Hannes Þór verður í banni gegn FH 21. ágúst 2013 13:44 Hannes Þór Halldórsson.
Stjórn KSÍ hefur tekið ákvörðun í máli Hannesar Þórs Halldórssonar, markvarðar KR, en hann var í leikbanni í leiknum gegn Blikum en leikurinn var eins og kunnugt er flautaður af. Töldu einhverjir að Hannes væri þar með búinn að taka út leikbannið en ekki voru því allir sammála. Nú er búið að taka ákvörðun og Hannes verður því í leikbanni í stórleiknum gegn FH næstkomandi sunnudag. Einnig hefur verið ákveðið að hinn frestaði leikur Breiðabliks og KR fari fram þann 19. september næstkomandi. Hér að neðan má lesa frétt KSÍ um málið:Vegna leiks Breiðabliks og KR í Pepsi-deild karla sem flautaður var af sl. sunnudag hefur stjórn KSÍ tekið eftirfarandi ákvörðun til að eyða óvissu vegna leikbanns Hannesar Þórs Halldórssonar, leikmanns KR, en leikmaðurinn átti að taka út leikbann í umræddum leik:„Þar sem leikur Breiðabliks og KR 18. ágúst sl. telur ekki sem gildur leikur í Íslandsmótinu 2013 er ljóst að umræddur leikmaður hefur ekki tekið út leikbann, sem aga- og úrskurðarnefnd úrskurðaði um á fundi sínum þriðjudaginn 13. ágúst sl. og gildir leikbann hans því í næsta leik KR í Íslandsmótinu í samræmi við ákvæði reglugerðar KSÍ um aga- og úrskurðarmál. ”Ákvörðun stjórnar KSÍ byggir á heimild í 1. málsgrein 17. greinar laga KSÍ þar sem kveðið er á um starfssvið stjórnar KSÍ, en í 14. tölulið greinarinnar segir.: „....að skera úr ágreiningi eða taka ákvarðanir um málefni sem lög þessi eða/og reglugerðir KSÍ ná ekki yfir,...”Ákvörðun stjórnar KSÍ um að leikur Breiðabliks og KR hafi ekki gildi sem löglegur leikur í Íslandsmótinu 2013 byggir m. a. á agareglum FIFA og UEFA þar sem almenna reglan er sú að leikbann teljist ekki tekið út í leik sem ekki hefur verið lokið samkvæmt reglum íþróttarinnar.Niðurstaðan byggir því á þeirri grunnforsendu að leikbann verði aðeins tekið út í leikjum þar sem fullum leiktíma er náð skv. knattspyrnulögunum og viðkomandi leikur sé þannig eðlilegur hluti þess móts sem leikið er í. Leikur Breiðabliks og KR 18. ágúst sl., sem réttilega og af óviðráðanlegum ástæðum þurfti að flauta af, uppfyllir ekki þau skilyrði sem áskilin eru til að teljast hluti af Íslandsmótinu í knattspyrnu.Rétt er að taka fram að samkvæmt 64. grein agareglna UEFA fellur leikbann leikmanns eingöngu niður ef leik er hætt og hann ekki leikinn að nýju eða leikurinn er dæmdur öðru liðinu tapaður. Sami andi er í 19. grein agareglna FIFA en þær eru aga- og úrskurðarreglum KSÍ til fyllingar eftir því sem við á. Það er álit stjórnar KSÍ að seinni setning 4. málsgreinar 19. greinar agareglna FIFA eigi ekki við í þessu tilfelli þar sem leikurinn verður leikinn að fullu að nýju.Þess má svo geta að mótanefnd KSÍ hefur ákveðið að leikur Breiðabliks og KR í Pepsi-deild karla fari fram 19. september nk.
Pepsi Max-deild karla Mest lesið Leikmenn Hauka fastir í bænum og þjálfararnir á bekkinn Íslenski boltinn Nokkrir tæpir í Grindavík sem „tala skít“ Körfubolti Cantona spreytir sig á íslenskunni Fótbolti „Á Ítalíu væri Yamal að spila í Serie B“ Fótbolti Bernardo Silva yfirgefur City: „Allar góðar sögur enda“ Enski boltinn Goðsögn hleður Guðjón Val og Gummersbach lofi Handbolti „Finnst Valur ekki vera þannig klúbbur“ Íslenski boltinn Kraftaverkið í Barcelona: „Næst er ég undir öllu Haukaliðinu“ Handbolti Besta-spáin 2026: Stórar spurningar Íslenski boltinn Van Dijk segir að Liverpool hafi gefist upp gegn City Enski boltinn Fleiri fréttir Leikmenn Hauka fastir í bænum og þjálfararnir á bekkinn „Þetta eru alltaf risastórir leikir“ „Finnst Valur ekki vera þannig klúbbur“ Besta-spáin 2026: Stórar spurningar Samvinna Emils og Birnis gerði gæfumuninn Reykjavíkurslagur KR og Vals færður inn í Egilshöll „Vonandi keppa þeir af alvöru um það að komast í topp þrjá“ Besta-spáin 2026: Skref fyrir skref Sérfræðingarnir svara: Hverjir valda mestum vonbrigðum í sumar? Markaveislan í bikarnum: Nýir menn stimpla sig rækilega inn „Menn hafa alltaf eitthvað að segja“ Kristófer með tvennu er Blikar flugu áfram í bikarnum Djuric skoraði er KA komst áfram í bikarnum Fram - Víkingur 2-4 | Svöruðu seinu jöfnunarmarki ógnarsnöggt Fjögurra marka svar FH-inga sem eru komnir áfram Þróttarar slógu Eyjamenn út úr bikarnum „Finnst vanta framherja“ Besta-spáin 2026: Vindar breytinga Ægir Jarl mættur til Fram Bikarævintýri Davíðs Smára halda áfram Afturelding áfram í sextán liða úrslit bikarsins Uppgjörið: Breiðablik - FH 3-1 | Breiðablik meistarar meistaranna „Ofboðslega stórir skór að fylla“ Besta-spáin 2026: Vilja segja upp áskriftinni Sérfræðingarnir svara: Telja að ungu KR-ingarnir slái í gegn Skoruðu í Reykjavík og unnu í Hafnarfirði Meistarakeppni kvenna í fótbolta aflýst vegna veðurs Flautað af í Árbæ vegna snjókomu Breiðablik - FH | Bikar í boði í meistarakeppninni „Ég er spenntur fyrir Þórsurum“ Sjá meira