Eigandi Landsímareits hótar málshöfðun gegn borginni Kjartan Hreinn Njálsson skrifar 25. júlí 2013 19:55
Eigandi Landssímareitsins áskilur sér rétt til að höfða skaðabótamál á hendur Reykjavíkurborg vegna deiliskipulags sem samþykkt var í borgarráði í dag. Formaður borgarráðs segir borgina ekki hafa viðurkennt bótaskyldu í málinu. Nýtt deiliskipulag fyrir Landssímareitinn við Austurvöll var samþykkt í borgarráði í morgun og það með all góðri sátt en sex af sjö greiddu atkvæði með skipulaginu. Málið er því að mestu komið úr höndum borgaryfirvalda og uppbygging á reitnum getur nú hafist. Skiptar skoðanir eru um þessar breytingar. Átján þúsund borgarbúar hafa mótmælt áformunum með undirskrift sinni og fjölmarar athugasemdir hafa borist frá hinum ýmsu hagsmunaaðilum. Þá var þess krafist að íbúakosning myndi fara fram um málið. „Þetta mál er tilvalið í íbúakosningu," segir Sóley Tómasdóttir, oddviti Vinstri grænna. „Þetta er mjög skýr og afmörkuð tillaga og hún varðar alla borgarbúa. Það í raun mjög einfalt fyrir fólk að kynna sér málið og taka afstöðu. Þar að auki hefði útfærsla slíkrar kosningar verið mjög einföld. Það er ekki mikill lýðræðisbragur á þessu." „Íbúakosningin var rædd en það hefði verið nokkuð mikil skammsýni að fara þá leið. Vegna þess að ef við hefðum ekki samþykkt þetta skipulag í dag - sem hefur tekið mörg ár að vinna - þá hefði gamla skipulagið frá áttunda áratugnum haldið gildi sínu. Samkvæmt því mátti rífa öll gömlu húsin, þá voru byggingarnar hærri og byggingarmagnið meira," segir Dagur B. Eggertsson, formaður Borgarráðs. Í þessu máli eru hagsmunirnir miklir og hér kemur vilji lóðahafa til kasta. Pétur Þór Sigurðsson, lögmaður, er eigandi Landsímareitsins. Pétur er umsvifamikill fasteignasali og á meðal annars gamla Landsímahúsið sem og húsnæði NASA. Nokkuð ljóst er að Pétri Þór hugnast ekki þær breytingar sem samþykktar voru í borgarráði í dag. Þær gera ráð fyrir 1.100 fermetra minnkun á fyrirhugaðri uppbyggingu á Landsímareitnum. Pétur Þór hótar málshöfðun gegn borginni vegna þessa. „Við höfum ekki viðurkennt skaðabótarétt í málum sem þessum," segir Dagur. „Þvert á móti erum við að vinna að því að minnka byggingamagn, lækka húsin og fella þá byggð sem á að rísa að byggðinni sem fyrir er. Við erum að reyna að byggja nýtt með gömlu og vernda gömlu byggðina." „Skipulag Landsímareitsins eru í raun ákveðið tímamóta skipulag í húsvernd. Þar á ekkert gamalt hús að víkja." „Í þessu tilfelli sýnist mér að það muni hvort eð er koma til málshöfðunar," segir Sóley. „Þá velti ég því fyrir mér af hverju það var ekki farið í meiri sátt við borgarbúa, fyrst að við þurfum hvort eð er að fara fyrir dómstóla með málið."
Mest lesið „Já, ég er dálítið reiður“ Innlent Tæpum fjögur hundruð þúsund krónum eytt í vorgjöf Innlent Helgi Bjartur dæmdur í tólf mánaða fangelsi Innlent Sakborningar í Gufunesmálinu mættir í Landsrétt Innlent Skjálfti vegna Írisar innan Sjálfstæðisflokksins í Eyjum Innlent Dómur yfir Helga Bjarti: Fara þyrfti varlega í að draga ályktanir út frá framburði drengsins Innlent Hælisleitendur aðstoðaðir við að þykjast vera samkynhneigðir Erlent Ók á móti umferð í Hvalfjarðargöng með lögregluna á hælunum Innlent Halla Bergþóra nýr ríkislögreglustjóri Innlent Sjálfsmark með „sjúklega samfylkingarlegu“ kjötvörubanni Innlent Fleiri fréttir Gripinn í blokk við þvottastúss eftir árásina Fleiri andvígir aðild nú en í fyrra Ingimar er bæjarstjóraefni D-listans í í Hveragerði Bækurnar of leiðinlegar og forritaði stærðfræðitölvuleik „Vélin að bila og hún stingur upp á að við skiptum um áklæði“ Lögðu hald á um tug lítra fíkniefna Æfir kennarar og varað við verðstýringu Mótorinn í Herjólfi þarf til útlanda Margir sátu hjá þegar launin voru hækkuð Halla Bergþóra nýr ríkislögreglustjóri „Nú hef ég auðvitað ekkert á móti fólki frá Nígeríu“ Dómur yfir Helga Bjarti: Fara þyrfti varlega í að draga ályktanir út frá framburði drengsins Rannsóknin á lokametrunum Fjórir landsréttardómarar vilja taka skrefið í Hæstarétt Forsetar Íslands og Slóveníu ræða leiðtogahlutverk í breyttum heimi Segir forsætisráðuneytið misnotað í þágu sveitarstjórnarkosninga Sjálfsmark með „sjúklega samfylkingarlegu“ kjötvörubanni Framkoman laði ekki lækna að Landspítalanum Ók á móti umferð í Hvalfjarðargöng með lögregluna á hælunum Helgi Bjartur dæmdur í tólf mánaða fangelsi Eimskip líta smyglið mjög alvarlegum augum „Já, ég er dálítið reiður“ Matarstefnan bara „orð út í loftið“ Töldu framboðinu ekki til framdráttar að mæta í þáttinn Verð á stökum miða í sund hækkar en árskortið lækkar Árni vill stöðuna þrátt fyrir auglýsingu Skjálfti vegna Írisar innan Sjálfstæðisflokksins í Eyjum Sakborningar í Gufunesmálinu mættir í Landsrétt Bein útsending: Inga ávarpar kennara sem ráða ráðum sínum Hæstiréttur hlýðir ekki á Jón Þór Sjá meira
Dómur yfir Helga Bjarti: Fara þyrfti varlega í að draga ályktanir út frá framburði drengsins Innlent
Dómur yfir Helga Bjarti: Fara þyrfti varlega í að draga ályktanir út frá framburði drengsins Innlent