Björgvin Páll slapp naumlega frá flóðunum: "Neðsta hæðin í húsinu mínu var komin undir 30 cm vatn“ Þórhildur Þorkelsdóttir skrifar 12. júní 2013 15:03 Á myndinni sést neðsta hæð hússins þar sem Björgvin Páll bjó í Magdeburg. „
Ástandið var orðið mjög slæmt þegar ég fór á laugardaginn og til dæmis var neðsta hæðin í húsinu þar sem ég bjó komin undir 30 cm vatn. Ég flutti út úr húsinu þremur dögum áður en flóðin hófust og slapp því persónulega mjög vel. Tveir aðrir leikmenn þurftu að rýma húsin sín og einn varð að lifa án rafmagns í tvo daga,“ segir handboltamaðurinn Björgvin Páll Gústavsson um ástandið í þýsku borginni Magdeburg. Hann hefur verið búsettur þar síðustu tvö ár og spilað með liðinu SC Magdeburg. Björgvin yfirgaf borgina síðastliðinn laugardag til að hitta íslenska landsliðið á öðrum stað í Þýskalandi. Hann segir borgina hafa lamast í flóðunum og að skaðinn sé gríðarlegur. Hætt var við síðasta leik liðsins á tímabilinu vegna ástandsins, en leikmenn ákváðu að kraftar þeirra yrðu betur nýttir í að hjálpa fólki á götum úti við að takmarka skaðann. „Það var ótrúlegt að sjá alla þessa sjálfboðaliða hlaupa milli staða til að hjálpa til og við vildum taka þátt í því. Allt liðið fór á eina tólf tíma vakt þar sem við fylltum sandpoka og bárum þá til að mynda varnarveggi við þá staði sem voru í mestri hættu. Vaktinni lauk kl 4:30 um nótt og daginn eftir þurfti ég að stinga af til að hitta landsliðið, en hinir voru áfram á vakt næstu tvo sólarhringa,“ segir Björgvin. Tuttugu og þrjú þúsund íbúar þurftu að yfirgefa heimili sín í Magdeburg eftir að stífla brast í ánni Elbu í síðustu viku. Björgvin segir vatnshæðina hafa farið 7,5 metra þegar mest var en að nú sé ástandið smám saman að komast í eðlilegt horf. Að minnsta kosti átján manns hafa farist í flóðunum í Mið-Evrópu og er talið að tjónið nemi milljörðum evra.
Mest lesið Hopp segir mál ökumanns í höndum lögreglu Innlent Reki fyrirtæki og séu nálægt því að missa allt frá sér Innlent Klausturbleikjan fæst ekki lengur Innlent Sími undir dýnu á skiptiborði tengdur innflutningi amfetamínbasa Innlent „Verulegur samdráttur og menn eru að segja upp mannskap“ Innlent „Skráningum rignir inn“ Innlent Kristján allt annað en sáttur við typpadansinn Innlent Ný hreyfing mynduð gegn aðild að ESB Innlent Dæmdur morðingi grunaður í Straumsvíkurmálinu Innlent Féll fram af svölum á hjúkrunaheimili og lést Innlent Fleiri fréttir Hopp segir mál ökumanns í höndum lögreglu Reki fyrirtæki og séu nálægt því að missa allt frá sér Klausturbleikjan fæst ekki lengur Staðfestir stækkun friðlands við Gróttu og Seltjörn Fjórtán ný félög flytja í Mannréttindahúsið Sími undir dýnu á skiptiborði tengdur innflutningi amfetamínbasa Lokuðu götu á Ólafsfirði vegna tilkynningar um skotvopn Fylgi Sjálfstæðisflokks ekki meira í sex ár „Verulegur samdráttur og menn eru að segja upp mannskap“ „Skráningum rignir inn“ Eftirspurn eftir kókaíni virðist aldrei hafa verið meiri Staðfesta fjölskyldutengsl nú með DNA-rannsókn Nýtt innviðafélag hlýtur nafnið Göng og brú Ný hreyfing mynduð gegn aðild að ESB Kristján allt annað en sáttur við typpadansinn Dæmdur morðingi grunaður í Straumsvíkurmálinu Rannsókn í gangi á lengd dauðastríðsins Kókaínhaldlagningar komnar í 200 kíló á hálfu ári Tveimur sagt upp á Bifröst Enn eitt fíkniefnametið slegið og yfirvöld hvött til að afturkalla hvalveiðileyfi Rennibrautinni lokað og ljósin skoðuð Hvalur háði hálftíma dauðastríð Hanna Katrín eigi að standa með starfsfólki Hvals – ekki gagnrýna það Gómuð af tollinum með tvo lítra af kókaíni innvortis Komst á bragð skemmdarverka í baráttunni við Kristján Loftsson Mokgræðir á rafmyntum Séra Þórir Stephensen er látinn Féll fram af svölum á hjúkrunaheimili og lést Lögregla rannsakar tvö innbrot í miðborginni Sér Blönduós eflast með byggðalínu og virkjunum Sjá meira