Logi: Þetta var allt saman hinn versti farsi Stefán Árni Pálsson skrifar 23. október 2013 13:00 Logi Ólafsson mynd / valli
Logi Ólafsson, fyrrum þjálfari Stjörnunnar, var í viðtali við þáttinn Reitaboltinn á vefsíðunni 433.is nú fyrir hádegi þar sem hann talar um viðskilnað sinn við Garðbæinga og starfshætti forráðamanna félagsins. ,,Niðurstaðan núna er einhverskonar magalending. Þeir telja sig vera komnir með Heimi Hallgrímsson og vilja fá hann í staðinn fyrir mig. Síðan er það bara ekki raunin og þá voru málin gagnvart mér kominn í þann farveg að það var ekki aftur snúið. Ég held að þetta hafi allt saman verið hinn versti farsi og atburðarás sem fór úr böndum," sagði Logi í þættinum.,,Ég kýs að setja þetta aftur fyrir mig og óska Rúnari til hamingju með starfið. Þegar öllu er á botninn hvolft þá held ég að Rúnar sé góður kostur fyrir umhverfið í Stjörnunni. Mér finnst Rúnar vera efnilegur þjálfari og drengur góður. Ég óska honum og liðinu alls hins besta. Ég hef fulla trú á að liðið geti gert góða hluti." Aðspurður hvort ákveðnir leikmenn hefðu viljað losna við Loga sem þjálfar Stjörnunnar eða hvort þreyta væri kominn í leikmannahópinn vildi Logi ekki kannast við það.,,Ég varð ekki var við það. Ef það er kominn þreyta í leikmannahóp sem skilar þessum árangri og það kemur í ljós hálfum mánuði eftir að mótið er búið þá átta ég mig ekki á slíkri aðferðafræði. Ég varð aldrei var við einhverja óánægju. Ég er samt ekki að halda því fram að allir hafi verið rosalega ánægðir með mig. Ég er ekki svo einfaldur og er með það mikla reynslu að ég veit að það er alltaf einhver óánægja."
Pepsi Max-deild karla Mest lesið „Ég er að fara aftur til Svíþjóðar“ Handbolti Besta sætið um Ómar: Væri búið að heyrast eitthvað ef þetta væri Aron eða Óli Handbolti Össur gagnrýndi fýlulegar og miskunnarlausar spurningar Loga Handbolti Sjáðu myndirnar: Beygðir en ekki brotnir á bóndadegi Handbolti „Börnin mín fengu mig til að hætta með reiðiköstin“ Fótbolti Náðu loksins Ólympíufaranum á lista FBI yfir hættulegustu glæpamennina Sport Skýrsla Vals: Ekki aftur Handbolti Vill umræðu um sniðgöngu HM vegna Trump Fótbolti Klikaði á Panenka-vítaspyrnu og meiddi sig við það Fótbolti Svíar voru fljótir að snúa við blaðinu í seinni hálfleik Handbolti Fleiri fréttir Oliver hættur í fótbolta vegna meiðsla Rugluðust á nafni nýja leikmannsins Sigurður Bjartur á leið til Spánar? Stjarnan selur Adolf Daða til FH Þór/KA fær þrjá leikmenn frá Stólunum á fimm leikmanna degi Fyrirliði FHL er mættur í Laugardalinn Telma eltir þjálfarann í Garðabæinn Hringdu dag og nótt til að klófesta Guðmund: „Konan var að verða geðveik á þeim“ Bryndís Arna er komin heim og samdi við Breiðablik Gummi Tóta orðinn leikmaður ÍA Þróttur skellti KR í Reykjavíkurmótinu KR fær tvo unga Ganverja Breytingar hjá Breiðabliki „Á eftir bolta kemur barn“ Viðar Örn leitaði sér aðstoðar við áfengis- og spilafíkn Trúin eykst á Suðurnesjum með komu McLaughlin Blikar farnir að fylla í skörðin Víkingur og Breiðablik mætast í fyrsta leik Bestu deildarinnar Rafael Máni eltir rætur sínar upp á Skaga Tveir ungir varnarmenn til FH Kristín Dís áfram í herbúðum Blika Miðbær Reykjavíkur er Íslandsmeistari Snýr aftur til Íslands og tekur við ÍBV Róbert með þrennu í sigri KR Fram lagði Leiknismenn Landsliðsbræður Palestínu sameinast í Keflavík Bikarhetjan til KA Þrótti berst mikill liðsstyrkur úr Keflavík Jón Guðni aðstoðar Ólaf Inga Blikarnir eru búnir að missa 34 mörk og 25 stoðsendingar Sjá meira