Óttast um framtíð íslensku landnámshænunnar Magnús Hlynur Hreiðarsson skrifar 23. júlí 2013 20:46
Mikill ótti er meðal þeirra sem vilja vernda stofn íslensku landsnámshænunnar að verið sé að stefna stofninum í tvísýnu með blöndun við Brahma-hænsni af asískum uppruna. Hröð útbreiðsla er í Evrópu á slíkum hænsnum sem eru með fiðraða fætur, en genið sem stýrir því er ríkjandi í stofninum. Verulega er farið að bera á útbreiðslu á slíkum hænsum hér á landi. Íslenska landnámshænan hefur á síðustu árum átt auknum vinsældum að fagna hjá fjölmörgu áhugafólki um hænsnarækt enda ólíklegasta fólk komið með hænur í garðinn hjá sér. Þá eru margir bændur að rækta hænur samhliða búskapnum. Nú eru hins vegar blikur á lofti því blöndun af hænum af asískum uppruna er komin inn í íslenska hænsnastofninn, sem þykir alls ekki gott. Ólafur Dýrmundsson, ráðunautur hjá Bændasamtökum Íslands, sem var að slá og dytta að bústað sínum í Ölfusi í dag þekkir vel til málsins. „Þetta er ríkjandi eiginleiki, sennilega kominn úr asískum hænsnum upprunalega. Við höfum kannað þetta mjög vel, bæði hér innanlands og á Norðurlöndunum, og það er ekkert sem bendir til þess að þessir fiðruðu fætur eigi að vera í þessum stofni. Fætur á íslensku hænunum eiga að vera lausir við þessa fjaðraskúfa,“ segir Ólafur. Meginmarkmið Eigenda- og ræktendafélags landnámshænsna er að halda stofninum hreinum, heilbrigðum og litfögrum. „Aðalatriðið er að fólk sem er að kaupa sér unga gæti þess að kaupa ekki köttinn í sekknum. Það er mikil hætta á ferðum þar sem þetta er ríkjandi eiginleiki og berst út eins og eldur í sinu. Landnámshænustofninn er lítill og hann ber að varðveita,“ segir Ólafur jafnframt.
Mest lesið Ráðherra lét henda þeim út þegar rætt var um Heiðarfjall Innlent Konan sem var borin út er látin Erlent Samþykktu að slíta kjarasamningum Innlent Tugmilljóna gjaldþrot félags fíkniefnasmyglara Innlent Niðurrif hafið á Laugasól Innlent Margaret Hamilton er látin Erlent Segir í tísku að setja „alþjóðasamfélagið“ ofar eigin þjóð Erlent Kjaftshögg, blys og hrákur á VÍ - MR Innlent Hafi ekki „fært sig eina litla tommu“ Innlent Hringdi inn þegar konan reyndist gift öðrum manni Innlent Fleiri fréttir Bein útsending: Fjármálaráðstefna sveitarfélaga 2026 Hafi ekki „fært sig eina litla tommu“ Ráðherra lét henda þeim út þegar rætt var um Heiðarfjall Kjaftshögg, blys og hrákur á VÍ - MR Samþykktu að slíta kjarasamningum Niðurrif hafið á Laugasól „Vonbrigði að Icelandair fljúgi ekki lengur til Kulusuk“ Ljósastaurar bilaðir víða í Reykjavík Ræst út vegna logandi rafhlaupahjóls Serbar á Íslandi mótmæla: „Það er ósanngjarnt að taka af fólki réttinn til að kjósa“ Hringdi inn þegar konan reyndist gift öðrum manni Tugmilljóna gjaldþrot félags fíkniefnasmyglara „Við erum að gefa boltann upp“ Þétta samstarfið í útnorðri „Við erum tilbúin að skoða lengingu skólaársins“ Bein útsending: Blaðamannafundur Kristrúnar, Beinis og Jens Frederik SA á leið í árshátíðarferð á meðan klukkan tifar í kjaradeilu Sver af sér ábyrgð á rannsókn um karlmennsku Bílvelta á Vesturlandsvegi Sauð upp úr þegar Ragnar kallaði orð Ásgeirs óábyrg Verða að viðurkenna barn getið með staðgöngumæðrun Segir „gerviþak“ breyta litlu um „ryksugu“ Rúv Viðræður VR við SA á leið inn „blindgötu“ Tímarit eigi hvergi stað og fái enga styrki Segir fjölmiðlanefnd stjórnlausa og sektaóða Geti reynst erfitt að standa við verðlagsloforðin Hvetur flokka til að afla leyfa fyrir tónlist í pólitískum áróðri Rubio hafi staðfest varnarskuldbindingar gagnvart Íslandi Breyti myndböndum af börnum að borða og dansa í barnaníðsefni Kennarar boða tíðindi Sjá meira