"Ágætis sumar þannig séð, en við erum bara orðin svo góðu vön" Jóhannes Stefánsson skrifar 14. júní 2013 10:17 Óli Þór segir sumarið komið, en Íslendingar séu orðnir góðu vanir Mynd/ Ernir Eyjólfsson
Skýjað verður á höfuðborgarsvæðinu næstu daga og Óli Þór Árnason, veðurfræðingur á Veðurstofunni, segir veðrið munu ráðast af því hvort sólinni takist að bræða þokuna sem kemur af hafinu. „Það er ágætis hitastig en ekkert sérstaklega mikil sól," segir Óli um veðurútlit næstu dagana. „Núna er þetta svona barningur, við erum með hæga norðvestanátt þannig að það kemur þokuloft inn Faxaflóann. Sólin er að berjast á móti þannig að það getur gert sólarglennur í dag en ég er nú hræddur um að þokan verði með yfirhöndina megnið af deginum." Um laugardaginn segir Óli: „Það er í sjálfu sér býsna svipað veðurútlit fyrir morgundaginn. Það er hætta á að það leki þoka hérna inn af hafinu. Það verður frekar lágskýjað og eins og það sé nálægt því að vera þoka. Það er voðalega lítill vindur í kortunum og ef það léttir til inn til landsins þá kemur hafgolan inn með þokuna með sér." Svipað verður á sunnudaginn nema þá verður mögulega einhver úrkoma. „Sunnudagurinn er í sjálfu sér ekkert ólíkur heldur nema þá eru líkur á síðdegisskúrum," segir Óli." Núna næstu þrjá dagana þá verður mjög víða svona 10 - 16 stiga hiti yfir daginn nema þar sem þokan nær sér á strik, þar verður kannski ekki nema svona 6-9 gráður. Það er mikið svalara í golunni því þar kemur svalt sjávarloftið inn.Milt veður 17. júní „17. júní verður hæg suglæg átt eða hafgola þannig að það verður mjög líklega skýjað á höfuðborgarsvæðinu og nánast þurrt ef ekki alveg þurrt. Það verður bjartara fyrir norðan og austan og þar verðu líklega einna hlýjast." Óli segir geta orðið nokkuð drjúg úrkoma á þriðjudeginum. „Á þriðjudaginn verður líklega komin austanátt og þá er búist við að geti rignt drjúgt á suðausturlandi en það verður líklegast einhver úrkoma á öllu sunnan- og austanverðu landinu. Þá eru það norður og norðvesturland sem sleppa best. Þá verður hitinn líklegast 10 - 15 gráður."Sumarið komið en íslendingar orðnir góðu vanirAðspurður að því hvenær komi „alvöru" sumar segir Óli. „Já þú segir nokkuð, hitinn sem slíkur er ágætlega yfir meðallagi miðað við fyrri hluta júní. Það eina sem vantar upp á er meiri sól. Að því leitinu til er varla hægt að segja að það vanti sumar því hitastigið er fínt. Það er hinsvegar meira skýjað en við erum orðin vön síðust ár. Við erum búin að fá svo góð ár þannig að við erum að bera saman nokkur mjög góð ár miðað við frekar slaka byrjun á sumri. Sumarið er samt bara rétt byrjað, þannig að við skulum bíða og sjá."
Mest lesið Kjaravaktin: Ögurstund rennur upp Innlent Ráðherra lét henda þeim út þegar rætt var um Heiðarfjall Innlent Fjármálaráðherra flautaður niður af sviði Innlent Konan sem var borin út er látin Erlent Tugmilljóna gjaldþrot félags fíkniefnasmyglara Innlent Samþykktu að slíta kjarasamningum Innlent Niðurrif hafið á Laugasól Innlent Draumur reiðhjólaviðgerðarmannsins rættist Innlent Kristrún reyni að hafa milligöngu í deilunni Innlent Ekki rétt sem Halla segir Innlent Fleiri fréttir Loftslagstilraun hefst í Hvalfirði á næstu dögum Margrét Löf í sextán ára fangelsi en heldur föðurarfinum Veitingamaður sektaður um tvö hundruð milljónir Ekki rétt sem Halla segir Hefja formlegar viðræður um myndun nýs meirihluta Íslensk nóbelsverðlaun og erfið staða framhaldsskólanna Vill fækka borgarfulltrúum um átta Lögreglan leitar upplýsinga um rispaða bíla Fjármálaráðherra flautaður niður af sviði Kristrún reyni að hafa milligöngu í deilunni Ekki eigi að refsa fólki fyrir að hafa stutt á milli barna Nemendur í Reykjavík koma best út úr PISA Kristrún og Þorgerður sækja ekki Hringborð norðurslóða Kjaravaktin: Ögurstund rennur upp Draumur reiðhjólaviðgerðarmannsins rættist Áreitti tíu ára stúlku ítrekað í fjóra daga Kveikja og slökkva á ljósastaurum vegna bilunar Bein útsending: Fjármálaráðstefna sveitarfélaga 2026 Hafi ekki „fært sig eina litla tommu“ Ráðherra lét henda þeim út þegar rætt var um Heiðarfjall Kjaftshögg, blys og hrákur á VÍ - MR Samþykktu að slíta kjarasamningum Niðurrif hafið á Laugasól „Vonbrigði að Icelandair fljúgi ekki lengur til Kulusuk“ Ljósastaurar bilaðir víða í Reykjavík Ræst út vegna logandi rafhlaupahjóls Serbar á Íslandi mótmæla: „Það er ósanngjarnt að taka af fólki réttinn til að kjósa“ Hringdi inn þegar konan reyndist gift öðrum manni Tugmilljóna gjaldþrot félags fíkniefnasmyglara „Við erum að gefa boltann upp“ Sjá meira