Umfjöllun og viðtöl: ÍA - Víkingur Ó. 0-5 | Skagamenn féllu eftir stórtap Sigmar Sigfússon á Akranesi skrifar 18. september 2013 16:15 Það er mikið álag á Þorvaldi Örlygssyni, þjálfara ÍA.
Ólafsvíkur-Víkingar fóru illa með Skagamenn í Vesturlandsslag á Akranesi í 20. umferð Pepsi-deildar karla en Víkingar unnu leikinn 5-0 og sendu Skagamenn niður í 1. deild. Þetta var fyrsti sigur Víkingsliðsins síðan 22. júlí en eftir hann eru Ólafsvíkur-Víkingar aðeins einu stigi frá öruggu sæti þegar aðeins tvær umferðir eru eftir. Skagamenn eru nú tíu stigum á eftir Þór þegar aðeins níu stig eru eftir í pottinum og því endanlega ljóst að þeir spila í 1. deildinni næsta sumar. Víkingar gerðu út um leikinn með þremur spænskum mörkum í fyrri hálfeik en þau skoruðu þeir Antonio Mossi, Juanma Torres og Kiko Insa. Skagamenn misstu að auki Arnar Már Guðjónsson útaf með rautt spjald og leikurinn var í raun búinn í hálfleik. Alfreð Már Hjaltalín og Guðmundur Magnússon bættu við mörkum í seinni hálfleiknum og þessi stórsigur lagar talsvert markatölu Ólafsvíkinga sem gæti skipt sköpum um hvort þeir haldi sæti sínu eða ekki. Víkingar skoruðu jafnmörg mörk í kvöld og í sjö leikjum þar á undan. Víkingar komu einbeittir til leiks og sýndu flotta takta. Spánverjarnir hjá Víkingum spiluðu mjög vel í fyrri hálfleik og áttu heldur betur eftir að koma við sögu. Gestirnir frá Ólafsvík skoruðu fyrsta mark leiksins á 17. mínútu eftir að brotið hafði verið á Guðmundi Steini rétt við vítateigsbrúnina vinstramegin. Antonio Jose Mossi stillti boltanum upp og skoraði glæsilegt mark beint úr spyrnunni. Boltinn söng í markvinklinum hægramegin. Víkingar stjórnuðu leiknum frá fyrstu mínútu í fyrri hálfleik og skoruðu annað mark sitt tveimur mínútum eftir að fyrra leit dagsins ljós. Það var spænsk þema hjá Víkingum í dag og Juan Manuel Torres skoraði með góðu skoti fyrir framan markið eftir sendingu frá Guðmundi Steini. Ólafsvíkingar komnir með tveggja marka forystu eftir 19. mínútur og útlitið gott. Skagamaðurinn Arnar Már fékk sitt annað gulaspjald og þar með rautt á 34. mínútu. Dómarinn beitti hagnaðareglunni eftir að Guðmundur Steinn hélt áfram og náði skoti í varnarmann og framhjá. Vilhjálmur Alvar, dómari leiksins, skokkaði þá tilbaka og gaf Arnari Má spjaldið og Skagmenn manni færri. Víkingar voru ekki hættir að skora í fyrri hálfleik og náðu þriðja markinu inn á 43. mínútu. Spænska veislan hélt áfram og næstur í röðinni var Insha Bohigues Fransisco. Samuel Hernendez átti þá góða sendingu inn á teig og Insah náði fínu skoti sem Páll Gísli, markmaður ÍA, nær ekki að verja. Staðan í hálfleik var 0-3 fyrir Víkinga og Skagamenn einum færri. Seinni hálfleikur var ekki eins fjörugur og það var ekki fyrr en í lok hans að mörkin komu. Sem fyrr voru það Ólafsvíkingar sem sáu um þau. Fjórða mark þeirra kom á 75. mínútu og var einkar glæsilegt. Björn Pálsson átti þá drauma sendingu inn fyrir vörn ÍA sem Alfreð Hjaltalín elti. Alfreð var þá einn á auðum sjó á móti Páli í markinu, lék á hann með nokkrum snertingum og skoraði í autt markið. Frábærlega gert hjá honum. Það gekk hvorki né rak hjá Skagamönnum í leiknum og Víkingar héldu pressunni áfram. Guðmundur Magnússon kom inn á sem varamaður á 80. mínútu ásamt Eyþóri helga Birgissyni. Þeir voru ekki lengi að stimpla sig inn og átti báðir þátt í fimmta og síðasta marki Víkinga í leiknum. Það kom á 87. mínútu. Eyþór Helgi átti þá góða sendingu inn á teiginn og Guðmundur kláraði færið afar vel. Guðmundur tók hann í fyrsta og smellti honum í hornið fjær. Víkingar unnu afar sannfærandi sigur á Akranesi í dag og eiga enn möguleika að bjarga sér frá falli. Þorvaldur: Feita konan var búin að vera hita upp lengi„Það þurfa tvö lið að falla og við þurfum að bíta í það súra epli í ár. Feita konan var búin að vera hita upp lengi og hún fór í kjólin og söng í dag,“ sagði Þorvaldur Örlygsson, þjálfari ÍA, eftir leikinn þegar að ljóst að Skagamenn væru fallnir. „Frammistaðan í dag er eins og tímabilið í hnotskurn