Segir ummæli ráðherra um Teigsskóg koma sér á óvart 21. júní 2013 13:02 Hanna Birna Kristjánsdóttir virðir fyrir sér birkiskóginn sem telur um 400 hektara.
Pétur Gunnlaugsson verkfræðingur segir viðhorf innanríkisráðherra um að leggja veg um Teigsskó koma sér á óvart. Hann ætli sér að berjast áfram fyrir verndun svæðisins. Hanna Birna Kristjánsdóttir innanríkisráðherra sagði í samtali við Fréttablaðið í dag að hún væri hlynnt vegi um Teigsskóg á sunnanverðum Vestfjörðum. Áður hefur verið deilt hart um framkvæmdina sem var kærð árið 2006 og lyktaði með sigri landeiganda og hagsmunaaðila í Hæstarétti árið 2009. Svæðið er meðal annars talið einastakt að því leytinu til að þarna er fjögur hundruð hektarar af birkiskógi auk þess sem varpland arna er nærri. Meðal þeirra sem sóttu málið hvað harðast var Pétur Gunnlaugsson, landeigandi á svæðinu. Hann hefur óskað eftir fundi með innanríkisráðherra. „Við munum bara berjast áfram, það er bara þannig," segir Pétur um ummæli ráðherrans. Aðspurður hvort það sé viðbúið að hann kæri málið fari svo að ákvörðun verði tekin um framkvæmdir, svara Pétur: „Við erum búin að fara í gegnum tvö dómsstig áður, og hjá, ég geri ráð fyrir því að við munum að minnsta kosti skoða það,“ segir Pétur. En hvað með Vestfirðinga sem vilja leggja veg um svæðið? „Það þarf auðvitað að leggja veg þarna en það eru aðrar veglínur sem eru betri og ódýrari,“ segir Pétur. Spurður hvort málið komi honum á óvart svarar Pétur: „Ég veit það ekki. Já miðað við að þetta er búið að fara í gegnum tvö dómsstig, þá kemur mér á óvart að það eigi að setja sömu framkvæmdina aftur og aftur í umhverfismat bara til að fá hana í gegn,“ segir Pétur að lokum. Fyrir áhugasama má nálgast niðurstöðu Hæstaréttar í málinu frá árinu 2009 hér.
Mest lesið Kjaravaktin: Ögurstund rennur upp Innlent Ráðherra lét henda þeim út þegar rætt var um Heiðarfjall Innlent Fjármálaráðherra flautaður niður af sviði Innlent Konan sem var borin út er látin Erlent Tugmilljóna gjaldþrot félags fíkniefnasmyglara Innlent Samþykktu að slíta kjarasamningum Innlent Niðurrif hafið á Laugasól Innlent Kristrún reyni að hafa milligöngu í deilunni Innlent Draumur reiðhjólaviðgerðarmannsins rættist Innlent Margaret Hamilton er látin Erlent Fleiri fréttir Ekki rétt sem Halla segir Hefja formlegar viðræður um myndun nýs meirihluta Íslensk nóbelsverðlaun og erfið staða framhaldsskólanna Vill fækka borgarfulltrúum um átta Lögreglan leitar upplýsinga um rispaða bíla Fjármálaráðherra flautaður niður af sviði Kristrún reyni að hafa milligöngu í deilunni Ekki eigi að refsa fólki fyrir að hafa stutt á milli barna Nemendur í Reykjavík koma best út úr PISA Kristrún og Þorgerður sækja ekki Hringborð norðurslóða Kjaravaktin: Ögurstund rennur upp Draumur reiðhjólaviðgerðarmannsins rættist Áreitti tíu ára stúlku ítrekað í fjóra daga Kveikja og slökkva á ljósastaurum vegna bilunar Bein útsending: Fjármálaráðstefna sveitarfélaga 2026 Hafi ekki „fært sig eina litla tommu“ Ráðherra lét henda þeim út þegar rætt var um Heiðarfjall Kjaftshögg, blys og hrákur á VÍ - MR Samþykktu að slíta kjarasamningum Niðurrif hafið á Laugasól „Vonbrigði að Icelandair fljúgi ekki lengur til Kulusuk“ Ljósastaurar bilaðir víða í Reykjavík Ræst út vegna logandi rafhlaupahjóls Serbar á Íslandi mótmæla: „Það er ósanngjarnt að taka af fólki réttinn til að kjósa“ Hringdi inn þegar konan reyndist gift öðrum manni Tugmilljóna gjaldþrot félags fíkniefnasmyglara „Við erum að gefa boltann upp“ Þétta samstarfið í útnorðri „Við erum tilbúin að skoða lengingu skólaársins“ Bein útsending: Blaðamannafundur Kristrúnar, Beinis og Jens Frederik Sjá meira