Dóttir kynferðisafbrotamanns: "Það er ekkert hægt að hjálpa svona mönnum“ Valur Grettisson skrifar 27. júní 2013 14:11 Brotin áttu sér meðal annars stað í Kópavogi. Athugið að myndin tengist ekki fréttinni beint. „
Ég beið bara eftir því að þetta endurtæki sig,“ segir dóttir Jóhanns Sigurðarsonar, sem hefur verið úrskurðaður í gæsluvarðhald fyrir að brjótast inn á tvö heimili og brotið kynferðislega gegn unglingsstúlku öðru heimilinu og svo konu á öðru heimili. Sakarferill Jóhanns er orðinn nokkuð langur, en brotin eiga það nær öll sameiginlegt að hann brýst inn á heimilin og brýtur þar kynferðislega á börnum eða íbúum. Dóttir Jóhanns hefur skipt um eftirnafn og lokað á öll samskipti við föður sinn. Hún kom fram í viðtali við DV árið 2008 en þá sagði hún föður sinn mann sem breyttist í ófreskju þegar hann drykki áfengi. Dóttirin segir föður sinn hafa reynt að hafa samband við sig eftir að hann losnaði úr fangelsi árið 2011. Þá var hann á skilorði og mátti ekki drekka. „Það rann svo út í apríl síðastliðnum,“ segir hún um skilorðið í samtali við Vísir. Það virðist því hafa tekið Jóhann um tvo mánuði að brjóta af sér á ný. Jóhann var dæmdur í desember árið 2008 í fjögurra ára fangelsi yfir að brjótast inn á heimili og misnota stúlkubarn sem lá sofandi við hlið ömmu sinnar. Amman vaknaði skyndilega við manninn og stökk honum á flótta. Hann var handtekin skömmu síðar. Fjórum árum áður var hann dæmdur fyrir að nema barn á brott á Seyðisfirði um miðja nótt. Faðir barnsins fann Jóhann úti á stétt fyrir utan heimilið - með barnið í fanginu. Jóhann var dæmdur í tveggja ára fangelsi fyrir það brot. Nú, rúmlega fjórum árum eftir að hann var dæmdur síðast, er Jóhann kærður fyrir kynferðisbrot gegn að minnsta kosti einni konu og unglingsstúlku í Þingholtunum og Kópavogi. Aftur er hann kærður fyrir að brjótast inn á heimilin og brjóta þar á konunum. Jóhann er fæddur árið 1968 og er járnsmiður að mennt. Dóttir Jóhanns segist ekki hafa vitað af meintum brotum föður síns fyrr en hún las um þau í Fréttablaðinu í morgun, en þar var hann nafngreindur. „Það er ekkert hægt að hjálpa svona mönnum,“ segir dóttir hans, sem sjálf neitar alfarið að eiga í samskiptum við föður sinn í ljósi þess að hún á sjálf barn. Jóhann breytti um nafn eftir að hann var látinn laus árið 2011. Núna heitir hann Jóhannes Páll Sigurðsson í þjóðskrá.
Mest lesið Ráðherra lét henda þeim út þegar rætt var um Heiðarfjall Innlent Kjaravaktin: Ögurstund rennur upp Innlent Fjármálaráðherra flautaður niður af sviði Innlent Konan sem var borin út er látin Erlent Tugmilljóna gjaldþrot félags fíkniefnasmyglara Innlent Samþykktu að slíta kjarasamningum Innlent Niðurrif hafið á Laugasól Innlent Kristrún reyni að hafa milligöngu í deilunni Innlent Draumur reiðhjólaviðgerðarmannsins rættist Innlent Margaret Hamilton er látin Erlent Fleiri fréttir Ekki rétt sem Halla segir Hefja formlegar viðræður um myndun nýs meirihluta Íslensk nóbelsverðlaun og erfið staða framhaldsskólanna Vill fækka borgarfulltrúum um átta Lögreglan leitar upplýsinga um rispaða bíla Fjármálaráðherra flautaður niður af sviði Kristrún reyni að hafa milligöngu í deilunni Ekki eigi að refsa fólki fyrir að hafa stutt á milli barna Nemendur í Reykjavík koma best út úr PISA Kristrún og Þorgerður sækja ekki Hringborð norðurslóða Kjaravaktin: Ögurstund rennur upp Draumur reiðhjólaviðgerðarmannsins rættist Áreitti tíu ára stúlku ítrekað í fjóra daga Kveikja og slökkva á ljósastaurum vegna bilunar Bein útsending: Fjármálaráðstefna sveitarfélaga 2026 Hafi ekki „fært sig eina litla tommu“ Ráðherra lét henda þeim út þegar rætt var um Heiðarfjall Kjaftshögg, blys og hrákur á VÍ - MR Samþykktu að slíta kjarasamningum Niðurrif hafið á Laugasól „Vonbrigði að Icelandair fljúgi ekki lengur til Kulusuk“ Ljósastaurar bilaðir víða í Reykjavík Ræst út vegna logandi rafhlaupahjóls Serbar á Íslandi mótmæla: „Það er ósanngjarnt að taka af fólki réttinn til að kjósa“ Hringdi inn þegar konan reyndist gift öðrum manni Tugmilljóna gjaldþrot félags fíkniefnasmyglara „Við erum að gefa boltann upp“ Þétta samstarfið í útnorðri „Við erum tilbúin að skoða lengingu skólaársins“ Bein útsending: Blaðamannafundur Kristrúnar, Beinis og Jens Frederik Sjá meira