Búið að auglýsa eftir verktökum Óli Kristján Ármannsson skrifar 1. mars 2013 06:00 Skæruliðar Í Goma í Austur-Kongó síðastliðinn sunnudag. Fréttablaðið/AP
Evrópusambandið (ESB) hefur óskað eftir því að Þróunarsamvinnustofnun Íslands leiði jarðhitaleit í Afríku á landamærum Búrúndí, Rúanda og Austur-Kongó. Er þetta gert í kjölfar ákvörðunar ESB um að fjármagna jarðhitaleitina. Leitin verður unnin í samstarfi Þróunarsamvinnustofnunar, EGL – Orkustofnunar ríkjanna þriggja og skrifstofu ESB í Rúanda. „Tæknileg ráðgjöf verður í höndum ÍSOR, íslenskra orkurannsókna," segir í tilkynningu Þróunarsamvinnustofnunar. Verkefnið er sagt komið á það stig að ESB og samstarfsaðilar hafi auglýst eftir verktökum til að lýsa yfir áhuga á að taka að sér verkið. „Næsta skref verður síðan að hópur þeirra sem lýsa yfir áhuga verður metinn og farið í samningaviðræður um verkið." Svæðið sem um ræðir hefur verið plagað af fátækt og margvíslegum átökum, en fram kemur í sameiginlegri tilkynningu ESB og EGL að ríkin þrjú hafi hins vegar sett þróun orkugeirans í forgang. Leggja á áherslu á samvinnu og nýtingu sameiginlegra auðlinda „með þeim hætti að allir njóti góðs af þeim efnahagslega ávinningi sem samtengdur svæðisbundinn raforkumarkaður hefur í för með sér".
Mest lesið Viðvaranir á viðvaranir ofan Veður Vikan lengdist og auglýsingahlé urðu tíðari Innlent Fjöldi hafi sagt upp og fleiri íhugi stöðu sína Innlent Styður Repúblikana með tugum milljarða Erlent Þingmaðurinn hefði mögulega ekki átt að taka Íbúfen Innlent Kröfur sem einstaklingum er ómögulegt að uppfylla Innlent Segja hálfa milljón hafa tekið þátt Erlent Fjörutíu ár fyrir morðið á Tupac Erlent Lögreglan biðlar til fólks að flýta ferðum eða bíða Innlent Heppin móðir á Suðurlandi vann 42 milljónir Innlent Fleiri fréttir Kröfur sem einstaklingum er ómögulegt að uppfylla Vikan lengdist og auglýsingahlé urðu tíðari Heppin móðir á Suðurlandi vann 42 milljónir Hvetur verkalýðshreyfinguna til samstöðu Skuldar ekkert Fór úr bílnum og hljóp undan lögreglu Enn versnar spáin með nýjum viðvörunum Bandero leitar skjóls í Reykjavík Air Atlanta vinnur áhættumat vegna árása Húta Baráttan um varaforsetana: Valdabrölt eða samsæriskenningar? Salmonella greindist í kryddi Kokku Frumvarp um Ríkisútvarp gagnrýnt harðlega í samráðsgátt Stjórnarandstaðan segir „forfallavírus“ ganga meðal ráðherra Vilja borga fyrir eftirlit með au pair Pawel tekur við af Sigmari sem þingflokksformaður Þingmaðurinn hefði mögulega ekki átt að taka Íbúfen Leita ökumanns sem ók á dreng á reiðhjóli „Þá tökum við auðvitað tillit til þess og hlustum“ Mögulegar rafmagnstruflanir í stórhríðinni Lægðin hefur alla burði til að verða söguleg Viðurkennir mistök við skipan Jafnréttissjóðs Fjöldi hafi sagt upp og fleiri íhugi stöðu sína „Maður undirbýr sig fyrir það versta“ Synjað um heimilisuppbót vegna sameiginlegrar þvottavélar og snyrtingar Vona að ágreiningur liti ekki þing ASÍ Háskólarnir verði betur tengdir með breyttri strætóleið Lögreglan biðlar til fólks að flýta ferðum eða bíða „Ég skil hvað hún á við, en þannig virkar rekstur ekki“ Ákveðið álag sem maður sé undir án þess að fatta það Undirmönnun hjúkrunarfræðinga tengist dánartíðni sjúklinga Sjá meira