Bleikjueldi á Sogni Valur Grettisson skrifar 29. ágúst 2013 09:00 Fangar sjá um bleikjueldi á Sogni. Fréttablaðið/gva „
Við byrjuðum á þessu í fyrrasumar,“ segir Margrét Frímannsdóttir, forstöðumaður á Litla-Hrauni og Sogni, en í síðarnefnda fangelsinu er nú stundað bleikjueldi. Síðasta uppskera var nokkuð góð að sögn Margrétar, eða um 400 kíló. Fiskurinn var nýttur í mat handa föngum á Sogni og Litla-Hrauni. „Við keyptum bara seiði og hófum bleikjueldi í nærliggjandi læk,“ segir Margrét um tilurð verkefnisins en fangar hafa alfarið umsjón með eldinu. Þegar fangar sem hafa umsjón með verkefninu eru látnir lausir taka aðrir við keflinu. „Við erum með nýja bleikju, og svo er hún grafin líka,“ segir Margrét, en verkefnið er vel heppnað að hennar mati. Þá er stundaður fjölbreyttari búskapur í fangelsinu, meðal annars eru íslenskar hænur á Sogni. „Og ef við værum með útihús, værum við líka með sauðfé,“ bætir Margrét við. Þess má geta að 350 fjár eru á Kvíabryggju.Margrét Frímannsdóttir.Hún segir það kosta mikla vinnu að finna störf handa föngum. „Ég er alltaf að hringja og skoða hvað við getum gert,“ segir Margrét. Eins og greint var frá í Fréttablaðinu í gær snarminnkuðu atvinnutækifærin fyrir fanga eftir hrun og er enga vinnu að hafa fyrir fanga á höfuðborgarsvæðinu aðra en nám. Margrét hefur þó verið iðin við að skapa tækifæri fyrir fanga á Suðurlandi. Meðal annars gerði hún samning við Vegagerðina um vinnu. „Ég var nú bara að keyra austur þegar ég sá gular stikur liggja úti í vegkanti,“ segir Margrét, sem hafði samband við Vegagerðina og kom á samningum við fyrirtækið í kjölfarið. Og verkefnin eru fjölbreyttari. Átta fangar starfa við endurvinnslu í samstarfi við Íslenska gámafélagið. Þeir tína endurvinnanlega málma úr raftækjum. Svo starfa fangar einnig við að gera við og skanna inn gamlar myndir fyrir Landgræðslu ríkisins. „En stærstur hluti hjá mér stundar nám,“ segir Margrét stolt, en 51 fangi er í skóla. Alls eru 45 fangar í vinnu, en þess má geta að sumir eru bæði í vinnu og skóla. Alls eru 96 fangar á Litla-Hrauni og Sogni. Í júní síðastliðnum stunduðu sex háskólanám við þrjá háskóla hérlendis og var einn sexmenninganna auk þess skráður í einn áfanga við FSu á Litla-Hrauni. Þess má geta að nemendur fá greitt fyrir að sækja skóla, en verða þó að sýna fram á árangur og verkefnaskil ætli þeir að fá útborgað að sögn Margrétar.
Mest lesið Nærri því áttatíu borgarar liggja í valnum Erlent Ætla að streyma aftöku í beinni Erlent „Ég fagna því að þessu leikriti sé lokið“ Innlent Margrét Löf í sextán ára fangelsi en heldur föðurarfinum Innlent Draumur reiðhjólaviðgerðarmannsins rættist Innlent Vonar að Ísraelar hafni Netanjahú Erlent Máttu tæma lónið Innlent Veitingamaður sektaður um tvö hundruð milljónir Innlent Kjaravaktin: Samkomulag í höfn á elleftu stundu Innlent Konan sem var borin út er látin Erlent Fleiri fréttir Vilja auka viðveru NATO í norðri Máttu tæma lónið „Varpar skugga á skólasamfélagið í heild“ „Ég fagna því að þessu leikriti sé lokið“ Þetta eru aðgerðirnar sem fara á í Ók lyfjaður á gangandi vegfaranda Bein útsending: Forsætisráðherra boðar til blaðamannafundar Dagskrá aflýst í dag og óljóst hvernig ræðukeppnin fer fram Loftslagstilraun hefst í Hvalfirði á næstu dögum Margrét Löf í sextán ára fangelsi en heldur föðurarfinum Veitingamaður sektaður um tvö hundruð milljónir Ekki rétt sem Halla segir Hefja formlegar viðræður um myndun nýs meirihluta Íslensk nóbelsverðlaun og erfið staða framhaldsskólanna Vill fækka borgarfulltrúum um átta Lögreglan leitar upplýsinga um rispaða bíla Fjármálaráðherra flautaður niður af sviði Kristrún reyni að hafa milligöngu í deilunni Ekki eigi að refsa fólki fyrir að hafa stutt á milli barna Nemendur í Reykjavík koma best út úr PISA Kristrún og Þorgerður sækja ekki Hringborð norðurslóða Kjaravaktin: Samkomulag í höfn á elleftu stundu Draumur reiðhjólaviðgerðarmannsins rættist Áreitti tíu ára stúlku ítrekað í fjóra daga Kveikja og slökkva á ljósastaurum vegna bilunar Bein útsending: Fjármálaráðstefna sveitarfélaga 2026 Hafi ekki „fært sig eina litla tommu“ Ráðherra lét henda þeim út þegar rætt var um Heiðarfjall Kjaftshögg, blys og hrákur á VÍ - MR Samþykktu að slíta kjarasamningum Sjá meira