Borðum MAT - ekki pillur og duft Lukka Pálsdóttir skrifar 8. október 2013 15:45 Lukka Pálsdóttir.
Stöðugt dynja á okkur nýjar upplýsingar um hvað við eigum að borða og forðast að borða. Þeir sem borða Paleo eru á móti grænmetisætum sem eru á móti LKL sem eru á móti hráfæði og svo mætti endalaust telja. Svo rífst fólk á kaffistofum og í fjölmiðlum landsins og hver færir rök fyrir að sinn fugl sé fegurri. Eitt virðast talsmenn mismunandi kúra sammála um og það er að ráðleggingar Landlæknisembættisins og Manneldisráðs séu úreltar og á villigötum. Ávinningurinn af þessum ágreiningi er að landsmenn verða ringlaðir í kollinum yfir öllum þessum misvísandi upplýsingum og gefast upp. Halda bara áfram að panta pizzu og borða snúða. En ef við hættum að rífast og horfum aðeins hlutlausara á málin þá sjáum við að það er rauður þráður sem allir þessir kúrar og einnig ráðleggingar Manneldisráðs eiga sameiginlega:1. Forðastu viðbættan sykur, hvítt hveiti og önnur einföld unnin kolvetni Þetta er algert lykilatriði til að ná árangri í baráttunni við aukakílóin. Árangursríkir matarkúrar byggja allflestir á þessu og flestir virðast sammála um að EINFÖLD kolvetni séu skaðvaldur. Það þýðir ekki að ÖLL kolvetni séu slæm heldur að þú eigir að vanda valið og velja flókin og næringarrík kolvetni.2. Borðaðu grænmeti og ávexti Við höfum svo mikinn urmul rannsókna um hollustu grænmetis að það væri alger fásinna að halda öðru fram en að grænmeti sé einn af lyklum almenns heilbrigðis og hreysti. Grænmeti er stútfullt af næringarsameindum sem eru verndandi fyrir heilsuna og forvörn gegn ýmsum langvinnum sjúkdómum s.s. krabbameinsvexti, hjarta- og æðaskemmdum ofl. ofl. Ávextir hafa líka verndandi áhrif og eru stútfullir af trefjum, steinefnum og vítamínum. Borðaðu ALLAN ávöxtinn, ekki pressa bara safann úr honum og henda hratinu. 3. Veldu óunninn mat frekar en unna vöruAlmenna reglan er að því meira sem matur er unninn því meira er af aukaefnum sem oft á tíðum eru skaðleg. Auk þess er meira af næringarefnum í óunninni fæðu. Dæmi er hveiti eða annað korn. Ef hýðið (klíðið) og kjarninn (kímið) er borðað þá færðu steinefni, andoxunarefni og trefjar en ef hvítt hveiti er borðað þar sem búið er að fjarlægja klíðið og kímið þá færðu einungis „tómar hitaeiningar” í formi kolvetna og prótína. Veldu því næringarríkari hitaeiningar í formi hreinnar fæðu. Ef þú fylgir þessu öðlastu brátt fyrsta flokks heilsu og verður besta útgáfan af sjálfri þér. Það er því ekkert að ráðleggingum manneldisráðs né flestum matarkúranna. Það sem er að er frekar það að fáir fara eftir leiðbeiningunum. Við erum stöðugt að leita að skyndilausninni. Reynum að taka það úr kúrunum sem hentar okkur og teljum okkur trú um að beikon með rjómasósu geti verið hollt fyrir okkur. Mundu bara að ef lausnin hljómar of vel til að vera sönn þá er hún líklega akkúrat það! Lausnin: Borðum MAT (ekki pillur og duft) í sem minnst unnu formi og vel af grænmeti.Njóttu góðrar heilsu og lifðu lífinu lifandi.
Mest lesið Áslaug Arna mætti með nýja kærastann Lífið Margrét og Ísak Ernir gengu í það heilaga Lífið „Hræðilegt að sjá ofbeldið sem ég beitti mig“ Lífið Myndaveisla af stuðinu hjá Áfram Ísland Lífið Þurfti að halda áfram að vinna þrátt fyrir hættulegt ástand á meðgöngu Lífið Dorrit missti aðgang á forrit Lífið Myndaveisla úr gleðinni hjá já-fólkinu Lífið Kjósendur á lokasprettinum: „Ég bara gleymdi þessu“ Lífið Krakkatía vikunnar: Skyr, knörr og rauðbrystingur Lífið Fréttatía vikunnar: Dolly, ESB og malaría Lífið Fleiri fréttir Áslaug Arna mætti með nýja kærastann Margrét og Ísak Ernir gengu í það heilaga „Hræðilegt að sjá ofbeldið sem ég beitti mig“ Krakkatía vikunnar: Skyr, knörr og rauðbrystingur Myndaveisla úr gleðinni hjá já-fólkinu Myndaveisla af stuðinu hjá Áfram Ísland Kjósendur á lokasprettinum: „Ég bara gleymdi þessu“ Dorrit missti aðgang á forrit Þurfti að halda áfram að vinna þrátt fyrir hættulegt ástand á meðgöngu Dolly skildi eftir sig lag fyrir hundrað ára afmælið Fréttatía vikunnar: Dolly, ESB og malaría Nadía Atla og Arnar Freyr hætt saman Þau sjá um Áramótaskaupið í ár Stórglæsilegt einbýlishús á Arnarnesi til sölu Afmælispartý Bylgjunnar í beinni Hvað kýs fræga fólkið? Bylgjan heiðraði goðsögnina Þorgeir Hvað veistu um… Dolly Parton? Jakob Smári útnefndur bæjarlistamaður Mosfellsbæjar Birta Líf og Gunnar Patrik hætt saman Doppudrottningin Yayoi Kusama er látin Neðanjarðarlestin endalaus uppspretta skrítinna atvika Camilla Rut og Valgeir hafa slitið trúlofuninni „Það færist skuggi yfir manneskju sem endar með því að hann rænir hana lífinu“ Alræmt hús á Túngötu til sölu Leitaði á náðir Dolly Parton á erfiðum tímum Lést í kjölfar krabbameinsgreiningar Sigraði hundahlaupið með hundinn í pössun Flaggar í hálfa stöng í viku til heiðurs Dolly Dolly Parton látin Sjá meira