Innlent

Sígarettuþjófur í átta mánaða fangelsi

Sígarettur. Athugið að myndin er úr safni.
Sígarettur. Athugið að myndin er úr safni.
Karlmaður var dæmdir í átta mánaða óskilorðsbundið fangelsi fyrir að brjótast inn í söluskála í Reykjanesbæ í september og stela þaðan 12 sígarettupökkum. Maðurinn hefur fimmtán sinnum verið gerð refsing fyrir brot á hegningarlögum síðan árið 1999.

Maðurinn hefur margsinnis verið dæmdur fyrir fíkniefna- og ölvunarakstur og fíkniefnalagabrot. Hann var síðast dæmdur í febrúar árið 2011 en með þessu broti rauf hann reynslulausn vegna þeirra refsingar.

Maðurinn var því dæmdur í átta mánaða óskilorsbundið fangelsi í Héraðsdómi Reykjaness í dag.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×