"Mjög mikilvægt fyrir okkur“ Hödd Vilhjálmsdóttir skrifar 12. ágúst 2013 18:30 Dr. Jin-Jing Pei, Kristján Þór Júlíusson heilbrigðisráðherra og Kristinn D. Grétarsson.
Fyrsta sjúkrahúsið í Kína sem sérhæfir sig í öldrunarsjúkdómum mun nota hugbúnað frá íslenska rannsóknarfyrirtækinu Mentis Cura til að greina Alzheimer og aðra heilabilunarsjúkdóma. Mikil sóknarfæri fólgin í samningum, bæði fyrir fyrirtækið og Íslendinga, segir heilbriðisráðherra. Samningurinn var undirritaður í Þjóðmenningarhúsinu í dag en WanJia Yuan International Geriatric, sem opnar árið 2014, verður hátækni spítali með yfir 1200 rúmum, þar á meðal verða 400 rúm fyrir sjúklinga með alzheimer. Spítalinn mun innleiða greiningartækni Mentis Cura á alheimer og öðrum heilabilunarsjúkdómum. Kristinn D. Grétarsson, framkvæmdastjóri Mentis Cura, segir þetta gífurlega viðurkenningu á starfi fyrirtækisins. „Þetta er fyrsti spítali sinnar tegundar í Kína og sá einstaki í þessari stærðargráðu. Ég held að aldrei hafi verið reistur jafnstór og jafnmetnaðarfullt verkefni og þetta,“ segir hann. Mentis Cura mun veita aðgang að sinni tækni til að hjálpa læknum og starfsfólki spítalans við að greina alzheimer og aðra heilabilunarsjúkdóma og segir Kristinn einnig felast í samningnum mikið tækifæri á sviði rannsóknarsamstarfs. „Þannig að þetta er mjög mikilvægt fyrir okkur,“ segir hann. Tækni Mentis Cura segir Kristinn vera mjög hagkvæma í notkun og að heilariti sé tæki sem að kosti ekki mikið í innkaupum. Fyrirtækið sé búið að eyða miklum tíma og mörgum árum í að reyna að vinna betur úr þeim gögnum sem þar leynast. Hann segir hægt að nota þessa tækni almennt, án lítils tilkostnaðar, til að hjálpa við að greina snemma og komast þannig að um hvers konar minnissjúkdóm er um að ræða. Kristján Þór Júlíusson heilbrigðsráðherra segir að þessi samningur þýði að vonandi taki Ísland framförum í rannsóknum á öldrunarsjúkdómum. „Jafnframt gefur þetta þessa ágæta fyrirtæki færi á því að styrkja grunninn að sinni starfsemi. Þannig að það eru sóknarfæri í þessu fólgin í þessu fyrir fyrirtækið og ekki síður Íslendinga sem að eiga eftir að glíma við og taka á sínum stóra varðandi öldrunarsjúkdóma,“ segir hann.
Mest lesið Telur Thomas Møller hafa fengið tækifæri til að eyða sönnunargögnum Innlent Sauð upp úr þegar Ragnar kallaði orð Ásgeirs óábyrg Innlent Fór í skólann og búið að farga dekkjastæðunni þegar heim var komið Innlent Kennarar boða tíðindi Innlent Tugmilljóna gjaldþrot félags fíkniefnasmyglara Innlent Hringdi inn þegar konan reyndist gift öðrum manni Innlent SA á leið í árshátíðarferð á meðan klukkan tifar í kjaradeilu Innlent Nóg að spyrja þá sem þurfa að borga launin Innlent Leigubremsan „augljóslega mjög heimskuleg“ Innlent Framlengja samninga út næsta ár Innlent Fleiri fréttir Samþykktu að slíta kjarasamningum Niðurrif hafið á Laugasól „Vonbrigði að Icelandair fljúgi ekki lengur til Kulusuk“ Ljósastaurar bilaðir víða í Reykjavík Ræst út vegna logandi rafhlaupahjóls Serbar á Íslandi mótmæla: „Það er ósanngjarnt að taka af fólki réttinn til að kjósa“ Hringdi inn þegar konan reyndist gift öðrum manni Tugmilljóna gjaldþrot félags fíkniefnasmyglara „Við erum að gefa boltann upp“ Þétta samstarfið í útnorðri „Við erum tilbúin að skoða lengingu skólaársins“ Bein útsending: Blaðamannafundur Kristrúnar, Beinis og Jens Frederik SA á leið í árshátíðarferð á meðan klukkan tifar í kjaradeilu Sver af sér ábyrgð á rannsókn um karlmennsku Bílvelta á Vesturlandsvegi Sauð upp úr þegar Ragnar kallaði orð Ásgeirs óábyrg Verða að viðurkenna barn getið með staðgöngumæðrun Segir „gerviþak“ breyta litlu um „ryksugu“ Rúv Viðræður VR við SA á leið inn „blindgötu“ Tímarit eigi hvergi stað og fái enga styrki Segir fjölmiðlanefnd stjórnlausa og sektaóða Geti reynst erfitt að standa við verðlagsloforðin Hvetur flokka til að afla leyfa fyrir tónlist í pólitískum áróðri Rubio hafi staðfest varnarskuldbindingar gagnvart Íslandi Breyti myndböndum af börnum að borða og dansa í barnaníðsefni Kennarar boða tíðindi Nóg að spyrja þá sem þurfa að borga launin Sex atvinnulausir um hvert laust starf Bein útsending: Áskoranir á norðurslóðum Glapræði að hafna væntanlegri launahækkun Sjá meira