Mjólkurklám í fréttum Lukka Pálsdóttir skrifar 23. október 2013 10:30 Lukka Pálsdóttir.
Mjólkurklám í fréttum! Þessi fyrirsögn blasti við mér á facebooksíðu eiginmanns míns um helgina. Tilefnið var frétt (sem sjá má hér) sem hann hafði horft á í kvöldfréttatímanum. Þar var tilkynnt um undirritun samnings um 15 milljón króna styrk fræðslunefndar mjólkuriðnaðarins til Beinverndar.Beinþynning algengt vandamál á Íslandi Í fréttinni kom fram að á þriggja sekúndna fresti brotni bein af völdum beinþynningar á heimsvísu. Beinþynning er algengt vandamál á Íslandi og af hennar völdum brotna bein fjögurra Íslendinga á degi hverjum. Undirritun samningsins fór fram í fjósi og á meðan fréttaflutningnum stóð birtust okkur myndir af ýmsum mjólkurvörum eins og til dæmis súkkulaðimjólk og skál fullri af kexi. Af fréttinni mátti draga þá ályktun að aukin mjólkurneysla væri lausnin á beinþynningarvanda þjóðarinnar. „Mjólkurklám" sagði eiginmaður minn þar sem hann er vel lesinn og hefur séð fjöldan allan af rannsóknum sem benda til þess að neysla á kúamjólkurafurðum tengist AUKINNI tíðni beinþynningar og beinbrota en ekki öfugt.Sýruáhrifin valda úrkölkun Helstu kenningar um skaðleg áhrif mjólkurneyslu á bein eru annars vegar að sýruáhrif mjólkurpróteina og sykurs (á sérstaklega við um sykurbættar mjólkurvörur) valdi úrkölkun og hins vegar hafi mikil kalkneysla þau áhrif að beinmyndandi frumur (osteoblasts) verði fyrir auknu álagi og skipti sér hraðar og því þrjóti þær fyrr á ævinni hjá þeim sem neyta mikilla mjólkurvara. Mjólkurneysla getur því styrkt bein til skamms tíma en verið orsakavaldur beinþynningar seinna á ævinni vegna hraðari öldrunar beinmyndandi fruma. Þetta er svipað því sem gerist hjá húðmyndandi frumum í mikilli sól – þær eldast hraðar. Fjöldi rannsókna bendir einnig til þess að mikil neysla kúamjólkurafurða tengist aukinni hættu á krabbameinum og öðrum langvinnum sjúkdómum. Rannsóknir hafa bent til tengsla á milli mjólkurneyslu og krabbameina í æxlunarfærum s.s. brjósta-, legháls- og blöðruhálskrabbameina. Ein af ástæðunum er talin aukning IGF-1 (Insulin-like growth factor) við mjólkurneyslu en IGF-1 hefur hvetjandi áhrif á frumuskiptingar. Heilsusamleg áhrif kúamjólkurneyslu eru í öllu falli mjög umdeild og því hreinlega rangt eða ósiðlegt að ýta undir þá trú fólks að kúamjólk sé nauðsynleg tann- og beinheilsu Íslendinga.En hvernig styrkjum við tennur og bein? D-vítamín og K-vítamín eru ekki síður mikilvæg en kalk til að styrkja tennur og bein. Þungaberandi æfingar og tog vöðvafestinganna á beinin styrkja þau hvað best.Brokkólí og sólin betri kostir en mjólkin Styrktarþjálfun, brokkólí og sólarljós væru því betri beinstyrking en öll mjólk í heiminum. Sjálf drekk ég mjólk. Mér finnst hún alveg nauðsynleg í kaffibollann minn á morgnana og ostur er reglulega borðaður á mínu heimili ásamt AB-mjólk og kotasælu. Ég vel þessar afurðir vegna nautnarinnar við að borða þær en ekki til að styrkja tennur og bein. Það er mikilvægt að kalla hlutina réttum nöfnum. Mjólk er vissulega GÓÐ – en EKKI endilega fyrir tennur og bein.http://www.pcrm.org/health/health-topics/milk-consumption-and-prostate-cancer http://www.hsph.harvard.edu/nutritionsource/calcium-full-story/ https://www.pcrm.org/health/diets/vegdiets/health-concerns-about-dairy-products
