Sendur út í opinn dauðann verði hann framseldur Hödd Vilhjálmsdóttir skrifar 22. júní 2013 11:56
Yfirvöld í Bandaríkjunum hafa ákært uppljóstrarann Edward Snowden fyrir njósnir og hafa farið þess á leit við yfirvöld í Hong Kong að hann verði handtekinn. Birgitta Jónsdóttir, þingmaður Pírata, segir að verði hann framseldur til Bandaríkjanna sé verið að senda hann út í opinn dauðann. Stjórnvöld í Bandaríkjunum lögðu fram ákæruna á hendur Snowden í gær og í kjölfarið var gefin út handtökuskipun á hendur honum. Snowden sem átti þrítugsafmæli í gær er staddur í Hong Kong, en ekki er vitað hvar hann er niðurkominn í borginni. Bandarísk stjórnvöld hafa farið þess á leit við stjórnvöld í Hong Kong að hann verði handtekinn og framseldur til Bandaríkjanna, en framsalssamningur er í gangi á milli landanna. Það var dómstóll í Virginíu sem gaf út handtökuskipunina á hendur Snowden, en hann er ákærður fyrir að hafa upplýst um stórfellt eftirlit Þjóðaröryggisstofnunnar Bandaríkjanna með síma- og netnotkun fjölda Bandaríkjamanna. Snowden hefur óskað eftir pólitísku hæli á Íslandi og vonast Birgitta Jónsdóttir, þingmaður Pírata, til þess að íslensk stjórnvöld geri sitt til þess að sú ósk verði uppfyllt, meðal annars vegna þess að dauðadómar eru enn við lýði í Virginíufylki.
Mest lesið Trump fer mikinn á Truth Social og virðist ætla sér Kanada Erlent Fyrsta árinu af fjórum lokið Erlent Rauð norðurljós vegna kórónugoss Innlent „Ekki gott að fólk sé endalaust að sulla svona í víni“ Innlent Hrókering hjá Helga og Miðflokknum vex Áss megin Innlent Hafi nauðgað sex ára stúlku og eiginkonu sinni og birt af því myndir Innlent Lamdi konu stuttu eftir að hann var stunginn Innlent Skutu flugskeytum fyrir tólf milljarða á einni nóttu Erlent Ingibjörg býður sig fram í formanninn Innlent Fjórar hákarlaárásir á aðeins 48 klukkustundum Erlent Fleiri fréttir „Fyrsta ár ríkisstjórnarinnar hefur mistekist“ Magnús Eiríksson borinn til grafar Heitt í hamsi vegna Grænlands Hafi nauðgað sex ára stúlku og eiginkonu sinni og birt af því myndir Dýr framtíðarlausn að færa þjóðveginn vegna grjóthruns Borgarstjórn biður vöggustofubörnin afsökunar Eldgos á næstu vikum enn líklegasta niðurstaðan Sjö tilkynningar um heimilisofbeldi að jafnaði á dag „Ekki gott að fólk sé endalaust að sulla svona í víni“ Styrkleiki að formaður Framsóknar eigi sæti á þingi Þrjátíu á slysadeild vegna hálku og sjúkrabílar á leiðinni með fleiri Mannréttindaráðið ræðir Íran að frumkvæði Íslands Fimm starfslokasamningar kostað Hafró 35 milljónir Ögranir Trumps halda áfram og tugir leituðu á bráðamóttöku í hálkunni Á þriðja tug á bráðamóttöku vegna hálkuslysa Ingibjörg býður sig fram í formanninn Þrír fullir Íslendingar lausir úr haldi Hrókering hjá Helga og Miðflokknum vex Áss megin Sandra tekin við af Guðbrandi Flughált í höfuðborginni og víðar um land Lamdi konu stuttu eftir að hann var stunginn Sænski herinn með viðbúnað á Íslandi Loðnuvertíð hafin og floti farinn til loðnumælinga Deilt um verðhækkanir Veitna Veita hjúkrunarheimilum ráðgjöf vikulega vegna drykkju eldri borgara Ráðherra hafi gefið veiðileyfi á sig Rauð norðurljós vegna kórónugoss Hljóp á sig Vegagerðin ræðst í úrbætur á slysstað banaslyss Össur um öryggismálin, vandi vinstrisins og falin fíkn eldri borgara Sjá meira