Kirkjan vill halda fimmtudagsfrídögum Magnús Þorlákur Lúðvíksson skrifar 18. maí 2013 08:00 Kristján Valur Ingólfsson
Íslensku þjóðkirkjunni líst illa á þær tillögur að frídagar í miðri viku verði færðir að helgum. Samtök atvinnulífsins (SA) vilja færa til slíka frídaga en kveðið er á um þá bæði í kjarasamningum og í lögum. Vinnandi Íslendingar hafa sennilega flestir orðið varir við nokkurn fjölda frídaga frá páskum og fram á sumar. Á það tímabil falla sérstöku frídagarnir annar í páskum, sumardagurinn fyrsti, 1. maí, uppstigningardagur og annar í hvítasunnu. Tveir þessara daga, sumardagurinn fyrsti og uppstigningardagur, eru alltaf á fimmtudegi og þá er 1. maí oft í miðri viku, síðast í ár þegar hann var á miðvikudegi. SA hafa lengi talað fyrir því að þeir frídagar sem eru í miðri viku verði færðir að helgi eða þá lagðir niður gegn fleiri orlofsdögum. Telja samtökin að með slíkri breytingu væri hægt að auka hagræði í rekstri fyrirtækja og bæta framleiðni og afköst. Hefur enda könnun meðal félagsmanna SA leitt í ljós að 80% forsvarsmanna fyrirtækja eru fylgjandi tilfærslu frídaga. Eins og áður sagði er annar fimmtudagsfrídaganna uppstigningardagur, sem er einn helsti hátíðisdagur kristinnar kirkju en þá er himnafarar Jesú minnst. Kristján Valur Ingólfsson, vígslubiskup í Skálholti, segir að kirkjan myndi mjög sjá eftir fríi á uppstigningardegi og hvetur til þess að staðinn sé vörður um hefðir. „Við mundum sakna þessa dags. Það er enginn vilji fyrir því af hálfu kirkjunnar að þessu verði breytt,“ segir Kristján Valur og heldur áfram: „Við munum í það minnsta alltaf halda upp á uppstigningardag á þessum degi. Ja, svo lengi sem við kunnum að telja en hann skal vera 40 dögum eftir páska. En hitt er annað mál að þetta er ekki á okkar valdi heldur löggjafans og ef hann vill fella uppstigningardag niður sem frídag þá þurfum við bara að beygja okkur fyrir því.“
Mest lesið Nærri því áttatíu borgarar liggja í valnum Erlent Ætla að streyma aftöku í beinni Erlent „Ég fagna því að þessu leikriti sé lokið“ Innlent Margrét Löf í sextán ára fangelsi en heldur föðurarfinum Innlent Vonar að Ísraelar hafni Netanjahú Erlent Máttu tæma lónið Innlent Kjaravaktin: Samkomulag í höfn á elleftu stundu Innlent Veitingamaður sektaður um tvö hundruð milljónir Innlent Draumur reiðhjólaviðgerðarmannsins rættist Innlent Fjármálaráðherra flautaður niður af sviði Innlent Fleiri fréttir Vilja auka viðveru NATO í norðri Máttu tæma lónið „Varpar skugga á skólasamfélagið í heild“ „Ég fagna því að þessu leikriti sé lokið“ Þetta eru aðgerðirnar sem fara á í Ók lyfjaður á gangandi vegfaranda Bein útsending: Forsætisráðherra boðar til blaðamannafundar Dagskrá aflýst í dag og óljóst hvernig ræðukeppnin fer fram Loftslagstilraun hefst í Hvalfirði á næstu dögum Margrét Löf í sextán ára fangelsi en heldur föðurarfinum Veitingamaður sektaður um tvö hundruð milljónir Ekki rétt sem Halla segir Hefja formlegar viðræður um myndun nýs meirihluta Íslensk nóbelsverðlaun og erfið staða framhaldsskólanna Vill fækka borgarfulltrúum um átta Lögreglan leitar upplýsinga um rispaða bíla Fjármálaráðherra flautaður niður af sviði Kristrún reyni að hafa milligöngu í deilunni Ekki eigi að refsa fólki fyrir að hafa stutt á milli barna Nemendur í Reykjavík koma best út úr PISA Kristrún og Þorgerður sækja ekki Hringborð norðurslóða Kjaravaktin: Samkomulag í höfn á elleftu stundu Draumur reiðhjólaviðgerðarmannsins rættist Áreitti tíu ára stúlku ítrekað í fjóra daga Kveikja og slökkva á ljósastaurum vegna bilunar Bein útsending: Fjármálaráðstefna sveitarfélaga 2026 Hafi ekki „fært sig eina litla tommu“ Ráðherra lét henda þeim út þegar rætt var um Heiðarfjall Kjaftshögg, blys og hrákur á VÍ - MR Samþykktu að slíta kjarasamningum Sjá meira