Michael Præst samdi við Stjörnuna til ársins 2015 Óskar Ófeigur Jónsson skrifar 23. október 2013 21:52 Michael Præst. Mynd/Valli
Michael Præst, hinn öflugi og reynslumikli miðjumaður Stjörnunnar, hefur gert nýjan tveggja ára samning við liðið en kappinn var að klára sitt fyrsta tímabil með Garðabæjarliðinu. Þetta kemur fram á heimasíðu Silfurskeiðarinnar, stuðningsmannasamtökum Stjörnuliðsins. „Þetta eru frábær tíðindi fyrir félagið enda átti Præst stóran þátt í góðum árangri síðastliðið sumar og er öflugur einstaklingur innan sem utan vallar," segir í fréttinni á heimasíðu Silfurskeiðarinnar sem má sjá alla hér. „Ég er mjög ánægður með að hafa ákveðið að vera áfram næstu tvö árin hjá Stjörnunni.Ég er sérstaklega ánægður með hversu fagmannlega félagið tók á mínum persónulegu málum. Ég varð faðir fyrir stuttu og félagið hefur náð að koma vel á móts við þær aðstæður sem við erum í og getum við því notið tímans á Íslandi," segir Michael Præst í fréttinni. Það var vitað af áhuga annarra íslenskra liða á þessum flotta leikmanni en Stjörnumenn halda sínum manni. „Præst er gríðarlega góður leikmaður, mikill leiðtogi og flottur karakter," sagði Rúnar Páll Sigmundsson, nýráðinn þjálfari Stjörnuliðsins í umræddri frétt. Michael Præst er 27 ára gamall og skoraði 1 mark í 19 leikjum með Stjörnunni í Pepsi-deildinni í sumar. Hann lék áður með FC Fyn og Kolding FC en byrjaði ferilinn hjá Vejle Boldklub. Hann átti mikinn þátt í því að Stjarnan náði sínum besta árangri frá upphafi og komst í fyrsta sinn í Evrópukeppni.
Pepsi Max-deild karla Mest lesið „Ég hef sjaldan, ef nokkurn tímann, kynnst öðru eins félagi og Víkingi“ Íslenski boltinn „Guðjohnsen er stórt nafn í fótboltanum“ Enski boltinn HSÍ syrgir einstakan stuðningsmann Handbolti Liverpool slapp við Manchester City Enski boltinn 75 prósent látinna NFL-leikmanna með heilaskaða Sport Snýr aftur til keppni eftir saurslysið Sport Máttu ekki spyrja Haaland út í dóminn og hættu við viðtalið Enski boltinn Engin uppalin spilaði með Fram Íslenski boltinn „Eina liðið sem ég vildi ekki“ Enski boltinn Var klár í samkeppnina við Ingvar Íslenski boltinn Fleiri fréttir Heimir ráðinn til ÍA og kostaði nokkrar milljónir Var klár í samkeppnina við Ingvar Flauta Péturs á hilluna Engin uppalin spilaði með Fram „Ég hef sjaldan, ef nokkurn tímann, kynnst öðru eins félagi og Víkingi“ Heimir farinn frá Fylki Einn dyggasti sonur ÍBV semur við Val „Á meðan liðið er að vinna skiptir ekki máli hvort að ég skori eða einhver annar“ Ásgeir Páll kveður Keflavík og Ísland Arnar spenntur og „no komment“ frá Magnúsi „Neyði menn ekki til að vera hérna“ Aron Þórður hættur Draumurinn að þjálfa Blika Tímabilið vonbrigði en bjartir tímar framundan Omar Sowe kominn í KR-treyjuna „Úff, hvað er ég búinn að koma mér út í hérna?“ „Hún gæti orðið okkar langbesti leikmaður“ Breytingar boðaðar í Garðabæ Davíð Smári hættur hjá Njarðvík Rúnar Páll kynnti teymið sitt Ólafur Ingi hættur með Blika „Virkaði öfugt við það sem hann vonaðist til“ Harma ákvörðun Hattar Ingibjörg valin sú efnilegasta Uppaldir spiluðu eitt prósent mínútna hjá Val Vakinn með símtölum um miðja nótt: „Lenti í hakkavélinni“ Kveðja Kristin og Kristin Eiríkur nýr þjálfari Vals Treyja Gylfa fór á milljón KR á nú tvo yngstu markaskorara sögunnar Sjá meira