Nauðgaði og beitti ástralska konu stórfelldu ofbeldi 6. nóvember 2013 16:54 mynd úr safni
Karlmaður á tuttugusta og fjórða aldursári var í Héraðsdómi Reykjavíkur í dag dæmdur í 5 ára fangelsi fyrir frelsissviptingu, sérstaklega hættulega líkamsárás og nauðgun. Maðurinn sem heitir Wojciech Marcin Sadowski var ákærður fyrir að hafa haldið ástralskri konu nauðugri í iðnaðarhúsnæði í 30 til 40 mínútur, beitt handa ofbeldi og ekki hleypt henni út þrátt fyrir að hún bæði hann um það. Þá var hann einnig ákærður fyrir að hafa, á meðan frelsissviptingin stóð, krafið hana um kynlíf, ítrekað slegið og sparkað í höfuð hennar og líkama, þröngvað henni til munnmaka og haldið áfram árás sinni eftir það. Konan sagðist hafa verið að skemmta sér með tveimur félögum sínum í miðborginni. Þau hafi farið á nokkra bari, en orðið viðskila við félaga sína á einum þeirra og farið ein út. Fljótlega hafi hún hitt mann sem bauð henni far, og hafi hún þegið það. „Hún kvaðst muna næst eftir sér þar sem hún var stödd á stað sem líktist vöruskemmu sem verið væri að gera upp. Þá hafi verið farið að birta af degi og kvaðst hún hafa áttað sig á því að kominn væri morgunn og hún yrði að flýta sér til að reyna að ná flugi sem hún átti bókað úr landi. Hún kvaðst hafa reynt að komast út úr húsinu, en dyrnar hefðu verið læstar. Maður hefði legið sofandi á gólfinu og hefði hún reynt að vekja hann. Hún kvaðst muna atvik eins og „skyndimyndir“. Eftir að maðurinn vaknaði hefði hann reynt að fá hana til að hafa við sig kynferðismök, en hún hefði neitað því og ýtt honum frá sér. Hún kvaðst hafa öskrað á hann að hún þyrfti að komast út. Þá hefði hann lamið hana og beðið hana að veita sér munnmök. Hún kvaðst hafa áttað sig á því að eina leiðin til að komast í burtu væri að eiga við hann munnmök og bíta hann. Það hefði hún gert og bitið eins fast og hún gat í getnaðarlim mannsins svo að hann hefði hlotið áverka af. Maðurinn hefði þá byrjað að kýla hana og sparka í hana. Hún kvaðst hafa komist að útidyrunum og reynt að komast út, en dyrnar hefðu verið læstar. Hún hefði sparkað í dyrnar og reynt að skilja eftir sig nógu mikil ummerki „ef eitthvað verra myndi gerast“. Taldi hún að mikið blóð og hár myndi vera á vettvangi, en einnig hefði hún reynt að snerta eins mikið og hún gat,“ segir í dómnum. Wojciech neitaði sök í málinu en dómarar í málinu telja að framburður konunnar sé trúverðugur. Hún gaf skýra og greinargóða lýsingu á atvikum við aðalmeðferð málsins, sem var í öllum meginatriðum í samræmi við frásögn hennar við skýrslutöku hjá lögreglu og við réttarlæknisfræðilega skoðun á Neyðarmóttöku í kjölfar atburðarins. Þá fær framburður hennar stoð í læknisfræðilegum gögnum og niðurstöðum tæknirannsóknar lögreglu, sem rakið hefur verið. Á hinn bóginn þykir framburður ákærða um háttalag brotaþola eftir að hún vakti hann um morguninn og atvik eftir það afar ótrúverðugur, auk þess að vera misvísandi, sem að framan er rakið. Þá er frásögn hans að verulegu leyti í ósamræmi við fyrirliggjandi gögn um áverka brotaþola og blóðferlagreiningu. Metur dómurinn framburð ákærða ótrúverðugan og er honum alfarið hafnað,“ segir í niðurstöðu dómara. Hann var dæmdur fyrir alla þá liði sem hann var ákærður fyrir og segir í dómnum að árás hans hafi verið mjög alvarleg, og til þess fallin að veita konunni miklum ótta og vanlíðan. Þá beitti hann stórfelldu ofbeldi. Hann þarf að greiða stúlkunni rúmlega 3 milljónir króna í miskabætur.
Mest lesið Fleiri bílar á vettvangi og hraðakstur til skoðunar Innlent Einn fluttur á slysadeild eftir eld í Holtagörðum Innlent „Ef ég hefði ekki farið upp á heilsugæslu þá hefði ég ekki fengið heilablóðfall“ Lífið SÁÁ missir forstjóra og yfirlækni Innlent Segir af og frá að hann hafi veitt stórfé í Brexit-baráttuna Innlent Öll hin látnu um og undir tvítugu Innlent „Engin orð ná utan um slíkan missi“ Innlent Ungum Pólverja best treyst til forystu í Langanesbyggð Innlent Svekktir og reiðir stjórnendur komu saman við Ráðhúsið Innlent Glæpaforingi dæmdur fyrir morðið á Tupac Erlent Fleiri fréttir Skúli Tómas ekki sloppinn eftir allt saman Byrjað að leggja Borgarlínu við Nauthólsveg Svekktir og reiðir stjórnendur komu saman við Ráðhúsið Komugjald lagt á: „Þetta er auðvitað ekkert annað en skattlagning“ SÁÁ missir forstjóra og yfirlækni Norðausturland fær loks langþráðan veg Tjón vegna skemmdarverka hlaupi á milljónum Rætt við vitni að banaslysinu og eldri borgarar ósáttir með skattahækkun Fleiri bílar á vettvangi og hraðakstur til skoðunar Rún frá Veitum til Þorgerðar Katrínar Einn fluttur á slysadeild eftir eld í Holtagörðum Hlaup af þessari stærðargráðu vel þekkt í Múlakvísl Kviknaði í jeppa á Reykjanesbraut Leggja til að Evrópusambandsumsóknin verði formlega dregin til baka Segir af og frá að hann hafi veitt stórfé í Brexit-baráttuna Sakborningur í Kársnesmáli sóttur til Spánar Sinntu hávaðatilkynningum í heimahúsum „Engin orð ná utan um slíkan missi“ Enn óljóst hvað verður um umsóknina Ungum Pólverja best treyst til forystu í Langanesbyggð Þurfi að hækka laun og fjölga frídögum Öll hin látnu um og undir tvítugu „Við segjum ekki bless, við segjum takk“ Síðasti kvöldfréttatími Sýnar „Ríkið á stóra sök á þessu“ Líka slæmar fréttir fyrir Rúv Á morgun mega hommar gefa blóð Tekjuáætlun verulega undir áætlun „Þetta mun auka enn á vald Ríkisútvarpsins“ Metfjöldi kvartana Sjá meira