Ótal brúðkaup á deginum 7-9-13: "Þetta er mjög spennandi" Hrund Þórsdóttir skrifar 7. september 2013 18:45 Sigurður Pálsson og Erla Þorsteinsdóttir giftu sig í Grafarvogskirkju í dag.
Ótal brúðhjón kusu daginn í dag til að ganga í hjónaband og víða þurftu prestar að vísa fólki frá. „Svo breyttu nú einhverjir áætlunum sínum; ein brúðhjónin ákváðu t.d. aðeins að bíða með þetta, ætla að kaupa hús og gifta sig síðar,“ segir Vigfús Þór Árnason, sóknarprestur í Grafarvogskirkju. Tölurnar sjö níu og þrettán eru sérstaklega magnaðar í þjóðtrúnni og þrír er talin einhver mesta happatala sem til er. Svö eru tölurnar í dagsetningunni þrjár, og þrisvar sinnum þrír eru níu, svo sú tala er enn magnaðri. „Sjö kemur held ég 300 sinnum fyrir í Biblíunni og svo er það þrenningin, faðir sonur og heilagur andi,“ segir Vigfús. Það stóð ýmislegt skemmtilegt til í brúðkaupum dagsins. „Í einni athöfninni kem ég hérna inn og þá koma nokkrir vinir syngjandi inn og ég og brúðguminn segjum, nei þetta á ekki að vera hér , þetta á að vera í veislunni,“ segir hann hlæjandi. Við fengum að fylgjast með æfingu fyrir brúðkaup þeirra Sigurðar Pálssonar og Erlu Þorsteinsdóttur í gær eins og sjá má í meðfylgjandi frétt. Af hverju völduð þið þennan dag? „Þetta er bara dagsetning sem gott er að muna,“ segir Sigurður. Þannig að þið eruð ekki hjátrúarfull? „Nei, ég læt það vera,“ svarar Erla. Þau vissu ekkert um dagskrána í eigin brúðkaupi. „Vinkona mín er veislustjóri og ég hef ekki fengið neinar upplýsingar um hvað verður gert í þessu brúðkaupi. Ég á bara að mæta,“ segir Erla hlæjandi. Þið hlakkið væntanlega til? „Já, þetta er mjög spennandi,“ segja þau að lokum. Við óskum þeim Sigurði og Erlu og öllum brúðhjónum dagsins auðvitað innilega til hamingju.
Mest lesið Telur Thomas Møller hafa fengið tækifæri til að eyða sönnunargögnum Innlent Sauð upp úr þegar Ragnar kallaði orð Ásgeirs óábyrg Innlent Fór í skólann og búið að farga dekkjastæðunni þegar heim var komið Innlent Kennarar boða tíðindi Innlent Tugmilljóna gjaldþrot félags fíkniefnasmyglara Innlent Hringdi inn þegar konan reyndist gift öðrum manni Innlent SA á leið í árshátíðarferð á meðan klukkan tifar í kjaradeilu Innlent Samþykktu að slíta kjarasamningum Innlent Nóg að spyrja þá sem þurfa að borga launin Innlent Leigubremsan „augljóslega mjög heimskuleg“ Innlent Fleiri fréttir Samþykktu að slíta kjarasamningum Niðurrif hafið á Laugasól „Vonbrigði að Icelandair fljúgi ekki lengur til Kulusuk“ Ljósastaurar bilaðir víða í Reykjavík Ræst út vegna logandi rafhlaupahjóls Serbar á Íslandi mótmæla: „Það er ósanngjarnt að taka af fólki réttinn til að kjósa“ Hringdi inn þegar konan reyndist gift öðrum manni Tugmilljóna gjaldþrot félags fíkniefnasmyglara „Við erum að gefa boltann upp“ Þétta samstarfið í útnorðri „Við erum tilbúin að skoða lengingu skólaársins“ Bein útsending: Blaðamannafundur Kristrúnar, Beinis og Jens Frederik SA á leið í árshátíðarferð á meðan klukkan tifar í kjaradeilu Sver af sér ábyrgð á rannsókn um karlmennsku Bílvelta á Vesturlandsvegi Sauð upp úr þegar Ragnar kallaði orð Ásgeirs óábyrg Verða að viðurkenna barn getið með staðgöngumæðrun Segir „gerviþak“ breyta litlu um „ryksugu“ Rúv Viðræður VR við SA á leið inn „blindgötu“ Tímarit eigi hvergi stað og fái enga styrki Segir fjölmiðlanefnd stjórnlausa og sektaóða Geti reynst erfitt að standa við verðlagsloforðin Hvetur flokka til að afla leyfa fyrir tónlist í pólitískum áróðri Rubio hafi staðfest varnarskuldbindingar gagnvart Íslandi Breyti myndböndum af börnum að borða og dansa í barnaníðsefni Kennarar boða tíðindi Nóg að spyrja þá sem þurfa að borga launin Sex atvinnulausir um hvert laust starf Bein útsending: Áskoranir á norðurslóðum Glapræði að hafna væntanlegri launahækkun Sjá meira