Brauðgjafir hvetja máv til kríuungadráps Heimir Már Pétursson skrifar 24. júlí 2013 19:58
Mávager við Bakkatjörn á Seltjarnarnesi er algert skaðræði og leggst mávurinn meðal annars á kríuunga sem varla eru orðnir fleygir. Það er rómantísk tilhugsun að fara niður að Bakkatjörn á Seltjarnarnesi og gefa öndunum brauð, en það getur verið misskilin góðmennska því brauðið dregur að sér mávinn og hann er að valda miklum usla í kríuvarpinu. Þegar fréttastofu bar að garði í morgun var einmitt maður í góðri trú að fóðra endurnar með brauði. En þá sveimar mávurinn yfir og lendir síðan mitt í hópi andanna og álftahjónanna og hrifsar til sín brauðið. Kríuvarpið á Nesinu hefur tekist vel og þykir mönnum sorglegt ef mávurinn nær að spilla því, en golfari náði meðal annars ljósmyndum af mávi með stálpaðan kríuunga í gogginum. „Ein hugmyndin var að skjóta hann," segir Soffía Karlsdóttir sviðsstjóri hjá Seltjarnarnesbæ. En Jóhann Óli Hilmarsson fuglafræðingur hafi mælt gegn því og sagt að það gerði ekki mikið gagn. "Hann segir að besta ráðið sé að reyna að koma í veg fyrir það eins og hægt er að fólk sé að brauðfæða endurnar á tjörninni," segir hún. Á þessum árstíma hafi varpfuglar nægjanlegt æti og því óþarfi að brauðfæða þá en mávurinn leitar í brauðið og um leið kríuungana. „Hann étur eggin, hann étur ungana og núna eru menn að segja að hann sé að éta unga sem orðnir eru hálffleygir og það finnst okkur auðvitað óskaplega dapurlegt," segir Soffía. Þótt aldrei verði hægt að útrýma mávinum megi sporna við ágangi hans með því að draga hann ekki að með brauðgjöfum á meðan krían og aðrir fuglar eru að koma upp ungum á legg. Fjölmörg vitni séu að því þegar mávurinn ræðst á kríuungana. „Já, það hafa verið teknar myndir af því út á golfvelli og menn kvarta undan því þar að þeir hafi séð þetta gerast fyrir framan nefið á þeim. Þar ræðst mávurinn á unga og hakkar þá í sig þarna á golfvellinum. Þeir svífast einskis og mönnum finnst þetta vera miklu meiri og skæðari ágangur en fyrri ár," segir Soffía.
Mest lesið Ráðherra lét henda þeim út þegar rætt var um Heiðarfjall Innlent Samþykktu að slíta kjarasamningum Innlent Konan sem var borin út er látin Erlent Tugmilljóna gjaldþrot félags fíkniefnasmyglara Innlent Niðurrif hafið á Laugasól Innlent Margaret Hamilton er látin Erlent Segir í tísku að setja „alþjóðasamfélagið“ ofar eigin þjóð Erlent Kjaftshögg, blys og hrákur á VÍ - MR Innlent Hringdi inn þegar konan reyndist gift öðrum manni Innlent Segist geta gert Biden, Obama og Clinton „mjög slæma hluti“ Erlent Fleiri fréttir Bein útsending: Fjármálaráðstefna sveitarfélaga 2026 Hafi ekki „fært sig eina litla tommu“ Ráðherra lét henda þeim út þegar rætt var um Heiðarfjall Kjaftshögg, blys og hrákur á VÍ - MR Samþykktu að slíta kjarasamningum Niðurrif hafið á Laugasól „Vonbrigði að Icelandair fljúgi ekki lengur til Kulusuk“ Ljósastaurar bilaðir víða í Reykjavík Ræst út vegna logandi rafhlaupahjóls Serbar á Íslandi mótmæla: „Það er ósanngjarnt að taka af fólki réttinn til að kjósa“ Hringdi inn þegar konan reyndist gift öðrum manni Tugmilljóna gjaldþrot félags fíkniefnasmyglara „Við erum að gefa boltann upp“ Þétta samstarfið í útnorðri „Við erum tilbúin að skoða lengingu skólaársins“ Bein útsending: Blaðamannafundur Kristrúnar, Beinis og Jens Frederik SA á leið í árshátíðarferð á meðan klukkan tifar í kjaradeilu Sver af sér ábyrgð á rannsókn um karlmennsku Bílvelta á Vesturlandsvegi Sauð upp úr þegar Ragnar kallaði orð Ásgeirs óábyrg Verða að viðurkenna barn getið með staðgöngumæðrun Segir „gerviþak“ breyta litlu um „ryksugu“ Rúv Viðræður VR við SA á leið inn „blindgötu“ Tímarit eigi hvergi stað og fái enga styrki Segir fjölmiðlanefnd stjórnlausa og sektaóða Geti reynst erfitt að standa við verðlagsloforðin Hvetur flokka til að afla leyfa fyrir tónlist í pólitískum áróðri Rubio hafi staðfest varnarskuldbindingar gagnvart Íslandi Breyti myndböndum af börnum að borða og dansa í barnaníðsefni Kennarar boða tíðindi Sjá meira