36 fjármálaráðgjafar útskrifaðir Jón Hákon Halldórsson skrifar 24. maí 2013 14:25 Útskrift úr námi til vottunar fjármálaráðgjafa.
36 starfsmenn fjármálafyrirtækja útskrifuðust í gær úr námi til vottunar fjármálaráðgjafa við hátíðlega athöfn sem haldin var í Háskólanum í Reykjavík. Nú hafa 73 starfsmenn í einstaklingsráðgjöf á fjármálamarkaði fengið slíka vottun en þetta er annað árið sem boðið er upp á slíkt nám og vottunarpróf. Að því standa atvinnuvega- og nýsköpunarráðuneytið, Háskólinn á Bifröst, Viðskiptafræðideild Háskóla Íslands, Viðskiptadeild Háskólans í Reykjavík, Samtök starfsmanna fjármálafyrirtækja og Samtök fjármálafyrirtækja. Markmið vottunarinnar er að samræma þær kröfur sem eru gerðar til fjármálaráðgjafa og tryggja að þeir búi yfir nauðsynlegri þekkingu og færni í starfi. Verkefnið á sér norska fyrirmynd en slíkt vottunarferli hefur verið að ryðja sér til rúms í nágrannalöndunum á undanförnum árum. Sigurður Atli Jónsson, bankastjóri MP banka, ávarpaði útskriftargesti fyrir hönd stjórnar SFF og sagði hann meðal annars að vottunarverkefnið væri ákaflega mikilvægt og skilaði sér í auknu trausti almennings á fjármálafyrirtækjum. Hann sagði enn fremur að vottunnarverkefnið væri gott dæmi um farsælt og ánægjulegt samstarf atvinnulífsins og háskólasamfélagsins sem væri að skila sér í því að fjármálaráðgjafar fengju viðurkennda vottun á færni sinni og þekkingu til að mæta sívaxandi kröfum viðskiptavina bankanna. Í ræðu sinni kom Sigurður Atli inn á þau tímamót sem ættu sér nú stað vegna stjórnarskipta og lýsti því yfir fyrir hönd SFF að samtökin væru reiðubúin að vinna með nýrri ríkisstjórn að öllum góðum málum.
Mest lesið Eldur kviknaði á Völlunum Innlent Ísraelsher viðurkennir að hafa skotið fimm ára stúlku Erlent Þessi voru tekjuhæsta sveitarstjórnarfólkið í fyrra Innlent Vaxtahækkunin geti gert illt verra Innlent „Við höfum ekki náð þeim árangri sem við hefðum viljað“ Innlent Með nefið í flugbrautinni eftir harkalega lendingu Innlent Sammála því að erfitt haust sé í vændum Innlent Skýrslutökunni lauk skyndilega: „Ég get ekki meira“ Innlent Lýsir áfalli vegna vinnubragða gamla meirihlutans Innlent Meintur Kársnesmorðingi handtekinn í Barcelona Innlent Fleiri fréttir Fleiri þingmenn segja nei en já og aðrir vilja ekki svara Eldur kviknaði á Völlunum Vaxtahækkunin geti gert illt verra Þessi voru tekjuhæsta sveitarstjórnarfólkið í fyrra Settu saman fyrsta íslenska fjölerfðamengið Sammála því að erfitt haust sé í vændum Aðstoða grunnskólabörn Reykjavíkur við heimanám Betur fór en á horfðist þegar flutningabíll valt „Við höfum ekki náð þeim árangri sem við hefðum viljað“ Samþykkti samninginn: „Lágmark að láta fjármagn fylgja“ Með nefið í flugbrautinni eftir harkalega lendingu Fjármálaráðherra og vinnumarkaðurinn bregðast við vaxtahækkun SVÞ og netáfengisverslanir skora á Alþingi Lýsir áfalli vegna vinnubragða gamla meirihlutans Gæsluvarðhald framlengt yfir meintum Kársnesmorðingjum Ránfugl gæddi sér á smáfugli í Vesturbænum Gæti séð fyrir sér að kjarasamningar haldi Hafi byrlað tólf ára fósturdóttur og nauðgað ítrekað Vilja banna frjáls ferðalög ísraelskra ferðamanna á Íslandi Meintur Kársnesmorðingi handtekinn í Barcelona Brotin úr jakanum geti valdið flóðbylgju Skýrslutökunni lauk skyndilega: „Ég get ekki meira“ „Jón Sigurðsson nefndi aldrei sjálfstæði“ Stýrivextir hækka og borgarísjaki í Djúpinu Stefán Einar og Diljá Mist mættu Helgu Völu og Baldri Maríjon aðstoðar þingmenn Sjálfstæðisflokksins Lítið jökulhlaup hafið í Múlakvísl Loka Hagaborg í það minnsta í tvö ár Ingunn játar að hluta í Reykholtsmálinu Flutningabíll á hliðinni í Ártúnsbrekku Sjá meira