Segist engu kvíða 18. maí 2013 11:05 Eyþór segist frekar spenntur en kvíðinn Mynd/ Örlygur Smári
Eyþór Ingi Gunnlaugsson segist engu kvíða fyrir stóru stundina í kvöld en hann verður númer nítján í röðinni á sviðinu í Malmö í söngvakeppni evrópskra sjónvarpsstöðva. Stærsti sigurinn hafi verið að koma lagi sem sungið hafi verið á íslensku inn í úrslitakeppnina. Dagurinn hjá Eyþóri Inga er þéttskipaður æfingum og viðtölum í dag enda stóra stundin að nálgast. Tuttugu og sex lönd keppa um Eurovision titilinn í kvöld og verður Eyþór nítjándi flytjandinn á eftir Danmörku sem spáð hefur verið góðu gengi í keppninni. Við rétt náðum tali af Eyþóri áður en hann þurfti að rjúka annað en hann er brattur fyrir kvöldið og segist hlakka til að fá tækifæri til að flytja lagið Ég á líf aftur. „Það er náttúrulega búið að æfa þetta svo oft þannig að maður er bara nokkuð yfirvegaður. Síðan er svo gaman að koma fram á þessu sviði sem er mjög stórt og viðamikið þannig að það er miklu frekar spenningur en kvíði að koma fram. Okkur hefur líka verið vel tekið þegar við stígum á stokk þannig að manni líður eins og maður sé velkominn." En hvað hefur Eyþóri þótt erfiðast í öllu þessu Eurovision ferli? „Ég held að það sem búið er að vera erfiðast eru fjölmiðlafundirnir og pressan sem þeim fylgir. Það hefur tekið aðeins á og er alveg orkusuga þegar það hefur verið mikið." Stærsti sigurinn sé þó að hafa komist áfram með lag á íslensku. „Við erum bara rosalega stoltir af því að hafa farið í gegn með lag á íslensku. Ég held að það sé bara mjög flott."
Mest lesið Tilkynntur til barnaverndar eftir að hann deildi mynd af syni sínum með byssu Innlent Fleiri þingmenn segja nei en já og aðrir vilja ekki svara Innlent Gistiheimili Sverris í Grímsnesi innsigluð Innlent Eldur kviknaði við Stálhellu Innlent Rýnt í stöðuna í Úkraínu: Rekinn vegna viðvörunar um „samfélagskrísu“ í Rússlandi Erlent Ný meðferð gegn sortuæxlum lofar góðu Erlent Ísraelsher viðurkennir að hafa skotið fimm ára stúlku Erlent Þessi voru tekjuhæsta sveitarstjórnarfólkið í fyrra Innlent Ráðast í byltingarkenndar endurbætur í Kvosinni Innlent Vaxtahækkunin geti gert illt verra Innlent Fleiri fréttir Skóli hefst á ný í Grindavík og þingmenn efast um fullyrðingar Rússa Ókeypis strætó-skutlur á Menningarnótt og tæming frá Sólfarinu Gistiheimili Sverris í Grímsnesi innsigluð Tilkynntur til barnaverndar eftir að hann deildi mynd af syni sínum með byssu Ráðast í byltingarkenndar endurbætur í Kvosinni „Tengsl Íslands og Eistlands eiga sér sérstaka sögu“ Fleiri þingmenn segja nei en já og aðrir vilja ekki svara Eldur kviknaði við Stálhellu Vaxtahækkunin geti gert illt verra Þessi voru tekjuhæsta sveitarstjórnarfólkið í fyrra Settu saman fyrsta íslenska fjölerfðamengið Sammála því að erfitt haust sé í vændum Aðstoða grunnskólabörn Reykjavíkur við heimanám Betur fór en á horfðist þegar flutningabíll valt „Við höfum ekki náð þeim árangri sem við hefðum viljað“ Samþykkti samninginn: „Lágmark að láta fjármagn fylgja“ Með nefið í flugbrautinni eftir harkalega lendingu Fjármálaráðherra og vinnumarkaðurinn bregðast við vaxtahækkun SVÞ og netáfengisverslanir skora á Alþingi Lýsir áfalli vegna vinnubragða gamla meirihlutans Gæsluvarðhald framlengt yfir meintum Kársnesmorðingjum Ránfugl gæddi sér á smáfugli í Vesturbænum Gæti séð fyrir sér að kjarasamningar haldi Hafi byrlað tólf ára fósturdóttur og nauðgað ítrekað Vilja banna frjáls ferðalög ísraelskra ferðamanna á Íslandi Meintur Kársnesmorðingi handtekinn í Barcelona Brotin úr jakanum geti valdið flóðbylgju Skýrslutökunni lauk skyndilega: „Ég get ekki meira“ „Jón Sigurðsson nefndi aldrei sjálfstæði“ Stýrivextir hækka og borgarísjaki í Djúpinu Sjá meira