Tónlistin fái sömu endurgreiðslu og bíó 24. maí 2013 06:00 þórir jóhannsson
Kveðið er á um það í stefnuyfirlýsingu ríkisstjórnar Framsóknarflokks og Sjálfstæðisflokks að tónlist njóti sömu hvetjandi ívilnana og kvikmyndagerð hefur gert hér á landi, það er, að hluti kostnaðar við tónlistarupptökur verði endurgreiddur. Þórir Jóhannsson, framkvæmdastjóri og annar eigenda Stúdíós Sýrlands, segir mjög jákvætt ef af því verður. „Við höfum horft til kvikmyndabransans í svolítinn tíma og haft þetta á bak við eyrað. Í desember lagði Framsóknarflokkurinn fram frumvarp sem lagði til 20% endurgreiðslu af tónlistarupptökum en það komst ekki að það kjörtímabilið. En það er ánægjulegt að sjá að það fylgir nú inn í stjórnarsáttmálann,“ segir Þórir. Hængur er þó á. „Í sjálfu sér virkar þetta vel í kvikmyndabransanum því þar skipta upphæðirnar tugum eða hundruðum milljóna í hverju verkefni en kostnaðurinn í kringum eina plötu er miklu minni, kannski bara ein til þrjár milljónir. Þá er mjög dýrt hlutfallslega að stofna fyrirtæki, sem kostar 150 þúsund krónur, í kringum hverja plötu til að fá endurgreiðslu,“ segir Þórir. Ef þetta verður ekki útfært öðruvísi komi endurgreiðslan ekki til með að nýtast stærstum hluta plötuútgáfu, aðeins stórum og dýrum útgáfum og erlendum aðilum. „Það skiptir mestu máli að endurgreiðsluferlið sé einfalt, gegnsætt og auðvelt að fara í gegnum svo fleiri geti nýtt sér endurgreiðslurnar og hægt verði að selja þetta erlendis.“ Þórir segir að erlendir tónlistarmenn hafi áhuga á að taka upp hér á landi enda séu íslensk hljóðver á heimsmælikvarða, þau standist allan samanburð með tæki og aðstöðu. „Eitt af því sem við höfum verið að vinna í að fá til landsins eru stór erlend kvikmyndaskor til að taka upp hér. Þau fara mikið til Austur-Evrópu, m.a. til Prag og Bratislava, og eins og staðan er núna erum við í svipuðum verðflokki og þau lönd. Tuttugu prósenta niðurgreiðsla getur þýtt mikla aukningu í upptökum fyrir stórar erlendar kvikmyndir, tölvuleiki, sjónvarpsþætti og annað slíkt,“ segir Þórir. - ig
Mest lesið Lögregluaðgerð á Laugavegi Innlent Sérsveitin bregst við „alvarlegu atviki“ á Kársnesi Innlent Meintur byssumaður 21 árs góðkunningi leyniþjónustunnar Innlent „Hamast í því að koma í veg fyrir að Miðflokkurinn komist að“ Innlent „Aulalegasti bófinn í bænum“ Innlent „Hvað hafa þau að fela?“ Innlent Ofurhljóðfrárri eldflaug skotið að Úkraínu Erlent Bandarískir sendimenn mælist til þess að Trump sé hunsaður Erlent Enn öðru flugi aflýst Innlent Skjálftahrina úti af Reykjanesi Innlent Fleiri fréttir Sérsveitin bregst við „alvarlegu atviki“ á Kársnesi „Hamast í því að koma í veg fyrir að Miðflokkurinn komist að“ „Hvað hafa þau að fela?“ Enn öðru flugi aflýst Lögregluaðgerð á Laugavegi Sprengisandur: Páll stýrir þéttpökkuðum þætti Meintur byssumaður 21 árs góðkunningi leyniþjónustunnar Skjálftahrina úti af Reykjanesi Maðurinn er fundinn „Aulalegasti bófinn í bænum“ Hefja formlegar viðræður og senda væna pillu í leiðinni D og B endurnýja heitin í Fjarðabyggð Tómas tjáir sig um dóminn Á sýklalyfjum í 120 daga: „Þetta er enginn brandari“ Gæti dregið til tíðinda á næstu dögum eða stundum Sérsveitarmenn flugu til Ísafjarðar vegna vopnaðs manns „Einhvers konar toppur á ísjakanum“ Tvö mál ráði úrslitum Icelandair aflýsir fimm brottförum í dag Almennur borgari veitti bílnum eftirför Óttast um framtíð dóttur sinnar þegar þau geta ekki lengur hjálpað Flúðu eftir að hafa ekið á gangandi vegfaranda Tulsi Gabbard lætur af embætti Allt veltur á því hvort handaband teljist handsal Námsbækur barnanna búnar til „löngu áður en mamma og pabbi fæddust“ „Þetta hjól er næstum alltaf tómt“ Íslendingur vann 336 milljónir króna Sektaður fyrir að vera á nagladekkjum Hildur vilji Einar í meirihluta hvernig sem fer Var í geðrofi þegar Vinafélag Íslands-Norður-Kóreu var stofnað Sjá meira