Innlent

Hjón létust í slysi í Þjórsárdal

Haukur Viðar Alfreðsson skrifar

Lögreglunni á Selfossi barst tilkynning í gærkvöldi um að hjón um sjötugt væru meðvitundarlaus í hjólhýsi í Þjórsárdal.

Sjúkrabílar og lögregla fóru þegar á vettvang en nærstaddir brutust inn í hjólhýsið og komu hjónunum út undir bert loft og hófu tilraunir til endurlífgunar. Hjónin voru bæði úrskurðuð látin á vettvangi.

Vísbendingar eru um að súrefnisskortur hafi orðið þeim að bana en málið er í rannsókn hjá lögreglunni á Selfossi og tæknideild lögreglunnar á höfuðborgarsvæðinu.

Ekki er unnt að birta nöfn hinna látnu að svo stöddu.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×