"Rajko er algjör öðlingur“ Eiríkur Stefán Ásgeirsson skrifar 15. júlí 2013 11:30
Páll Viðar Gíslason, þjálfari Þórs, hefur ekki áhyggjur af því að markvörðurinn Srdjan Rajkovic muni bregðast illa við gagnrýni sem hann fékk fyrir frammistöðu sína gegn ÍBV í gær. Eins og sést í meðfylgjandi myndskeiði komst ÍBV í 2-0 forystu með tveimur sjálfsmörkum sem komu afar illa út fyrir Rajkovic. Leiknum lauk svo með 3-1 sigri Eyjamanna. „Hann gerði mistök en hann er eldri en tveggja vetra,“ sagði Páll Viðar í samtali við Vísi í morgun. „Auðvitað er þetta áberandi en hann hefur verið flottur í markinu hjá okkur, þrátt fyrir þessi mistök.“ „Það er alveg ljóst að ef einhver getur tekist á við mótlæti eins og þetta þá er það Rajko. Þetta er því ekkert sérstakt mál hjá okkur sem þarf að takast á við - það gera flestir mistök.“ Eftir leikinn fór umræða af stað á samskiptamiðlum á borð við Twitter þess efnis að Rajkovic hlyti að hafa hagnast á veðmálabraski með því að gefa þessi tvö mörk. „Ég get staðfest að Rajko er algjör öðlingur og leggur sig alltaf hundrað prósent fram. Hann er alvöru atvinnumaður. Auðvitað fer alls konar umræða í gang þegar svona lagað kemur upp á en ég vísa öllu til föðurhúsanna.“ „Við sem þekkjum Rajko hlæjum bara að þessu,“ segir Páll Viðar enn fremur. Þjálfarinn segir að úrslitin í gær hafi enga sérstaka þýðingu - liðið og leikmenn þess haldi bara áfram. „Við kennum aldrei neinum einstaklingum um svona lagað. Við tökum öllu sem liðsheild, bæði sigri og töpum. Það er ekkert öðruvísi í dag.“ Sjálfur segir Rajkovic í viðtali við mbl.is í dag að umræðan um veðmálabrask eigi ekki rétt á sér. „Ég er búinn að sjá þetta allt á Twitter og þetta er mesta rugl í heiminum. Ef maður ætlaði að gera eitthvað svona þá færi maður ekki þessa leið. Ég er mjög pirraður yfir þessu en ég er með breitt bak," sagði hann.
Pepsi Max-deild karla Mest lesið Sú belgíska lék ljótan leik en Víðir valdi Putellas og Rodri Fótbolti Sjáðu mörkin og rauðu spjöldin: Skoraði sitjandi og neyðarlegt sjálfsmark Enski boltinn Hamilton fremstur í fyrsta sinn í rúm þrjú ár Formúla 1 Dagskráin í dag: Risaleikur á Anfield og tímamót í Formúlu 1 Sport „Á stuttum tíma eru mínir nánustu vinir farnir“ Íslenski boltinn Missti af leik með KR vegna herskyldu Körfubolti „Enski boltinn er annar heimur“ Enski boltinn Grealish í agabanni hjá Everton Enski boltinn Emil Atlason á leið í Fram Íslenski boltinn „Magnús er þjálfari Aftureldingar og verður það áfram“ Íslenski boltinn Fleiri fréttir Njarðvík sagði upp samningi við Smit Sveinbjörn Másson sæmdur silfurmerki KSÍ Gylfi tekur við Víkingi Emil skrifar undir hjá Fram Grótta í sambandi við Davíð Smára „Magnús er þjálfari Aftureldingar og verður það áfram“ Emil Atlason á leið í Fram Israel frá Fram „Á stuttum tíma eru mínir nánustu vinir farnir“ Víkingar láta Einar Guðna fara Hallgrímur kveður KA Heimir ráðinn til ÍA og kostaði nokkrar milljónir Var klár í samkeppnina við Ingvar Flauta Péturs á hilluna Engin uppalin spilaði með Fram „Ég hef sjaldan, ef nokkurn tímann, kynnst öðru eins félagi og Víkingi“ Heimir farinn frá Fylki Einn dyggasti sonur ÍBV semur við Val „Á meðan liðið er að vinna skiptir ekki máli hvort að ég skori eða einhver annar“ Ásgeir Páll kveður Keflavík og Ísland Arnar spenntur og „no komment“ frá Magnúsi „Neyði menn ekki til að vera hérna“ Aron Þórður hættur Draumurinn að þjálfa Blika Tímabilið vonbrigði en bjartir tímar framundan Omar Sowe kominn í KR-treyjuna „Úff, hvað er ég búinn að koma mér út í hérna?“ „Hún gæti orðið okkar langbesti leikmaður“ Breytingar boðaðar í Garðabæ Davíð Smári hættur hjá Njarðvík Sjá meira