Jóhannes Gijsen látinn - var sakaður um hylmingu og kynferðisbrot Valur Grettisson skrifar 24. júní 2013 13:51 Jóhannes Gijsen í fullum skrúða. Mynd Vilhelm
Jóhannes Gijsen, fyrrverandi biskup kaþólsku kirkjunnar hér á landi lést í dag, 80 ára að aldri, að því er fram kemur í hollenskum fjölmiðlum. Gijsen var skipaður stjórnandi biskupsdæmisins í Reykjavík í maí 1996. Hann gegndi því embætti allt þar til Pétur Bürcher tók við í október 2007. Gijsen var borinn þungum sökum um kynferðislega misnotkun í hollenskum miðlum í september árið 2010. Þá átti hann að hafa beitt börn í hollenskum skóla á sjötta og sjöunda áratug síðustu aldar kynferðislegu ofbeldi. Hann neitaði þessum ásökunum staðfastlega. Rannsóknarnefnd, skipuð af kaþólsku kirkjunni, vék sérstaklega að hlut Jóhannesar í skýrslu sinni um ofbeldi sem Margét Muller, kennslukona í Landakotsskóla, og séra Ágúst Georg skólastjóri beittu nemendur sína. Var þá sérstaklega vísað til þess að Jóhannes hafi eyðilagt bréf manns sem lýsti hryllilegri reynslu sinni í skólanum og þannig hylmt yfir með Ágústi og Margréti. Þá kom einnig fram í skýrslunni að Jóhannes lagði sérstaklega til við páfagarð árið 1998 að séra Georgi væri veitt sérstök viðurkenning fyrir störf sín hjá skólanum. Ári eftir að Jóhannes lét af störfum hér á landi framdi Margrét Muller sjálfsmorð.
Mest lesið Kjaravaktin: Ögurstund rennur upp Innlent Ráðherra lét henda þeim út þegar rætt var um Heiðarfjall Innlent Fjármálaráðherra flautaður niður af sviði Innlent Konan sem var borin út er látin Erlent Tugmilljóna gjaldþrot félags fíkniefnasmyglara Innlent Samþykktu að slíta kjarasamningum Innlent Niðurrif hafið á Laugasól Innlent Kristrún reyni að hafa milligöngu í deilunni Innlent Draumur reiðhjólaviðgerðarmannsins rættist Innlent Margaret Hamilton er látin Erlent Fleiri fréttir Ekki rétt sem Halla segir Hefja formlegar viðræður um myndun nýs meirihluta Íslensk nóbelsverðlaun og erfið staða framhaldsskólanna Vill fækka borgarfulltrúum um átta Lögreglan leitar upplýsinga um rispaða bíla Fjármálaráðherra flautaður niður af sviði Kristrún reyni að hafa milligöngu í deilunni Ekki eigi að refsa fólki fyrir að hafa stutt á milli barna Nemendur í Reykjavík koma best út úr PISA Kristrún og Þorgerður sækja ekki Hringborð norðurslóða Kjaravaktin: Ögurstund rennur upp Draumur reiðhjólaviðgerðarmannsins rættist Áreitti tíu ára stúlku ítrekað í fjóra daga Kveikja og slökkva á ljósastaurum vegna bilunar Bein útsending: Fjármálaráðstefna sveitarfélaga 2026 Hafi ekki „fært sig eina litla tommu“ Ráðherra lét henda þeim út þegar rætt var um Heiðarfjall Kjaftshögg, blys og hrákur á VÍ - MR Samþykktu að slíta kjarasamningum Niðurrif hafið á Laugasól „Vonbrigði að Icelandair fljúgi ekki lengur til Kulusuk“ Ljósastaurar bilaðir víða í Reykjavík Ræst út vegna logandi rafhlaupahjóls Serbar á Íslandi mótmæla: „Það er ósanngjarnt að taka af fólki réttinn til að kjósa“ Hringdi inn þegar konan reyndist gift öðrum manni Tugmilljóna gjaldþrot félags fíkniefnasmyglara „Við erum að gefa boltann upp“ Þétta samstarfið í útnorðri „Við erum tilbúin að skoða lengingu skólaársins“ Bein útsending: Blaðamannafundur Kristrúnar, Beinis og Jens Frederik Sjá meira