Lífið

Það er sama hversu "ljótur" maður vaknar - það hverfur allt með þessu meiki

Ellý Ármanns skrifar
Elma Karen förðunarfræðingur upplýsir okkur hvaða snyrtivörur hún getur ekki verið án. Elma spáir mikið í kremum og snyrtivörum sökum starfsins en hún þekkir förðunartrixin á því leikur enginn vafi.

Mineralize Satinfinish spf 15 Frá MAC

"
Þegar árin fara að færast yfir mann þá fer húðin að missa þennan náttúrulega ljóma sem fylgir æskuárunum. Með því að púðra húðina þá undirstrikar maður í raun aldurinn. Ætli það sé ekki þess vegna sem ég get bara ekki fundið mér neitt annað meik en þetta létta steinefnameik með ljóma frá MAC. Það gefur ekki bara fallega áferð, ef maður notar bursta til að bera það á með, og ljóma heldur nærir það húðina því það er stútfullt af náttúrulegum steinefnum. Það er sama hversu "ljótur" maður vaknar - það hverfur allt með þessu meiki."

Prep+Prime Transparent Finishing Powder frá MAC

"Þar sem ég er mjög á móti því að maka á sig mikið af púðri þá vil ég benda á að púður og púður er ekki það sama. Þetta er eins og töfraduft, það er ekki sýnilegt á húðinni og gerir mann ekki "gamlann". Ég nota það yfir farðann eða alveg í lokin á förðuninni set ég það á T svæðið hjá mér. Það hálf mattar, tekir glans en skilur eftir ljómann, sest ekki í fínar línur eins og púður á það til með að gera og þá lítur maður út fyrir að vera 20 árum eldri en maður er, heldur er alveg ósýnilegt. Það sem mér finnst samt aðal málið er það það fær förðunina til að haldast miklu lengur. Þetta er eitt af leyndarmálunum sem svo fáir vita af."

Bumbuolían frá Jurtaapótekinu

"
Þar sem ég er barnshafandi þá spái ég mikið í húðinni á líkamanum og hvað er hægt að gera til að styrkja hana á þessum þrautartímum þar sem mikið álag er á húðinni. Það er til þónokkuð af olíum á markaðnum sem eru fyrir konur til að bera á bumbuna, það sem ég hef hinsvegar rekið mig á er að það er oft svo hræðilega sterk lykt af þeim. Það er ein olía sem ég hef fundið sem er með mildum ilmi og og góðum. Meira að segja finnst manninum mínum þetta mjög góð lykt. Þetta er bumbuolían frá Jurtaapótekinu á Laugaveginum. Hún er stútfull af næringarmiklum ilmkjarnaolíum sem græða og endurnæra húðina, Rósaberjaolíu sem stuðla að endurnýjun og er fyrirbyggjandi þegar kemur að slitum og örum. Bara æðisleg olía sem græðir sár og exem líka."

Anti Gravity Frá Kevin Murphy

"
Fyrir okkur sem erum með ótrúlega fíngert hár þá er oft mikill vandi að fá það til að líta út eins og það sé nokkuð líf í því yfir höfuð. Anti Gravity er olíulaust og alveg fullkomið fyrir fíngert hár til að fá í það smá líf. Ég hef prufað svo margt í hárið en það er ótrúlega erfitt að fá þennan gullna milliveg að fá líf í hárið en án þess að þyngja það. Ég set pínulítið af þessu efni í hárið, þá rótina aðalega eftir sturtu og blæs það svo. Ef ég ætla að setja eitthvað í hárið á mér sem venjulega rennur úr hárinu, til dæmis krullur eða liðir, á hálftíma, þá nota ég þetta efni og liðirnir haldast bara og haldast. Elska þetta efni."

Varasalvinn Frá Jurtaapótekinu

"Þessi varasalvi sem er einnig frá jurtaapótekinu er einn sá besti sem ég hef komist í. Ég verð eiginlega að segja af hverju líka því það eru svo margir að bera á varirnar eitthvað sem gerir hreinlega ekkert fyrir þær. Það er mikið um varasalva sem eru með innihaldsefnum sem eru bara skyndilausnir og þess vegna verður maður "háður þeim". Það eru efni sem virka sem filma en næra í raun ekki varirnar. Vaselín er líka þannig og er bara filma. Þessi varasalvi er fullur af næringu, gefa góða vörn og er bakteríudrepandi. Þetta er eini varasalvinn sem eykur ekki á þurkinn og hreinlega lagar hann. Ég nota hann mjög mikið bæði á mig börnin mín og í vinnunna. Hann er líka frábær á þurra olnboga."

Elma Karen.

Tengdar fréttir

Loksins fann ég rétta farðann

Jóhanna Þórarinsdóttir ÍAK einkaþjálfari og norðurlandameistari í bekkpressu leggur mikla áherslu á náttúrulegt útlit. Hún upplýsir okkur hvaða snyrtivörur hún notar.