Tengdar fréttir Lestu þetta ef þú vilt fallegri húð og meiri æskuljóma Omega 3 fitusýrur gera líkama og sál margvíslegt gagn því þær hjálpa til við að þynna blóð, stjórna eða hamla frumuvexti og vinna gegn einkennum þunglyndis. 15. október 2013 11:00 Borðum MAT - ekki pillur og duft Forðastu viðbættan sykur, hvítt hveiti og önnur einföld unnin kolvetni. 8. október 2013 15:45 Mest lesið Prjónarar missa sig yfir ponsjói Jökuls Tíska og hönnun „Á endanum snýst þetta um að giftast besta vini sínum“ Lífið Blönduðu áður óséðu efni frá aldamótum við upphitunaratriðið Lífið Frá Kalda bar í vín með Norah Jones, Jökli í Kaleo og Tony Parker Lífið Krakkatía vikunnar: Dorrit, fjallkonan og lítilmenni Lífið Svona er stemningin á Þingvöllum í dag Lífið Dóttir Obama í íslenskri hönnun Tíska og hönnun Nýir útvarpsþættir að norðan: „Ef eitthvað fer illa þá bara fer það illa“ Lífið Bein útsending frá Bergmáli á Þingvöllum Tónlist Fréttatía vikunnar: Kæra, Hafþór og Florencia Lífið Fleiri fréttir Frá Kalda bar í vín með Norah Jones, Jökli í Kaleo og Tony Parker „Á endanum snýst þetta um að giftast besta vini sínum“ Krakkatía vikunnar: Dorrit, fjallkonan og lítilmenni Blönduðu áður óséðu efni frá aldamótum við upphitunaratriðið Svona er stemningin á Þingvöllum í dag Fólk streymi inn í þjóðgarðinn í rjómablíðu Gull og gimsteinar leynast víða Nýir útvarpsþættir að norðan: „Ef eitthvað fer illa þá bara fer það illa“ Fréttatía vikunnar: Kæra, Hafþór og Florencia Anne Hathaway á von á sínu þriðja barni Bjórinn nefndur eftir lagi hljómsveitarinnar Kaleo Hilmir Snær og Vala í aðalhlutverkum í „öskugráum hjónaleik“ Búast við fimmtán gráðum og sól á Þingvöllum „Ég verð bara að gera það, hvort sem mér líkar betur eða verr“ Íhugaði meiðyrðamál vegna nafnlausra Facebook-færslna Leikkonan Margrét Helga Jóhannsdóttir er látin Hönnuðir nota blóm á mjög óvenjulegan hátt Opnar sig um sambandið við Harry Styles: „Mjög þung byrði og ekki eitthvað sem ég öfunda hann af“ Hvað eiga antisportistar að gera meðan HM stendur yfir? Barnastjarna úr Lilo&Stitch og The Ring látin Hvað veistu um... HM karla í fótbolta? Flúði Pútín og þurfti svo að glíma við MAST Sjötugar á TikTok og elska fíflaganginn Svaf til fóta eftir fyrstu sambandsslitin „Það reikna allir með að ég sé að nota þetta sem einhvern stökkpall“ Djömmuðu sem dauðasyndirnar sjö Hafþór Júlíus reynir að hafa uppi á manni „Okkur var nánast sópað út af dansgólfinu“ Tuttugu gellur á einu kvöldi Dorrit á trampólíni Sjá meira
Lestu þetta ef þú vilt fallegri húð og meiri æskuljóma Omega 3 fitusýrur gera líkama og sál margvíslegt gagn því þær hjálpa til við að þynna blóð, stjórna eða hamla frumuvexti og vinna gegn einkennum þunglyndis. 15. október 2013 11:00
Borðum MAT - ekki pillur og duft Forðastu viðbættan sykur, hvítt hveiti og önnur einföld unnin kolvetni. 8. október 2013 15:45