Innlent

Björgunarskip á leið að fiskiskipi sem fékk í skrúfuna undan Grindavík

Björgunarskip Slysavarnafélagsins Landsbjargar, Oddur V. Gíslason frá Grindavík, er nú að sækja skip sem fékk í skrúfuna um 15 sjómílum suðaustur af Grindavík. Um er að ræða 160 tonna fiskiskip og eru sex manns um borð.

Ekki er talin mikil hætta á ferðum, sjólag er ágætt á svæðinu og skipið er ekki nærri landi. Gert er ráð fyrir að björgunarskipið komi á staðinn um klukkan 08:30 en um klukkustundar siglingu er að ræða.

Verður fiskiskipið þá tekið í tog og dregið til hafnar í Grindavík, að því er segir í tilkynningu frá Landsbjörgu.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×