Fann loksins augnskugga sem endist

Söng- og leikkonan Íris Kristinsdóttir sem eignaðist tvíburadrengi í apríl í fyrra hefur nóg að gera þegar kemur að uppeldinu. Íris sem er glæsileg kona upplýsir okkur hvaða húð- og snyrtivörur hún getur ekki verið án.

Notar maskara sem þykkir og lengir augnhárin

"Ég á í raun frekar lítið af snyrtivörum og nota þær hóflega. Ég er ákaflega vandlát á snyrtivörur og hef eytt drjúgum tíma, vangaveltum og aur í að finna þessar vörur sem ég mæli hér með," segir Steinunn Vala hönnuður...

Ómissandi snyrtivörur Ebbu

Ebba Guðný Guðmundsdóttir ástríðukokkur með meiru hefur í nægu að snúast þessa dagana en hún heldur úti fróðlegri matarsíðu PureEbba.com samhliða því að skrifa matreiðsluækur á sinn einstaka máta. Lífið spurði Ebbu hvaða fimm snyrtivörur hún getur ekki verið án.

Snyrtivörurnar sem Svala Björgvins notar

Söngkonan Svala Björgvins sem er búsett í Bandaríkjunum er stórglæsileg kona með áberandi fallega húð. Hún upplýsir okkur hvaða húð- og snyrtivörur hún getur ekki verið án.

Lífrænar vörur sem gera kraftaverk

"Það gerir mann svo miklu sætari á grámyglulegum morgnum. Þetta krem er ekki farði en það gerir mann útiteknari. Líflaust andlitið peppast upp og fær á sig örlítið brúnni blæ. Mæli eindregið með því."

Eftir allt sukkið í desember þarf maður næringu fyrir húðina

"Eftir allt sukkið í desember í konfekti, mat, drykk og svefninn á hvolfi þarf maður næringu fyrir húðina. Ég ákvað að taka smá treat á þetta núna til að fríska mig aðeins við á nýju ári," segir Eva Dögg eigandi Tiska.is...

Virkar eins og hrukkustraujárn

"Ég er auðvitað snyrtivörusjúk og með hrukkufóbíu á háu stigi og mér finnst hrikalega gaman að nota snyrtivörur," segir Margrét.

Ef ég fíla eitthvað þá kaupi ég það aftur

"Ég er nú ekki mikið fyrir mála mig mikið dags daglega en er alltaf með maskara frá Helen rúbinstein sem er algjör snillð að mínu mati hann gerir augnahárin þettari og lengri sem öllum konum langar að ná fram."

Snilld fyrir mömmur sem verða stundum þreyttar

Manúela Ósk Harðardóttir sem heldur meðal annars úti tískublogginu M-x-k.com upplýsir okkur um fimm vörur sem hún getur ekki verið án þegar kemur að húð- og hárumhirðu.

Notar krem stútfullt af andoxunarefnum

Ingunn Jónsdóttir vöruhönnuður og starfsmaður nýsköpunardeildar Matís er stórglæsileg kona sem hefur nóg að gera samhliða móðurhlutverkinu. Við forvitnuðumst hvaða snyrtivörur hún notar dags daglega.

Augnhárabrettir ómissandi til að skerpa augun

María Builien Jónsdóttir nemi og eigandi ICE import ehf upplýsti okkur um fimm snyrtivörur sem hún getur ekki verið án. Hún leggur áherslu á góð næringarrík krem á sama tíma og hún viðurkennir fúslega að hún verslar sér ódýra eye-liner í næstu matvörubúð.

Ég er áskrifandi að þessari snilld

"Allir ættu að eiga þetta bronzing gel. Ég er áskrifandi að þessari snilld. Mjög fallegur litur og eðlilegur. Sleppa að meika sig dags daglega og skella þessu á sig, maskara og glossi og taramm..."

Notar maskara sem þykkir hárin og þéttir

"Þegar ég var ung þá var ég sambrýnd með þykkar dökkar augabrýr. Þær hafa nú þynnst og ég hef líka verið að plokka þær í gegnum tíðina. Svo nú þarf ég að hjálpa þeim, bæði hressa þær við með lit og lyfta og til þess nota ég Benefits vörurnar "Brow Shaping kit" og "quick set brow gel" algerlega ómissandi fyrir mig."

Húðin verður frískari og mjúk sem silki

"Ég á endalaust mikið af augnskuggum og varalitum. Um leið og ég uppgötvaði snyrtivörur var í raun ekki aftur snúið," segir Marín Manda Magnúsdóttir...

Ég elska varaliti og nota þá daglega

María Björk Sigurpálsdóttir fyrirsæta og klæðskeranemi hugsar vel um húðina og hárið. Hún er óhrædd við að nota eldrauðan varalit og eyeliner enda fer það henni áberandi vel. María upplýsir okkur hvaða snyrtivörur hún getur ekki verið án.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×