Baldur Sigurðsson: Skipti um skó í hálfleik Eyþór Atli Einarsson skrifar 29. ágúst 2013 20:33 Baldur Sigurðsson. Mynd/Anton
Baldur Sigurðsson skoraði eitt marka KR í 3-1 sigri á Val á KR-vellinum í kvöld en með þessum sigri náðu KR-ingar fjögurra stiga forskoti á toppi Pepsi-deildar karla í fótbolta. „Ég fékk þessa spurningu í dag og þetta er fáránleg spurning. Það er rétt að við erum með fjögurra stiga forystu og það er góð staða, en að segja að við séum með níu fingur á titlinum er kjánalegt því annað eins hefur nú gerst að menn klúðri svona stöðu. Ef að menn fá það inn í hausinn á sér og þið farið að prenta þetta inn í hausinn á ykkur þá verðum við fljótir að tapa þessu. Það er nóg eftir af tímabilinu,“ sagði Baldur Sigurðsson, leikmaður KR, spurður að því hvort að KR væri komið með níu fingur á titilinn eftir sigur á Valsmönnum í kvöld. „Titillinn er engu að síður okkar til að tapa en það er mikið eftir af þessu og við þurfum að koma jafneinbeittir í næsta leik eins og við höfum verið að gera í síðustu leikjum. Þjálfarteymið gerði vel í því að koma okkur niður á jörðina eftir síðasta leik gegn FH og við vorum virkilega gíraðir í dag í það að vinna Valsarana loksins á heimavelli.“ „Frammistaða liðsins var mjög góð alveg frá markmanni og upp á topp. Það var reyndar óþolandi að fá á sig þetta mark og ég held að í síðustu fjórum leikjum hefur það gerst að við erum komnir í 2-0 og fáum á okkur mark sem setur óþarfa spennu í þetta. En við erum með gæði á öllum vellinum og þar á meðal frammi til að refsa liðunum og komast í 3-1 og klára leikinn alveg.“ „Maður fær aukaslag þegar þeir minnka muninn en við erum með góða vörn og mér fannst Grétar nú eiga alla háu boltana sem þeir voru að dæla fram,“ aðspurður hvort hann hafi orðið stressaður þegar Valur minnkar muninn. Baldur skoraði eitt mark í dag en var alltaf mættur í inn í teig og var ógnandi. „Það var fúlt að skora ekki annað. Ég fékk ágætis færi í fyrri hálfleik en ég skipti um skó í hálfleik og bætti upp fyrir það þar,“ sagði markaskorarinn kampakátur að lokum.
Pepsi Max-deild karla Mest lesið Aston Villa í mál við Jamie Carragher Enski boltinn „Á meðan er hann að sofa hjá Ólympíufara í sundi“ Sport „Á stuttum tíma eru mínir nánustu vinir farnir“ Íslenski boltinn Arteta harður við Dowman: „Þetta er ekki Disneyland“ Enski boltinn Styttan af Dwyane Wade fékk nýjan haus Körfubolti Uppgjörið: Grindavík-Njarðvík 104-103 | Pargo með sigurkörfuna Körfubolti „Þessi seinni hálfleikur var það besta sem við höfum gert hingað til” Körfubolti „Lið sem enginn vill mæta núna“ Körfubolti Réttlætanlegt að beita táragasi á norska stuðningsmannahópa Fótbolti Uppgjörið: KR - Sindri 107-102 | Seiglan sigraði Sindra Körfubolti Fleiri fréttir „Magnús er þjálfari Aftureldingar og verður það áfram“ Emil Atlason á leið í Fram Israel frá Fram „Á stuttum tíma eru mínir nánustu vinir farnir“ Víkingar láta Einar Guðna fara Hallgrímur kveður KA Heimir ráðinn til ÍA og kostaði nokkrar milljónir Var klár í samkeppnina við Ingvar Flauta Péturs á hilluna Engin uppalin spilaði með Fram „Ég hef sjaldan, ef nokkurn tímann, kynnst öðru eins félagi og Víkingi“ Heimir farinn frá Fylki Einn dyggasti sonur ÍBV semur við Val „Á meðan liðið er að vinna skiptir ekki máli hvort að ég skori eða einhver annar“ Ásgeir Páll kveður Keflavík og Ísland Arnar spenntur og „no komment“ frá Magnúsi „Neyði menn ekki til að vera hérna“ Aron Þórður hættur Draumurinn að þjálfa Blika Tímabilið vonbrigði en bjartir tímar framundan Omar Sowe kominn í KR-treyjuna „Úff, hvað er ég búinn að koma mér út í hérna?“ „Hún gæti orðið okkar langbesti leikmaður“ Breytingar boðaðar í Garðabæ Davíð Smári hættur hjá Njarðvík Rúnar Páll kynnti teymið sitt Ólafur Ingi hættur með Blika „Virkaði öfugt við það sem hann vonaðist til“ Harma ákvörðun Hattar Ingibjörg valin sú efnilegasta Sjá meira