðsins auk þess að leiða faglega uppbyggingu félagsins til næstu ára í samstarfi við stjórn og aðra þjálfara hjá félaginu.
Pepsi Max-deild karla Mest lesið „Ég hef sjaldan, ef nokkurn tímann, kynnst öðru eins félagi og Víkingi“ Íslenski boltinn „Guðjohnsen er stórt nafn í fótboltanum“ Enski boltinn HSÍ syrgir einstakan stuðningsmann Handbolti Heimir ráðinn til ÍA og kostaði nokkrar milljónir Íslenski boltinn Liverpool slapp við Manchester City Enski boltinn 75 prósent látinna NFL-leikmanna með heilaskaða Sport Snýr aftur til keppni eftir saurslysið Sport Máttu ekki spyrja Haaland út í dóminn og hættu við viðtalið Enski boltinn „Eina liðið sem ég vildi ekki“ Enski boltinn Var klár í samkeppnina við Ingvar Íslenski boltinn Fleiri fréttir Heimir ráðinn til ÍA og kostaði nokkrar milljónir Var klár í samkeppnina við Ingvar Flauta Péturs á hilluna Engin uppalin spilaði með Fram „Ég hef sjaldan, ef nokkurn tímann, kynnst öðru eins félagi og Víkingi“ Heimir farinn frá Fylki Einn dyggasti sonur ÍBV semur við Val „Á meðan liðið er að vinna skiptir ekki máli hvort að ég skori eða einhver annar“ Ásgeir Páll kveður Keflavík og Ísland Arnar spenntur og „no komment“ frá Magnúsi „Neyði menn ekki til að vera hérna“ Aron Þórður hættur Draumurinn að þjálfa Blika Tímabilið vonbrigði en bjartir tímar framundan Omar Sowe kominn í KR-treyjuna „Úff, hvað er ég búinn að koma mér út í hérna?“ „Hún gæti orðið okkar langbesti leikmaður“ Breytingar boðaðar í Garðabæ Davíð Smári hættur hjá Njarðvík Rúnar Páll kynnti teymið sitt Ólafur Ingi hættur með Blika „Virkaði öfugt við það sem hann vonaðist til“ Harma ákvörðun Hattar Ingibjörg valin sú efnilegasta Uppaldir spiluðu eitt prósent mínútna hjá Val Vakinn með símtölum um miðja nótt: „Lenti í hakkavélinni“ Kveðja Kristin og Kristin Eiríkur nýr þjálfari Vals Treyja Gylfa fór á milljón KR á nú tvo yngstu markaskorara sögunnar Sjá meira