Saka formann knattspyrnudeildar um að taka hluta af sölu leikmanna 16. september 2013 22:55 Úr leik FH og Vals í sumar. Mynd/Vilhelm
Jón Rúnar Halldórsson, formaður knattspyrnudeildar FH, og Lúðvík Arnarson, varaformaður sömu knattspyrnudeildar, saka kollega sinn hjá Val, Börk Edvardsson, um að taka hlut af sölu leikmanna Hlíðarendaliðsins. FH og Valur gerðu 3-3 jafntefli í viðureign liðanna í Kaplakrika í kvöld. Davíð Þór Viðarsson fékk að líta rauða spjaldið í leikslok en FH-ingar voru ósáttir með þann viðbótartíma sem bætt var við venjulegan leiktíma. Kvartaði Heimir Guðjónsson við dómara leiksins, Vilhjálm Alvar Þórarinsson, í leikslok af þeim sökum. Enn var hiti í mönnum þegar blaðamenn mættu undir stúkuna í Kaplakrika til þess að taka viðtöl við þjálfara og leikmenn. Hittu þeir fyrir fyrrnefnda Lúðvík, Jón Rúnar og Börk sem skiptust á skoðunum. Biðu blaðamenn eftir leikmönnum og á meðan fóru Lúðvík og Jón Rúnar mikinn. „Hann er eini formaðurinn sem tekur hlut (e. cut) af öllum sölum, það er hann. Vitið þið þetta ekki? Eruð þið ekki fréttamenn? Hvað eruð þið að gera?“ sagði Jón Rúnar og félagi hans hjá Fimleikafélaginu hélt áfram: „Þessi maður tekur peninga þegar leikmaður fer frá Val. Hann gerir það, komist að því og þefið það uppi. Talið við mennina sem vita það. Það segir enginn frá þessu,“ sagði Lúðvík ósáttur. Benedikt Bóas Hinriksson, blaðamaður á Mbl.is, náði myndbandi af atvikinu sem sjá má hér. Hann spurði hvað þeir hefðu fyrir sér í ásökunum sínum. Hvernig þeir gætu haldið slíku fram. „Ég er ekkert að halda því fram. Við bara vitum það,“ sagði Lúðvík. Ekki náðist í Börk við vinnslu fréttarinnar.
Pepsi Max-deild karla Mest lesið „Ég hef sjaldan, ef nokkurn tímann, kynnst öðru eins félagi og Víkingi“ Íslenski boltinn Heimir ráðinn til ÍA og kostaði nokkrar milljónir Íslenski boltinn „Guðjohnsen er stórt nafn í fótboltanum“ Enski boltinn Hallgrímur kveður KA Íslenski boltinn HSÍ syrgir einstakan stuðningsmann Handbolti Liverpool slapp við Manchester City Enski boltinn 75 prósent látinna NFL-leikmanna með heilaskaða Sport Víkingar láta Einar Guðna fara Íslenski boltinn Var klár í samkeppnina við Ingvar Íslenski boltinn „Eina liðið sem ég vildi ekki“ Enski boltinn Fleiri fréttir Víkingar láta Einar Guðna fara Hallgrímur kveður KA Heimir ráðinn til ÍA og kostaði nokkrar milljónir Var klár í samkeppnina við Ingvar Flauta Péturs á hilluna Engin uppalin spilaði með Fram „Ég hef sjaldan, ef nokkurn tímann, kynnst öðru eins félagi og Víkingi“ Heimir farinn frá Fylki Einn dyggasti sonur ÍBV semur við Val „Á meðan liðið er að vinna skiptir ekki máli hvort að ég skori eða einhver annar“ Ásgeir Páll kveður Keflavík og Ísland Arnar spenntur og „no komment“ frá Magnúsi „Neyði menn ekki til að vera hérna“ Aron Þórður hættur Draumurinn að þjálfa Blika Tímabilið vonbrigði en bjartir tímar framundan Omar Sowe kominn í KR-treyjuna „Úff, hvað er ég búinn að koma mér út í hérna?“ „Hún gæti orðið okkar langbesti leikmaður“ Breytingar boðaðar í Garðabæ Davíð Smári hættur hjá Njarðvík Rúnar Páll kynnti teymið sitt Ólafur Ingi hættur með Blika „Virkaði öfugt við það sem hann vonaðist til“ Harma ákvörðun Hattar Ingibjörg valin sú efnilegasta Uppaldir spiluðu eitt prósent mínútna hjá Val Vakinn með símtölum um miðja nótt: „Lenti í hakkavélinni“ Kveðja Kristin og Kristin Eiríkur nýr þjálfari Vals Sjá meira