Titillinn tryggður í kvöld? Kolbeinn Tumi Daðason skrifar 28. ágúst 2013 09:15 Anna Björk Kristjánsdóttir og Gunnhildur Yrsa Jónsdóttir með Íslandsmeistaratitilinn sem vannst sumarið 2011. Mynd/Stefán
Stjarnan í Garðabæ gæti orðið Íslandsmeistari kvenna í knattspyrnu í annað skiptið á þremur árum falli úrslit þeim í hag í 14. umferð Pepsi-deildar kvenna í kvöld. Stjarnan tekur á móti Val í stórleik umferðarinnar sem sýndur er beint á Stöð 2 Sport 3 og Vísi. Stjarnan hefur ellefu stiga forskot á Breiðablik í öðru sæti deildarinnar. Nýkrýndir bikarmeistarar úr Kópavoginum taka á móti Aftureldingu í kvöld. Vinni Stjarnan sigur á Val og tapi Breiðablik stigum gegn Aftureldingu verður Garðabæjarliðið Íslandsmeistari þó enn séu fjórar umferðir eftir af mótinu. Aðeins tólf stig verða eftir í pottinum að loknum leikjum kvöldsins og því ómögulegt að brúa þrettán eða fjórtán stiga mun. Leikur Breiðabliks og Aftureldingar hefst klukkan 18 ásamt þremur öðrum leikjum. Viðureign Stjörnunnar og Vals hefst ekki fyrr en klukkan 19.15. Í hálfleik í Garðabænum verður leiknum í Kópavogi lokið. Þá munu bláklæddar Stjörnustelpur vita hvort það sé í þeirra höndum að tryggja sér titilinn í kvöld. Fari svo að Breiðablik vinni sigur á Aftureldingu, sem flestir reikna með, þarf Stjarnan að bíða fram á mánudag eftir tækifæri til að tryggja sér titilinn. Sigur á Þrótti á Valbjarnarvelli myndi tryggja Garðabæjarliðinu gullið eftirsótta. Stjarnan hefur unnið alla sína leiki í deildinni. Liðið gæti bætt stigamet sitt í tíu liða efstu deild en liðið fékk 51 stig í deildinni sumarið 2011 er liðið tapaði aðeins einum leik.Leikir kvöldsins:Klukkan 18 Breiðablik - Afturelding FH - HK/Víkingur Þór/KA - Þróttur ÍBV - SelfossKlukkan 19.15 Stjarnan - ValurStöðuna í deildinni má sjá hér.
Pepsi Max-deild karla Mest lesið „Eyðileggur íþróttina“ Sport Fær hjartaáfall við að horfa á varnarleik KR Íslenski boltinn „Mér líður eins og ofurkonu núna“ Sport Zidane hringdi í gamla liðsfélagann sem lék með honum í Laugardalnum Fótbolti Boxari látinn 33 ára: Varð fyrir alvarlegum heilaskaða í bardaga Sport „Hinn fullkomni keppnismaður“ leggur skóna á hilluna Körfubolti Sonur Klinsmann átti á hættu að geta aldrei gengið aftur Fótbolti Gylfi: „Erfitt að lenda undir eftir tíu mínútur“ Fótbolti Á leið til Sádi-Arabíu eftir aðeins eitt ár hjá City Enski boltinn Fyrstur til að vinna fjörutíu titla með einu félagi Fótbolti Fleiri fréttir Stefnir langt í Evrópu og á Íslandsmeistaratitil Fær hjartaáfall við að horfa á varnarleik KR Markaveisla í toppslagnum og æsispennandi toppbarátta Þrótturum mistókst að komast á toppinn Uppgjörið: ÍBV-Stjarnan 3-2 | Eyjakonur upp í þriðja sætið Uppgjörið: Víkingur-FC Thun 3-2 | Evrópudeildardraumurinn úti Uppgjörið: Nordsjælland – Valur 5-0 | Ekki léttir í lund í Kaupmannahöfn Elvis kominn í Bítlabæinn Stelpurnar tóku yfir Akureyri Hnéhlífarnar nauðsynlegar er teymi Víkings hleypur fyrir Ingvar Fögnuðu sigri og tilkynntu Úlfu Dís eftir leik Öll lið lenda í þessu Uppgjörið: Breiðablik - Grindavík/Njarðvík 1-0 | Katelyn Duong hetja Blika Dagný Brynjars snýr aftur í fótboltann Uppgjörið: Þróttur-Valur 3-2 | Fyrsti sigur Þróttar í 75 daga Uppgjörið: Fram-FH 4-6 | Ótrúleg markasúpa á Lambhagavelli Fékk atvinnutilboð erlendis og hættir með kvennalið Keflavíkur Þórsarar fá annan Víking norður Þróttarar fá Björgeyju Njálu aftur heim Keflvíkingar bæta við sig Króata Staðfestir brottför Gunnars: „Einn besti varnarmaður frá upphafi“ Ásdís Karen til FH Um ótrúlegt met KR: „Langskemmtilegustu leikirnir“ Martröðin í Kasakstan þjappaði Blikum saman Sjáðu öll 64 mörk KR í sumar Sveinn Aron spilar með Víkingi eins og afi sinn „Búið að gerast á frekar fyndinn hátt hjá mér síðustu ár“ Stúkumönnum fannst ósanngjarnt að reka Conteh út af Sjáðu KR bæta markametið gegn Fram Kennie: Við töpuðum leiknum á fyrstu 25 mínútunum Sjá meira