Fékk á annað hundrað þúsund króna símreikning eftir netvafur Hugrún Halldórsdóttir skrifar 4. mars 2013 19:11
Íslendingur sem notaði snjallsíma í Bandaríkjunum til að fara á netið fékk á annað hundrað þúsund króna reikning fyrir um tuttugu mínútna notkun. Slík mál koma reglulega upp að sögn forstjóra Tals sem hvetur Íslendinga á faraldsfæti til að huga betur að internetstillingum í tækjum sínum. Það var DV sem greindi fyrst frá máli Rúnars Pálmarssonar, sem notaði nýjan iphone til að vafra á netinu þegar hann var í heimsókn hjá tengdaforeldrum sínum í Boston. „Og er semsagt búin að vera þarna í þrjá daga þegar ég ákveð að setja inn netstillingarnar hjá Tal og ég hef greinilega misst samband við heimanetið. Og eftir tuttugu mínútur þá fæ ég sms: þú hefur notað 8 þúsund af heildarmagni 10 sem hægt er að nota og 2 mínútum seinna fæ ég seinna sms-ið þar sem stendur að ég hafi fullnýtt 10 þúsund króna heimild og til að fylla á þurfi ég að senda sms til að hækka, ég á ekki að geta notað meira en 10 þúsund nema ég hækki með sms-i. Sem ég geri ekki," segir Rúnar. Rúnar rak svo upp stór augu þegar símreikningurinn kom í hús, því tuttugu mínútna netrúntur, þar sem hann skoðaði meðal annars íslenskar fréttasíður og facebook, kostaði heilar 129 þúsund krónur. Hann segist mjög ósáttur við símafyrirtækið Tal vegna þessa en forstjóri þess bendir hins vegar á að þetta geti komið fyrir því erlendir samstarfsaðilar eiga það til að skila gögnum seint til fyrirtækisins. Viktor Ólason, forstjóri Tals, segir netnotkun vera mjög dýra erlendis. Margir Íslendingar hafi brennt sig á þessu og fengið himinháan reikning líkt og Rúnar. Rætt var við Viktor og Rúnar í kvöldfréttum Stöðvar 2 í kvöld.
Mest lesið Þingkosningar í Bandaríkjunum: Meira en helmingslíkur á að Demókratar nái öldungadeildinni Erlent Einn látinn og tveir drengir alvarlega særðir í Fagersta Erlent Snerti samstarfskonu á ósæmilegan hátt Innlent Engin þjónusta: „Staðan er náttúrulega grafalvarleg á þessu svæði“ Innlent „Við lítum á land ykkar sem eðlilegan hluta af evrópsku fjölskyldunni“ Innlent Rannsaka líkamsárás miðsvæðis Innlent Nokkrir látnir eftir árekstur lögreglubíls Erlent TikTok gert að greiða Bandaríkjunum sögulega upphæð Erlent Aftur í skólastjórastólinn Innlent Afmælistónleikar Bylgjunnar á Menningarnótt Innlent Fleiri fréttir Skipunartíminn lengdur án auglýsingar Engin þjónusta: „Staðan er náttúrulega grafalvarleg á þessu svæði“ Bændur órólegir vegna skorts á dýralæknum Aftur í skólastjórastólinn Veðrið „ekki eins slæmt og það lítur út fyrir að vera“ Rannsaka líkamsárás miðsvæðis Búist við þungri umferð á fjölförnum gatnamótum „Við lítum á land ykkar sem eðlilegan hluta af evrópsku fjölskyldunni“ Sveitarfélögin séu ekki sökudólgurinn Upphrópanir bæjarráðs séu ótímabærar Viðtal við stækkunarstjóra, umferðartafir og stafræn hvíld Rekstrarformið byggi á sniðgöngu kjarasamninga Réðst á móður sína og hótaði ítrekað: „Ég sting þig, ég ætla að stinga þig“ Gætum þurft að framvísa smáríkjakortinu Afnema byggingarréttargjöld í Reykjanesbæ Nýi Landspítalinn verði tilbúinn í árslok 2029 Baunað á Jónas Má þvert á flokka Afmælistónleikar Bylgjunnar á Menningarnótt Hætta við skólaakstur úr Suðurhlíðum þremur dögum fyrir skólabyrjun Kristín fyrsti sýslumaðurinn fyrir allt landið Viðurkennir að opinber gjöld hefðu getað hækkað minna „Ég get ekki svarað því“ Vitnisburðir: „Sannleikurinn er lyginni líkastur“ „Reykjavíkurflugvöllur er ekki að fara úr Vatnsmýri í náinni framtíð“ Sótti kíló af kókaíni á pósthúsið Uppselt í tíu kílómetra í keppnisflokki Sprengisandsstjóri og upplýsingafulltrúi Landsbankans til RÚV Örn verður framkvæmdastjóri HÍ Hefja útboðsferli fyrir þrjú þúsund fermetra höfuðstöðvar Snerti samstarfskonu á ósæmilegan hátt Sjá meira
Þingkosningar í Bandaríkjunum: Meira en helmingslíkur á að Demókratar nái öldungadeildinni Erlent
Þingkosningar í Bandaríkjunum: Meira en helmingslíkur á að Demókratar nái öldungadeildinni Erlent