Innlent

Gassprenging í Holtunum

Haukur Viðar Alfreðsson skrifar
Gassprenging varð í húsi í Holtunum í austurborginni í nótt samkvæmt upplýsingum frá lögreglu.

Slökkvilið var sent á vettvang og var karlmaður sem hafði átt við gaskút fluttur á slysadeild. Mikið tjón varð vegna sprengingarinnar en ekki urðu fleiri slys á fólki. Málið er til rannsóknar hjá tæknideild LRH.

Uppfært: Samkvæmt vakthafandi lækni er líðan mannsins ágæt og hann er ekki talinn í lífshættu.

Slökkvilið slökkti eld sem hafði kviknað við sprenginguna en ekki eru upplýsingar um ástand mannsins í bókum lögreglu.

Þá voru tveir ökumenn stöðvaðir vegna ölvunaraksturs. Annar ökumaðurinn var einnig undir áhrifum fíkniefna og ók bifreið sinni á 93 km/klst. á Miklubraut.

Nokkuð var um tilkynningar vegna ölvunar og hávaða og á sjötta tímanum var tilkynnt um líkamsárás í miðborginni. Kvaðst 25 ára karlmaður hafa verið laminn.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×