Ólafur Darri heldur til Hollywood Jakob Bjarnar skrifar 30. ágúst 2013 14:18 Ólafur Darri verður í einu aðalhlutverka sjónvarpsþáttarins Line of Sight hjá kapalstöðinni AMC.
Vegur Ólafs Darra Ólafssonar leikara fer nú vaxandi vestan hafs og eftir hálfan mánuð heldur hann utan til Bandaríkjanna þar sem hann mun leika í sjónvarpsþætti sem bundnar eru vonir við. Ólafur Darri verður í forgrunni sjónvarpsþáttarins Line of Sight hjá kapalstöðinni AMC sem á meðal annars heiðurinn á þáttunum Breaking Bad og Mad Men. Stórlaxar á borð við Jonathan Demme, leikstjóri Silence of the Lambs, er einn þeirra sem kemur að gerð þáttanna sem fjalla um Lewis Bernt, sem David Morrissey leikur, sem lifir af dularfullt flugslys. Hann leggur í kjölfarið upp í rannsóknarleiðangur þar sem hann reynir að komast að tildrögum slyssins og þar kemur að Ólafi Darra sem leikur Edgar, ósveigjanlegum og voldugum manni sem virðist vita ýmislegt um slysið. Fullyrða má að þarna er Ólafur Darri kominn í hóp þeirra íslenskra leikara sem mestum frama hafa náð á erlendri grundu. Ólafur Darri er sjálfur hógværðin uppmáluð þegar hann er spurður hvort þarna sé ekki um risastökk að ræða á framabrautinni? „Þetta er náttúrlega bara... maður má ekki gleyma því, þetta er náttúrlega bara „pilot“ eða prufuþáttur. Allir sem koma nálægt þessu vona náttúrlega að hann fari í framleiðslu og gerðar verði tíu þáttaraðir. Maður byrjar á einum þætti og má kannski ekki fara framúr sér. En, þetta verður svakalega gaman að gera. Flottur leikstjóri og flottur höfundur; sá sami og skrifaði 2 Guns fyrir Balta.“ Ólafur Darri vill lítið tjá sig um hlutverkið sjálft. „Ahhh, nú vil ég ekkert segja um það. Eða, ég get sagt að það sé veigamikið að því leyti að mér er treyst til að vera með í að minnsta kosti meira en helmingi þáttanna sem framleiddir verða á þessu ári ... til að byrja með," segir Ólafur Darri. Hann gefur lítið fyrir að nú sé hann kominn á þann stað að teljast rík "filmstjarna" en hugsanlega getur þetta orðið til að grynnka á skuldum sem safnast hafa upp við það að vera fátækur listamaður á Íslandi árum saman. Annað á döfinni hjá Ólafi Darra er að leika í Hamlet í Borgarleikhúsinu og Óförum, sjónvarpsþáttum sem Baltasar Kormákur og Sigurjón Kjartansson eru að skrifa um þessar mundir.
Mest lesið Nærri því áttatíu borgarar liggja í valnum Erlent Ætla að streyma aftöku í beinni Erlent „Ég fagna því að þessu leikriti sé lokið“ Innlent Margrét Löf í sextán ára fangelsi en heldur föðurarfinum Innlent Draumur reiðhjólaviðgerðarmannsins rættist Innlent Vonar að Ísraelar hafni Netanjahú Erlent Máttu tæma lónið Innlent Veitingamaður sektaður um tvö hundruð milljónir Innlent Kjaravaktin: Samkomulag í höfn á elleftu stundu Innlent Konan sem var borin út er látin Erlent Fleiri fréttir Vilja auka viðveru NATO í norðri Máttu tæma lónið „Varpar skugga á skólasamfélagið í heild“ „Ég fagna því að þessu leikriti sé lokið“ Þetta eru aðgerðirnar sem fara á í Ók lyfjaður á gangandi vegfaranda Bein útsending: Forsætisráðherra boðar til blaðamannafundar Dagskrá aflýst í dag og óljóst hvernig ræðukeppnin fer fram Loftslagstilraun hefst í Hvalfirði á næstu dögum Margrét Löf í sextán ára fangelsi en heldur föðurarfinum Veitingamaður sektaður um tvö hundruð milljónir Ekki rétt sem Halla segir Hefja formlegar viðræður um myndun nýs meirihluta Íslensk nóbelsverðlaun og erfið staða framhaldsskólanna Vill fækka borgarfulltrúum um átta Lögreglan leitar upplýsinga um rispaða bíla Fjármálaráðherra flautaður niður af sviði Kristrún reyni að hafa milligöngu í deilunni Ekki eigi að refsa fólki fyrir að hafa stutt á milli barna Nemendur í Reykjavík koma best út úr PISA Kristrún og Þorgerður sækja ekki Hringborð norðurslóða Kjaravaktin: Samkomulag í höfn á elleftu stundu Draumur reiðhjólaviðgerðarmannsins rættist Áreitti tíu ára stúlku ítrekað í fjóra daga Kveikja og slökkva á ljósastaurum vegna bilunar Bein útsending: Fjármálaráðstefna sveitarfélaga 2026 Hafi ekki „fært sig eina litla tommu“ Ráðherra lét henda þeim út þegar rætt var um Heiðarfjall Kjaftshögg, blys og hrákur á VÍ - MR Samþykktu að slíta kjarasamningum Sjá meira