Krefjast íbúakosningar um Landssímareit Heimir Már Pétursson skrifar 25. júlí 2013 10:41 BIN-hópurinn afhendir formanni borgarráðs áskorun um að setja Landssímareitinn í íbúakosningu. mynd/bin-hópurinn
Talskona BIN-hópsins segir að þótt borgarfulltrúar meirihlutans taki ekki undir athugasemdir hópsins varðandi skipulag við Austurvöll, sé hún bjartsýn á að efnt verði til íbúakosningar um skipulagið. Hópurinn leggst gegn hótelbyggingu í gamla Landsímahúsinu.BIN-hópurinn afhenti Degi B. Eggertssyni formanni borgarráðs áskorun vegna deiliskipulagstillögu um Landssímareit áður en borgarráðsfundur hófst í ráðhúsinu í morgun. En BIN stendur fyrir „Björgum Ingólfstorgi og NASA“ og var hópurinn stofnaðir árið 2009 þegar til stóð að rífa NASA og færa hótel Vík og fleiri hús út á Ingólfstorg, en nú hefur verið fallið frá þeim áformum. BIN hópurinn bendir á að nú hafi vel á þriðja hundrað athugasemdir borist vegna deiliskipulagstillögu Landssímareitsins, fjölmennur útifundur verið haldinn gegn tillögunni og 18 þúsund manns skrifað undir mótmæli gegn hótelrekstri á Landssímareitnum. Halla Bogadóttir talsmaður BIN-hópsins segir hópinn skora á borgarráð að fresta ákvörðun um samþykkt skipulagsins og málið verði tekið til umræðu í borgarstjórn þegar hún kemur saman í september. „Og í öðru lagi óskuðum við eftir því að fram fari íbúakosning. Það er að segja að allir borgarbúar fái tækifæri til að lýsa skoðun sinni á þessari tillögu,“ segir Halla. Hér sé um dýrmætasta reitinn í miðborginni að ræða. Versta tillagan sé að hafa hótel í Landsímahúsinu. Það þurfi að varðveita mannlífið í miðborginni en hótel verði aðeins utan við miðborgina. Því sé eðlilegt að borgarbúar fái að kjósa um tillöguna sem skipulagsráð hafi samþykkt og nú liggur fyrir borgarráði. Halla segir Dag B. Eggertsson ekki hafa tekið vel í hugmyndir hópsins við afhendingu áskorunarinnar í morgun. „Hann var ekki jákvæður í okkar garð. Hann er okkur ósammála og flestir borgarfulltrúanna eru ósammála okkur. Einungis Sóley Tómasdóttir og aðrir fulltrúar Vinstri grænna hafa ljáð okkar málstað eyru,“ segir Halla. En er hún þá bjartsýn á að tillaga hópsins um íbúakosningu nái fram að ganga? „Jú, ég ætla að vera bjartsýn. Ég ætla að trúa því að borgarfulltrúarnir okkar hlusti á raddir íbúa sinna og ætla því að vera bjartsýn,“ segir Halla.
Mest lesið „Lygaáróðursherferð af hálfu pólitískra andstæðinga“ Innlent „Blóðmassinn svartur sem hel“ Innlent Sjö sóttu um embætti sýslumanns Íslands Innlent „Ég fer í Costco að ná mér í bita“ Innlent Allir Bretar fæddir eftir 2008 í lífstíðarbann frá tóbaki Erlent Átti að fá smáaura en fékk fimm og hálft ár Innlent Hækka launin um 3,5 prósent í stað 9,7 prósenta Innlent Með rúma eina og hálfa milljón í heildarlaun Innlent Fiskflutningabíll valt á Þorlákshafnarvegi Innlent Sýknaður af ákæru fyrir ítrekaðan harmonikkuleik Innlent Fleiri fréttir Krefjast þess að stjórnvöld standi ekki í vegi endurreisnar Lítilli flugvél hvolfdi við lendingu Síðustu skósmiðirnir og Ungfrú Ísland í beinni Hækka launin um 3,5 prósent í stað 9,7 prósenta Átti að fá smáaura en fékk fimm og hálft ár Aukin hætta á gróðureldum Leita enn að ferðamanninum Bein útsending: Íbúafundur í Grindavíkurbæ Framkvæmdastjóri Fjölmiðlanefndar lagði ríkið endanlega Einn fluttur á slysadeild eftir árekstur „Ég fer í Costco að ná mér í bita“ Sýknaður af ákæru fyrir ítrekaðan harmonikkuleik Sjö sóttu um embætti sýslumanns Íslands Með rúma eina og hálfa milljón í heildarlaun Leggur til lagabreytingar vegna smæðar þjóðarinnar Framkvæmdastjóri Félagsbústaða lætur af störfum Skýrslur um hraunvá kalla á samtal um hvar megi byggja Stefnt á hvalveiðar í sumar: „Það má ekki einn hvalur deyja í sumar“ Lækka veiðiráðgjöf á hval verulega Varnargarðarnir hafi sannað gildi sitt en stjórnsýslan ekki staðist prófið „Blóðmassinn svartur sem hel“ Leita að ferðamanni við Háafoss og ný skýrsla um varnargarðana Varnargarðar á Reykjanesi: Verkefnið ríkislögreglustjóra ofviða Halda áfram umfangsmikilli leit að ferðamanni við Háafoss Kallar formann VR „ómerkilegan popúlista“ „Lygaáróðursherferð af hálfu pólitískra andstæðinga“ Við þurfum að vera tilbúin að takast á við eldgosavá Fiskflutningabíll valt á Þorlákshafnarvegi „Vitum ekkert hvað við eigum von á mörgum“ Tveir flokkar í Garðabæ útiloka samstarf Sjá meira