Þorvaldur og Gunnlaugur skipta um starf Óskar Ófeigur Jónsson skrifar 10. nóvember 2013 22:06 Þorvaldur Örlygsson og Þórir Bergsson handsala samninginn. Mynd/Heimasíða HK
Þorvaldur Örlygsson, fyrrum þjálfari ÍA og Fram í Pepsi-deildinni síðasta sumar, var í kvöld ráðinn þjálfari 1. deildarliðs HK en þetta kemur fram á heimasíðu félagsins. Gunnlaugur Jónsson og Þorvaldur skipta því um starf en Gunnlaugur kom HK upp í 1. deildina í sumar og tók síðan við liði ÍA. Bæði liðin spila í 1. deildinni næsta sumar og því mætast þeir Gunnlaugur og Þorvaldur með nýju liðin sín. Þorvaldur skrifaði undir þriggja ára samning en auk þjálfunar meistaraflokks mun Þorvaldur koma að uppbyggingu elstu flokka HK. Þorvaldur er 47 ára gamall og er með UEFA-pro þjálfaragráðu frá Englandi. "Við erum mjög ánægðir með að fá Þorvald sem þjálfara hjá HK. Með þessari ráðningu erum við að sýna að HK ætlar af fullum krafti í 1.deildina næsta keppnistímabil. Þorvaldur er reynslumikill þjálfari með mikinn metnað," sagði Þórir Bergsson formaður meistaraflokksráðs karla hjá HK í viðtali við heimasíðu félagsins. HK verður fimmta félagið sem Þorvaldur þjálfar en hann var með KA frá 2000-2005, Fjarðabyggð frá 2006-2007 og þjálfaði síðan Fram frá 2008 til 2013. Þorvaldur tók síðan við Skagamönnum í júní þegar liðið var í erfiðri stöðu við botn úrvalsdeildarinnar. Hann hætti störfum á Akranesi í haust en Skagamenn féllu úr deildinni.
Pepsi Max-deild karla Mest lesið Albert svaraði eftir að hafa verið sakaður um hugleysi Fótbolti Salah ekki með Liverpool til Ítalíu Enski boltinn Óli Jó kallar ráðninguna á Jóa Kalla algjört bull Íslenski boltinn „Hortugasta klapp sem ég hef séð“ Körfubolti „Hann er með einhverjar Ibiza-myndir af Slot“ Enski boltinn Dæmd í fjögurra ára fangelsi Fótbolti „Ég myndi bróka hann inn í klefa“ Körfubolti Búist við að Salah verði hent úr hóp Enski boltinn Þriggja ára strákur setti heimsmet í skák Sport Langhlauparar í meiri hættu að fá krabbamein Sport Fleiri fréttir Óli Jó kallar ráðninguna á Jóa Kalla algjört bull „Ég elska þig Ísland, takk fyrir allt!“ Sextán ára með fernu fyrir meistara Víkings Valur dregur sig úr Bose-bikarnum „Sagði bara við hann: Djöfulsins fíflið þitt“ Yngir upp í allt of gamalli deild Þróttur keypti Adam Árna frá Grindavík Ástæðan fyrir því að Þorlákur hætti: „Ég var ekki hrifinn af þessu“ Þorlákur sagði upp störfum hjá ÍBV Þrjár ungar KR-konur leggja skóna á hilluna Murielle elti Óskar í Garðabæinn Segir dökk ský yfir íslensku knattspyrnuhreyfingunni Rúnar sækir gamlan félaga sinn inn í þjálfarateymið Fór frá því að mæta á landsliðsæfingu í það að vera fárveikur í öndunarvél Jasmín kom til að vinna titla og er farin frá Val Framlengir við Breiðablik og nálgast fimm hundruð leikina KSÍ skiptir um mótakerfi og smíðar nýjan vef Damir Muminovic til Grindavíkur Vestramenn sækja son sinn suður Einn fljótasti leikmaður Bestu deildarinnar orðinn Þróttari Aron Jó leystur undan samningi hjá Val Kynntu fyrst Loga Ólafs en svo Jóa Kalla sem á að koma FH á toppinn Atli kveður KR og flytur norður Theodór Elmar hættur hjá KR Hrannar Bogi inn eftir brotthvarf Caulkers Segir ónefndan aðila hafa unnið gegn sér hjá Breiðabliki Alex Freyr frá Fram í Njarðvík Víkingar fá ungan og spennandi kantmann Nýliðarnir fá níutíu leikja mann Jónatan og formaður hissa á tali um KR-löngun Sjá meira