Íslenska smjörið best í heimi Jakob Bjarnar skrifar 11. júní 2013 11:27 Guðni setur alla fyrirvara á niðurstöður rannsóknarinnar en fái þær staðist eiga þær alls ekki við um íslenska smjörið.
Ný rannsókn leiðir í ljós að smjör hafi ekki góð áhrif á skapferli manna, geri þá afundna. Guðni Ágústsson, fyrrverandi landbúnaðarráðherra og nú framkvæmdastjóri samtaka afurðastöðva, gefur lítið fyrir þær rannsóknir. Danskir fjölmiðlar kynntu í vikunni nýjar bandarískar rannsóknir sem leiða í ljós að smjörát, mettaðar fitusýrur, geri menn afundna, skapstygga og jafnvel árásargjarna. Næringarfræðingurinn Per Brændgaard tekur undir þetta og segir að vilji menn vera í betra skapi sé heillavænlegra að neyta olífuolíu. Guðni Ágústsson, fyrrverandi landbúnaðarráðherra, og nú framkvæmdastjóri samtaka afurðastöðva, telur þessar rannsóknir vafasamar. "Þetta er náttúrlega eins og hver önnur vitleysa. Held ég. Vísindin eru nú ekki alltaf sannleikanum samkvæm. Margt sem er rannsakað og hefur þá komið á daginn að það eru hagsmunir á bak við. En, við skulum bara sleppa því öllu: Ég trúi því þá að íslenska smjörið sé þá andstæða þess smjörs sem hefur verið rannsakað. Við eigum, samkvæmt því sem meistarakokkarnir segja, besta smjör heimsins. Það er gult, það er mjúkt og ekkert er betra til að baka uppúr." Guðni hefur löngum verið aðdáandi þess sem íslenskt er og þá ekki síst afurða íslensks landbúnaðar. Guðni leggur lítinn trúnað við rannsóknina, en fái hún staðist þá eigi hún ekki við um íslenska smjörið. Hann bendir á, varðandi alla matvælaframleiðslu, að hóf sé á öllu best. Hófið sem skapar hamingjuna á öllum sviðum. "Ég hef tekið eftir því, þegar barnabörnin koma í heimsókn - þau verða aldrei vitlaus af smjöri! En, þau verða stjörnuvitlaus þegar amman er búin að gefa þeim sælgæti og gos." Tilfinning Guðna fyrir rannsókninni er sú að hún fái staðist. "Og alls ekki varðandi íslenska smjörið. Því það er afburðasmjör." Og, Guðni vitnar til vina sinna sérfræðinga á sviði mjólkurgerðar: "Við búum til okkar smjör úr ferskum rjóma. En víðast hvar annars staðar, í Evrópu og Ameríku, er rjóminn sýrður áður en smjörið er framleitt. Þetta er tvennt ólíkt í bragði; ég hef lúmskan grun um að það sé sýrði rjóminn sem geti hugsanlega framkallað þessa meintu geðvonsku.
Mest lesið Kjaravaktin: Ögurstund rennur upp Innlent Ráðherra lét henda þeim út þegar rætt var um Heiðarfjall Innlent Fjármálaráðherra flautaður niður af sviði Innlent Konan sem var borin út er látin Erlent Tugmilljóna gjaldþrot félags fíkniefnasmyglara Innlent Samþykktu að slíta kjarasamningum Innlent Niðurrif hafið á Laugasól Innlent Ekki rétt sem Halla segir Innlent Draumur reiðhjólaviðgerðarmannsins rættist Innlent Kristrún reyni að hafa milligöngu í deilunni Innlent Fleiri fréttir Loftslagstilraun hefst í Hvalfirði á næstu dögum Margrét Löf í sextán ára fangelsi en heldur föðurarfinum Veitingamaður sektaður um tvö hundruð milljónir Ekki rétt sem Halla segir Hefja formlegar viðræður um myndun nýs meirihluta Íslensk nóbelsverðlaun og erfið staða framhaldsskólanna Vill fækka borgarfulltrúum um átta Lögreglan leitar upplýsinga um rispaða bíla Fjármálaráðherra flautaður niður af sviði Kristrún reyni að hafa milligöngu í deilunni Ekki eigi að refsa fólki fyrir að hafa stutt á milli barna Nemendur í Reykjavík koma best út úr PISA Kristrún og Þorgerður sækja ekki Hringborð norðurslóða Kjaravaktin: Ögurstund rennur upp Draumur reiðhjólaviðgerðarmannsins rættist Áreitti tíu ára stúlku ítrekað í fjóra daga Kveikja og slökkva á ljósastaurum vegna bilunar Bein útsending: Fjármálaráðstefna sveitarfélaga 2026 Hafi ekki „fært sig eina litla tommu“ Ráðherra lét henda þeim út þegar rætt var um Heiðarfjall Kjaftshögg, blys og hrákur á VÍ - MR Samþykktu að slíta kjarasamningum Niðurrif hafið á Laugasól „Vonbrigði að Icelandair fljúgi ekki lengur til Kulusuk“ Ljósastaurar bilaðir víða í Reykjavík Ræst út vegna logandi rafhlaupahjóls Serbar á Íslandi mótmæla: „Það er ósanngjarnt að taka af fólki réttinn til að kjósa“ Hringdi inn þegar konan reyndist gift öðrum manni Tugmilljóna gjaldþrot félags fíkniefnasmyglara „Við erum að gefa boltann upp“ Sjá meira