Segir hrefnuveiðar ógna hvalaskoðun á Faxaflóa Kjartan Hreinn Njálsson skrifar 29. júlí 2013 19:34
Hrefnuveiðar á Faxaflóasvæðinu hafa veruleg áhrif á hvalaskoðunarferðir. Nú sjást eitt til tvö dýr í hverri ferð en voru mun fleiri fyrir nokkrum árum. Rekstrarstjóri hvalaskoðunarfyrirtækis hvetur til þess að hvalveiðiskip haldi á önnur mið enda sé enginn skortur á dýrunum við Ísland. Hrefnuveiðiskipið Hrafnreyður KÓ er mætt aftur til veiða á Faxaflóa eftir að hafa verið á veiðum norðan við land. Þetta hugnast hvaðaskoðunarfyrirtækjum í Reykjavíkurhöfn ekki enda eru skoðunarskipin í aðeins nokkurra kílómetra fjarlægð frá hvalveiðiskipinu. Ásbjörn Björgvinsson, rekstrarstjóri hjá Sérferðum í Reykjavíkurhöfn, hefur fylgst með þróun hvalveiða sem og þeim uppgangi sem átt hefur sér stað í hvalaskoðun á síðustu árum. Hann segir hrefnuveiðar á Faxaflóa mikla ógn fyrir hvalaskoðun á svæðinu. „Í dag höfum við ekki séð neina hvali og við þurfum að komast virkilega langt suður til að sjá þá. Þetta hefur verið mjög gott ár það sem af er. Mikið af gæfum dýrum," segir Ásbjörn. „Ég ætla rétt að vona að það verði gerð breyting á þessu og að þessir menn finni sér annað veiðisvæði. Það skiptir öllu máli fyrir okkur að einstaklingar sem eru gæfir, forvitnir og koma nálægt bátunum fái að sleppa inn á flóann. Að þeir séu ekki skotnir rétt fyrir utan skagann." Ásbjörn segir það vera undarlegt að hrefnuveiði sé stunduð rétt á mörkum griðasvæðisins. Allir hvalir sem sjást í skoðunarferðum eru skráðir. Ásbjörn fullyrðir að dýrum hafi fækkað verulega á síðustu misserum. Þannig er fjöldi hvala kominn niður í eitt til tvö dýr í hverri skoðunarferð en var sex til sjö fyrir fimm árum. Því hvetur hann fyrirtækin til að færa veiðar sínar á önnur mið, enda sé nóg af dýrunum. „Því færri sem dýrin eru því dýrara er það fyrir okkur. Við þurfum að gefa ferðir ef hvalur sést ekki. Þetta kemur niður á fyrirtækjunum sjálfum. Hér starfa á annað hundrað manns bara við hvalaskoðun. Þarna er klárlega verið að fórna mun meiri hagsmunum fyrir minni.“
Mest lesið Ráðherra lét henda þeim út þegar rætt var um Heiðarfjall Innlent Samþykktu að slíta kjarasamningum Innlent Konan sem var borin út er látin Erlent Tugmilljóna gjaldþrot félags fíkniefnasmyglara Innlent Niðurrif hafið á Laugasól Innlent Margaret Hamilton er látin Erlent Segir í tísku að setja „alþjóðasamfélagið“ ofar eigin þjóð Erlent Kjaftshögg, blys og hrákur á VÍ - MR Innlent Hringdi inn þegar konan reyndist gift öðrum manni Innlent Segist geta gert Biden, Obama og Clinton „mjög slæma hluti“ Erlent Fleiri fréttir Bein útsending: Fjármálaráðstefna sveitarfélaga 2026 Hafi ekki „fært sig eina litla tommu“ Ráðherra lét henda þeim út þegar rætt var um Heiðarfjall Kjaftshögg, blys og hrákur á VÍ - MR Samþykktu að slíta kjarasamningum Niðurrif hafið á Laugasól „Vonbrigði að Icelandair fljúgi ekki lengur til Kulusuk“ Ljósastaurar bilaðir víða í Reykjavík Ræst út vegna logandi rafhlaupahjóls Serbar á Íslandi mótmæla: „Það er ósanngjarnt að taka af fólki réttinn til að kjósa“ Hringdi inn þegar konan reyndist gift öðrum manni Tugmilljóna gjaldþrot félags fíkniefnasmyglara „Við erum að gefa boltann upp“ Þétta samstarfið í útnorðri „Við erum tilbúin að skoða lengingu skólaársins“ Bein útsending: Blaðamannafundur Kristrúnar, Beinis og Jens Frederik SA á leið í árshátíðarferð á meðan klukkan tifar í kjaradeilu Sver af sér ábyrgð á rannsókn um karlmennsku Bílvelta á Vesturlandsvegi Sauð upp úr þegar Ragnar kallaði orð Ásgeirs óábyrg Verða að viðurkenna barn getið með staðgöngumæðrun Segir „gerviþak“ breyta litlu um „ryksugu“ Rúv Viðræður VR við SA á leið inn „blindgötu“ Tímarit eigi hvergi stað og fái enga styrki Segir fjölmiðlanefnd stjórnlausa og sektaóða Geti reynst erfitt að standa við verðlagsloforðin Hvetur flokka til að afla leyfa fyrir tónlist í pólitískum áróðri Rubio hafi staðfest varnarskuldbindingar gagnvart Íslandi Breyti myndböndum af börnum að borða og dansa í barnaníðsefni Kennarar boða tíðindi Sjá meira