Innlent

Eggjaþjófar tóku til fótanna

Þjófunum hafa þótt eggin girnileg.
Þjófunum hafa þótt eggin girnileg.
Lögreglunni á Suðurnesjum barst í fyrrinótt tilkynning um að óboðnir gestir væru að tína egg í varplandi íbúa í umdæminu.

Eggjabóndinn sagði við lögregluna að hann hafi ætlað að ræða við fólkið en þá hafi það tekið til fótanna og flúið yfir landamörkin yfir á næstu landareign. Því óskaði hann eftir því að lögreglan myndi skipta sér af málinu.

Þegar lögreglumenn mættu á vettvang kom í ljós að eggjaþjófarnir voru af erlendum uppruna. Þeim var gerð grein fyrir því að ekki væri leyfilegt að afla sér eggja hvar sem er án þess að fá leyfi frá landeigendum. Eggjaþjófarnir lofuðu þá að hætta eggjatínslu í leyfisleysi.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×