Innlent

Slapp ómeiddur þegar dráttarbíll valt

Ökumaður slapp ómeiddur þegar stór dráttarbíll með yfirbyggðum flutningavagni valt út af þjóðveginum í Kollafirði á Ströndum, sunnan við Hólmavík, í gærkvöldi. Þar var hálka og hvassviðri.

Vegna veðurs og myrkurs var ákveðið að fresta björgunaraðgerðum þar til í dag, en flutningavagninn verður tæmdur áður en bíll og vagn verða hífðir upp á veginn.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×