Stálu skartgripum að verðmæti á fjórðu milljón Haukur Viðar Alfreðsson skrifar 12. desember 2013 21:02 Lýst var eftir parinu í gær og mynd birt af manninum.
Erlenda parið sem var handtekið í Leifsstöð í gærkvöldi vegna gruns um þjófnað fór úr landi að loknum yfirheyrslum. Parið, 33 ára karlmaður og 18 ára kona, var grunað um að hafa stolið skartgripum úr verslun í miðborg Reykjavíkur í gær, en maðurinn og konan komu til landsins síðastliðinn mánudag. Tollgæslan á Keflavíkurflugvelli hafði þá afskipti af þeim, en ýmislegt þótti gefa til kynna að parið væri hingað komið til að hefja brotastarfsemi og gerðu tollverðir því lögreglunni á höfuðborgarsvæðinu viðvart. Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu hafði afskipti af þeim sama dag, og lék grunur á að þau hefðu stolið fatnaði og matvælum. Ekki tókst að færa sönnur á þjófnaðinn en þeim gert að fara af landi brott innan tveggja sólarhringa. Þau hafa engin tengsl við landið og óvíst um framfærslu þeirra hér á landi.Árvekni tollvarðar kom upp um parið Í kjölfar þjófnaðanna á skartgripunum, hvers verðmæti er á fjórðu milljón, var umfangsmikil leit gerð að þeim auk þess sem lýst var eftir þeim í fjölmiðlum. Þau voru svo handtekin af lögreglunni á Suðurnesjum í gærkvöldi, þá komin í Leifsstöð og á leið úr landi. Tollvörður sem hafði verið á mánudagsvaktinni, þegar höfð voru afskipti af parinu, þekkti það aftur þegar það birtist í flugstöðinni í gærkvöld. Hafði hann þegar samband við lögregluna á Suðurnesjum. Þýfið fannst á þeim við handtöku. Þau voru yfirheyrð í dag af lögreglunni á höfuðborgarsvæðinu og telst málið upplýst. Þau fóru af landi brott að yfirheyrslum loknum. Komi þau að nýju verður mál þeirra tekið upp aftur.
Tengdar fréttir Handtekin í Leifsstöð Erlenda parið, sem lögreglan lýsti eftir í gær vegna rannsóknar á þjófnaðarmáli, var handtekið í Leifsstöð í gærkvöldi, á leið úr landi. 12. desember 2013 07:33 Lögreglan leitar að karlmanni og ungri konu Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu leitar að Alin Mijloc, 33 ára gömlum karlmanni, í tengslum við mál sem er til rannsóknar hjá embættinu. Af sama tilefni leitar lögreglan að Ileönu Bibilicu 18 ára. 11. desember 2013 20:33 Mest lesið Framlengja samninga út næsta ár Innlent Ólíklegt að pestin berist til Íslands Innlent Komin til meðvitundar eftir misheppnaða aftöku Erlent Endurgreiðir ekki ríkinu fyrir auglýsingarnar umdeildu Erlent Margrét hyggst kæra til Mannréttindadómstóls Evrópu Innlent Greinir skýran vilja til meira samstarfs Innlent Ekkert leyndarmál að herinn sé önnum kafinn Innlent Segja boltann hjá stjórnvöldum Innlent Skora á borgina að bæta ekki við beygjuvasa Innlent Ný skýrsla Umhverfis- og orkustofnunar: Hverfandi líkur á að olía finnist á Drekasvæðinu Innlent Fleiri fréttir Framlengja samninga út næsta ár Margrét hyggst kæra til Mannréttindadómstóls Evrópu Segja boltann hjá stjórnvöldum Ólíklegt að pestin berist til Íslands Óþolinmæði að fylla Læknavaktina Ekkert leyndarmál að herinn sé önnum kafinn Greinir skýran vilja til meira samstarfs Leggja fram þingmál um að draga umsóknina til baka Engar leyniskyttur gættu Rubio Hafnar sælgætis- og fæðingarorlofsmálum sem rökum fyrir bókun 35 Bíði og bíði eftir Bjarna Leita manna sem grunaðir eru um hópárás Hafi þegar tryggt fjármögnun varamótoranna Guðmundur Fertram og Fanney opna nýsköpunarsetur Segir gjald fyrir túlkun eftir þrjú ár sanngjarna kröfu „Viljum ekki að það sé verið að leika sér að fullveldi Íslands“ Ný skýrsla Umhverfis- og orkustofnunar: Hverfandi líkur á að olía finnist á Drekasvæðinu Rubio farinn af landi brott Verði að gera fyrirvara við rannsókn um karlmennsku Leit að eftirmanni Harðar hefði hafist í haust eða vetur Bjarni segir ekkert hæft í að verið sé að úthýsa Aþenu Samtalið efnismeira en áður þó talsverð gjá sé á milli Einn í framboði til varaformanns enn sem komið er Ögurstund í kjaramálum og Marco Rubio í heimsókn Skora á borgina að bæta ekki við beygjuvasa Rubio: Ísland í miðjunni Þurfa að hætta við mótorakaup fáist ekki fé frá ríkinu Bein útsending: Marco Rubio heimsækir Ísland Tvær líkamsárásir á borði lögreglu Brotist inn í fjóra bíla í þremur hverfum Sjá meira
Handtekin í Leifsstöð Erlenda parið, sem lögreglan lýsti eftir í gær vegna rannsóknar á þjófnaðarmáli, var handtekið í Leifsstöð í gærkvöldi, á leið úr landi. 12. desember 2013 07:33
Lögreglan leitar að karlmanni og ungri konu Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu leitar að Alin Mijloc, 33 ára gömlum karlmanni, í tengslum við mál sem er til rannsóknar hjá embættinu. Af sama tilefni leitar lögreglan að Ileönu Bibilicu 18 ára. 11. desember 2013 20:33