Dansinn dunar á Innipúkanum Kjartan Hreinn Njálsson skrifar 2. ágúst 2013 20:09
Það verður ekki aðeins dansað á landsbyggðinni um helgina. Tónlistarhátíðin Innipúkinn fer nefnilega fram um helgina en skipuleggjendur og gestir hennar tóku forskot á sæluna og hristu á sér skankana í hádeginu í dag. Innipúkinn þetta árið verður með breyttu sniði en tónlistarhátíðin fer fram föstudags- og laugardagskvöld. Sem fyrr fer hátíðin fram vítt og breytt um Reykjavík en miðpunktur hennar er á Faktorý við Smiðjustíg 6. Dagskráin er fjölbreytt og munu listamenn á borð við Valdimar, Steed Lord, Botnleðju og Agent Fresco stíga á stokk. Hátíðin hófst í hádeginu í dag en þar safnaðist saman föngulegur hópur fólks til að hrista skankana og hita upp fyrir átök helgarinnar. „Við erum að hefja stærstu og bestu helgi sumarsins hérna í Reykjavík," segir Steinþór Helgi Arnsteinsson, skipuleggjandi. „Við vorum með Launch-beat hérna við Faktorý í hádeginu. Við munum síðan láta dansinn duna á Faktorý um helgina. Þannig að þetta er góður fordrykkur fyrir helgina." „Það er náttúrulega mjög gaman að vera hér á Faktorý, enda er þetta næst síðasta helgina sem þessi staður er opin." Og það verður meira um að vera en tónleikar á Innipúkanum þetta árið. Nískupúkinn, flóamarkaður Innipúkans, verður í portinu hjá Faktorý á morgun. Einnig verður vatnsbyssustríð í Hjartagarðinum ásamt öðru fyrir barnafjölskyldur. „Við höfum verið á Iðnó undanfarin ár en núna færðum við okkur í Faktorý. Svo verðum við með þétta fjölskyldudagskrá í Breiðholtinu. Við viljum höfða til sem flestra. Þetta er góð helgi, það grisjast vel úr borginni og allir njóta sín."
Mest lesið „Undirstaða Hörpu mun hristast undir hreinum og ómenguðum krafti“ Tónlist Bríet sviptir hulunni af kærastanum Lífið Hvað veistu um… Disney-myndirnar frá tíunda áratugnum? Lífið Ari fékk arin í 165 milljóna króna húsi Lífið Fyrsta lesbían til að prýða Playboy Lífið „Höfðum hugrekki til að stíga í aðra átt“ Lífið Dönsuðu uppi á borðum fyrir eftirréttinn Lífið Haaland hunsaði Holland Lífið Fjörutíu básar í garðinum og götumatur frá öllum heimshornum Matur Sagði Viktoríu Beckham að „fokka sér“ Tónlist Fleiri fréttir Hvað veistu um… Disney-myndirnar frá tíunda áratugnum? Bríet sviptir hulunni af kærastanum Fyrsta lesbían til að prýða Playboy „Höfðum hugrekki til að stíga í aðra átt“ Haaland hunsaði Holland Ari fékk arin í 165 milljóna króna húsi Dönsuðu uppi á borðum fyrir eftirréttinn Ariana Grande byrjuð aftur með fyrrverandi Ljóðrænt hótel á Akureyri David kemur áhugalausri Victoriu til varnar „Drullið ykkur í burtu“ Keyptu hús ömmu og afa Ástrósar Íris Freyja og Egill bæta við öðrum sólargeisla Rakel Sif og Gissur Ari selja á Nýlendugötu Selja herrasetur í Þingholtunum Halla um Jewel: „Hefur oft bjargað sál minni“ Íslenska „ljóskan“ slær í gegn í tískuheiminum Lesbíur selja litríka íbúð „Fimmtán ár af hreinu himnaríki“ „Ég knúsaði ekki manneskju í sex mánuði nema manninn minn og dóttur mína“ Stjörnulífið: Patrekur og Gísli Marteinn saman á Bad Bunny Leikarinn Sam Neill er látinn „Við unnum í nágrannalottóinu“ Steiney frumsýnir kærastann „Ertu að segja mér að ég endi í hjólastól?“ Ferðast um heiminn og setur Íslandsmet Ógleymanlegt galdrabrúðkaup á tásunum Krakkatía vikunnar: Víkingar, Njáll og pasta Loksins sást til hjónanna Óttast ekki dauðann en vill gjarnan meiri tíma með sínu fólki Sjá meira