hjá okkur. Ekki nógu góð. Við byrjuðum ágætlega en svo fáum við mark á okkur og annað og þá sprakk þetta,“ sagði Þorvaldur og bætti við: „Mér fannst seinna gulaspjaldið mjög vafasamt og dómarinn ekki alveg í stöðu til þess að dæma það. Þetta var rangur dómur og það segir kannski allt um tímabilið hjá okkur,“ hvað um framhaldið hjá þér. Verður þú að þjálfa Skagaliðið á næsta ári í 1. deild? „Mér hefur líkað mjög vel hérna á Akranesi en úrslitin hafa ekki verið með okkur. En hvað varðar framhald og annað er ekki tímabært að ræða það hérna einni mínútu eftir leik. Þetta er hvorki staður né stund til að ræða það,“ „Ég vissi að þetta yrði erfitt þegar ég tók við. Það er alltaf tvísýnt hvað gerist þegar lið sogast niður í fallbaráttu. Menn geta alltaf hugsað afhverju, hversvegna og hvað hefði verið betra að gera. En það er gott að velta því fyrir sér þá er kannski hægt að koma í veg fyrir svona lagað ef það gerist aftur,“ sagði Þorvaldur Örlygsson að lokum. Ejub Purisevic: Fyrir okkur í Ólafsvík er ÍA stór klúbbur„Við sýndum góðan leik í dag en við höfum verið að spila marga svona leiki í sumar. Við höfum bara ekki náð að klára færin okkar. En í dag tókst það og við skorum fimm mörk,“ sagði Ejub Purisevic, þjálfari Víkinga, sáttur með sína menn eftir leikinn. „Fyrir okkur í Ólafsvík er ÍA stór klúbbur. Þegar ég fór til Ólafsvíkur fyrir tíu árum síðan var Víkingur að keppa í 4. deild en ÍA var bikarmeistrari. Þannig að þetta er mjög stórt afrek fyrir Víking að vinna Skagamenn,“ „Spánverjarnir voru að spila vel í dag. Þeir þurftu smá tíma til að aðlagast en þetta eru fínir strákar. Þeir æfa vel, vinna vel og ég er mjög ánægður með þá í dag,“ sagði Ejub þegar hann var spurður út í Spánverjana í liðinu. „Ég verð að vera heiðarlegur. Ég hefði viljað að Keflvík hefði unnið þann leik,“ sagði Ejub þegar við tilkynntum honum úrslitin fyrir Norðan.
Pepsi Max-deild karla Mest lesið Fékk rautt, tók liðið út af og gaf skít í vítakeppni Enski boltinn Tielemans biðst afsökunar Enski boltinn Leik lokið: Víkingur-Thun 3-2 | Víkingar fengu færin en sigur var ekki nóg Íslenski boltinn Myndir af Haaland á stórri kókaínsendingu Fótbolti Skoraði þrennu á 92 sekúndum og bíður eftir staðfestingu frá Guinness Fótbolti Fabrizio Romano að hætta Enski boltinn Draumur Bolvíkinga rætist gegn risunum í íslensku golfi Golf Fleiri styðja UEFA frekar en Infantino Fótbolti Ronaldo hughreystir Messi: „Stórt faðmlag til þín og þinna nánustu“ Fótbolti 86 kíló af marijúana fundust í liðsrútunni Fótbolti Fleiri fréttir Þrótturum mistókst að komast á toppinn Leik lokið: ÍBV-Stjarnan 3-2 | Eyjakonur upp í þriðja sætið Leik lokið: Víkingur-Thun 3-2 | Víkingar fengu færin en sigur var ekki nóg Uppgjörið: Nordsjælland – Valur 5-0 | Ekki léttir í lund í Kaupmannahöfn Elvis kominn í Bítlabæinn Stelpurnar tóku yfir Akureyri Hnéhlífarnar nauðsynlegar er teymi Víkings hleypur fyrir Ingvar Fögnuðu sigri og tilkynntu Úlfu Dís eftir leik Öll lið lenda í þessu Uppgjörið: Breiðablik - Grindavík/Njarðvík 1-0 | Katelyn Duong hetja Blika Dagný Brynjars snýr aftur í fótboltann Uppgjörið: Þróttur-Valur 3-2 | Fyrsti sigur Þróttar í 75 daga Uppgjörið: Fram-FH 4-6 | Ótrúleg markasúpa á Lambhagavelli Fékk atvinnutilboð erlendis og hættir með kvennalið Keflavíkur Þórsarar fá annan Víking norður Þróttarar fá Björgeyju Njálu aftur heim Keflvíkingar bæta við sig Króata Staðfestir brottför Gunnars: „Einn besti varnarmaður frá upphafi“ Ásdís Karen til FH Um ótrúlegt met KR: „Langskemmtilegustu leikirnir“ Martröðin í Kasakstan þjappaði Blikum saman Sjáðu öll 64 mörk KR í sumar Sveinn Aron spilar með Víkingi eins og afi sinn „Búið að gerast á frekar fyndinn hátt hjá mér síðustu ár“ Stúkumönnum fannst ósanngjarnt að reka Conteh út af Sjáðu KR bæta markametið gegn Fram Kennie: Við töpuðum leiknum á fyrstu 25 mínútunum „Ætlaði þetta að vera einn af þessum dögum?“ Ekkert gengur hjá Haukum eftir komu Söru Bjarkar Uppgjörið: Fram-KR 2-5 | KR-ingar fóru heim með annað sætið Sjá meira