Einstaka leikir í lokaumferðinni gætu farið fram á laugardeginum Kolbeinn Tumi Daðason skrifar 3. september 2013 13:54 KR-ingar eiga eftir að spila flesta leiki í deildinni. Mynd/Stefán
Sú staða gæti komið upp að félög í Pepsi-deild karla í knattspyrnu ættu þess kost að spila leiki sína í lokaumferðinni á laugardegi en ekki sunnudegi. Lokaumferðin átti upphaflega að fara fram laugardaginn 28. september. Í dag var greint frá því á heimasíðu KSÍ að gera hefði þurft viðamiklar breytingar á leikjatilhögun í síðustu umferðunum. Birkir Sveinsson, mótastjóri KSÍ, staðfesti í samtali við Fréttablaðið að ástæða þess að lokaumferðinni hefði verið frestað til sunnudags væri leikjaálag KR-inga. Vesturbæingar eiga eftir að spila sex leiki og fara þeir fram á átján dögum samkvæmt núgildandi leikjatilhögun. KR-ingar eiga leik gegn Víkingi Ólafsvík fimmtudaginn 12. september. Við taka leikir á sunnudegi, fimmtudegi og sunnudegi áður en kemur að leik gegn ÍA sem fresta þurfti síðastliðinn sunnudag vegna vallaraðstæðna á Skaganum. Sá leikur er nú tímasettur síðdegis fimmtudaginn 26. september. Í kjölfarið var lokaumferðinni frestað um einn dag, frá laugardeginum 28. september til sunnudagsins 29. september, svo ÍA og KR fengju tvo daga í hvíld.Ekki er útilokað að Mjölnismenn geti fagnað lokum tímabilsins með leikmönnum Þórs laugardaginn 28. september.Mynd/VilhelmLjóst er að leikmenn og stuðningsmenn félaga í efstu deild höfðu margir hugsað sér að skemmta sér á laugardagskvöldinu og fagna lokum tímabilsins. Sá möguleiki gæti verið fyrir hendi að sögn Birkis en þó ekki hjá Fram og Fylki sem mæta KR og ÍA á sunnudeginum. „Önnur félög gætu hugsanlega fært sig fram á laugardaginn svo framarlega sem úrslit í þeim leikjum hafi ekki áhrif á leikina sem ættu eftir að fara fram á sunnudeginum.“ Birkir segir að það muni ekki koma í ljós fyrr en að lokinni 21. umferðinni. Þá verði að vonast til að haustlægðirnar verði knattspyrnumönnum hliðhollar næstu vikur svo ekki þurfi að gera frekari breytingar. Til hliðsjónar má nefna að lokaumferð Pepsi-deildar kvenna fer fram mánudagskvöldið 16. september.
Pepsi Max-deild karla Mest lesið Aston Villa í mál við Jamie Carragher Enski boltinn „Á meðan er hann að sofa hjá Ólympíufara í sundi“ Sport „Á stuttum tíma eru mínir nánustu vinir farnir“ Íslenski boltinn Arteta harður við Dowman: „Þetta er ekki Disneyland“ Enski boltinn Styttan af Dwyane Wade fékk nýjan haus Körfubolti Uppgjörið: Grindavík-Njarðvík 104-103 | Pargo með sigurkörfuna Körfubolti „Þessi seinni hálfleikur var það besta sem við höfum gert hingað til” Körfubolti Réttlætanlegt að beita táragasi á norska stuðningsmannahópa Fótbolti „Lið sem enginn vill mæta núna“ Körfubolti Uppgjörið: KR - Sindri 107-102 | Seiglan sigraði Sindra Körfubolti Fleiri fréttir „Magnús er þjálfari Aftureldingar og verður það áfram“ Emil Atlason á leið í Fram Israel frá Fram „Á stuttum tíma eru mínir nánustu vinir farnir“ Víkingar láta Einar Guðna fara Hallgrímur kveður KA Heimir ráðinn til ÍA og kostaði nokkrar milljónir Var klár í samkeppnina við Ingvar Flauta Péturs á hilluna Engin uppalin spilaði með Fram „Ég hef sjaldan, ef nokkurn tímann, kynnst öðru eins félagi og Víkingi“ Heimir farinn frá Fylki Einn dyggasti sonur ÍBV semur við Val „Á meðan liðið er að vinna skiptir ekki máli hvort að ég skori eða einhver annar“ Ásgeir Páll kveður Keflavík og Ísland Arnar spenntur og „no komment“ frá Magnúsi „Neyði menn ekki til að vera hérna“ Aron Þórður hættur Draumurinn að þjálfa Blika Tímabilið vonbrigði en bjartir tímar framundan Omar Sowe kominn í KR-treyjuna „Úff, hvað er ég búinn að koma mér út í hérna?“ „Hún gæti orðið okkar langbesti leikmaður“ Breytingar boðaðar í Garðabæ Davíð Smári hættur hjá Njarðvík Rúnar Páll kynnti teymið sitt Ólafur Ingi hættur með Blika „Virkaði öfugt við það sem hann vonaðist til“ Harma ákvörðun Hattar Ingibjörg valin sú efnilegasta Sjá meira