Innlent

Ráðið í tvær stöður lögreglumanna í Vík í Mýrdal

Haukur Viðar Alfreðsson skrifar
Hanna Birna Kristjánsdóttir innanríkisráðherra og Kjartan Þorkelsson lögreglustjóri á Hvolsvelli.
Hanna Birna Kristjánsdóttir innanríkisráðherra og Kjartan Þorkelsson lögreglustjóri á Hvolsvelli. mynd/innanríkisráðuneytið
Ráðið verður í tvær stöður lögreglumanna í Vík í Mýrdal. Þetta kemur fram í tilkynningu frá Innanríkisráðuneytinu.

Innanríkisráðherra átti nýlega fundi með nokkrum sveitarstjórnum og lögreglustjórum á Suðurlandi. Fram kom á þessum fundum að brýnt væri að hafa lögreglumenn staðsetta í Vík en næstu lögreglustöðvar eru á Kirkjubæjarklaustri og á Hvolsvelli.

Í framhaldi af fundum ráðherra var fundin lausn til að fjármagna tvær stöður og verða lögreglumenn því í Vík frá 1. október. Innanríkisráðuneytið og embætti lögreglustjórans á Hvolsvelli, sem Vík heyrir undir, standa sameiginlega undir kostnaði við stöðurnar.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×