Körfubolti

Íslendingarnir frábærir í tapi Sundsvall

Jakob var í miklu stuði í kvöld en það dugði ekki til.
Jakob var í miklu stuði í kvöld en það dugði ekki til.
Íslendingaliðið Sundsvall Dragons er í vondum málum í úrslitarimmunni um sænska meistaratitilinn í körfubolta. Liðið tapaði í kvöld, 84-75, fyrir Södertalje Kings í fjórða leik liðanna um titilinn.

Södertalje leiðir því einvígið, 3-1, og getur tryggt sér meistaratitilinn með sigri í næsta leik.

Það þýðir lítið að kenna Íslendingunum í liði Sundsvall um tapið en þeir voru bestu menn liðsins í kvöld.

Jakob Örn Sigurðarson var stigahæstur í þeirra liði með 21 stig og hann gaf einnig 3 stoðsendingar. Hlynur Bæringsson var næststigahæstur með 17 stig. Hlynur tók einnig sjö fráköst.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×