Matur

Uppskrift að heimagerðum sýrðum rjóma

Soffía Gísladóttir er nýr matarbloggari á Vísi.
Soffía Gísladóttir er nýr matarbloggari á Vísi.

Soffía Gísladóttir heldur úti matarblogginu husidvidsjoinn.wordpress.com. Hér gefur hún lesendum Vísis uppskrift að heimalöguðum sýrðum rjóma og Labneh frá Mið-Austurlöndum.

Heimagerður sýrður rjómi og Labneh

Sýrður rjómi passar svo vel með mörgu, hann fer sérstaklega vel með mexíkóskum mat, ef þið prófið að gera Huevos Rancheros sem ég talaði um í síðustu færslu þá er heimagerður sýrður rjómi fullkominn með þeim rétti.  Svo er hann góður í súpur, frábær með reyktum lax, kemur í staðin fyrir mæjónes í sósum og svo má setja hann út í pottrétti og ofnrétti.

Ég nota sýrðan rjóma mjög mikið, nema í staðin fyrir að kaupa hann út í búð þá bý ég hann til sjálf og það er einfaldasta mál í heimi og maður sparar meira að segja smá aur.

Ég helli AB mjólk í gegnum kaffipoka eða grisju þannig að mysan í AB mjólkinni lekur í gegn. Því betur sem þið látið mysuna leka úr mjólkinni því mýkri afurð fáið þið og þykkari.

Yfirleitt tekur það ekki meir en klukkutíma að fá ágætan skammt af sýrðum rjóma.  Alls ekki henda mysunni því það má nýta hana í ýmislegt.  Mysan er meinholl og próteinrík.  Til dæmis er hægt að nota hana í brauðgerð í stað mjólkur eða vatns, setja í smoothie og svo þykir hún góð sem fóður fyrir skepnur.

Heimagerður sýrður rjómi.Mynd/Soffía

Sýrður rjómi

2 dl Ab mjólk

Kaffifilter eða grisja



Setjið kaffipokann ofan í glas eða annað ílát og fyllið það af AB mjólk.  Leyfið mysunni að leka í gegn í klukkustund eða lengur, eftir því hvaða áferð þið viljið fá á lokaafurðina. Ef þið eigið kaffitrekkt, þá virkar það mjög vel.

Sýrður rjómi með mið-austurlensku ívafi.Mynd/Soffía

Labneh

Í Mið-Austurlöndum er þessi aðferð þekkt sem Labneh og það má bragðbæta hann á ýmsa vegu. 

Ef þið viljið bjóða upp á Labneh með mið-austurlenskum mat þá væri hægt að setja sýrða rjómann í skál og dreypa góðri ólífuolíu ofan á og eitthvað gott krydd eins og smátt saxaða steinselju og þurrkaðar chili-flögur. 

Ég mæli með því að hafa það einfalt og leyfa góða bragðinu af jógúrtinni að njóta sín og fá svo kryddið úr réttunum sem borið er fram með Labneh.

Chili frá Frú Laugu.Mynd/Soffía

Ég keypti svo fallegan chili-pipar í Frú Laugu, ræktaður hér á Íslandi og góður styrkur í honum.  Ég tók mig til og keypti heilan helling og þurrkaði hann og marði hann svo í flögur. Nú á ég fulla krukku af  dásamlega "ferskum" chili.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×