Hestur sagði upp áskrift að RÚV 14. júní 2013 13:49 „
Hann var bara ánægður með þetta og sagði meðal annars að hesturinn væri fallegur," segir Áslaug Arna Sigurbjörnsdóttir, formaður Heimdallar, sem kom ríðandi í höfuðstöðvar Ríkisútvarpsins í dag og afhenti Páli Magnússyni útvarpsstjóra uppsagnarbréf fyrir hönd stóðhestsins Tóns frá Austurkoti. „Þetta var sem sagt uppsagnarbréf af útvarpi og sjónvarpi ríkisins. Stóðhesturinn er skilgreindur sem eignarhlutafélag og greiðir nefskatt, en hann getur eðli málsins samkvæmt ekki nýtt sér áskriftina," segir Áslaug Arna. Þá sendi félagið einnig bréf á Illuga Gunnarsson menntamálaráðherra þar sem skorað er á hann að afnema nefskattinn.Bréfið sem Páli var afhentÍ tilkynningu frá Heimdalli segir að félagið telji að íslenska ríkið eigi ekki að standa fyrir rekstri fjölmiðils, hvort sem um er að ræða ljósvakamiðil eða prentmiðil. „Ætli ríkið sér á annað borð þó að reka fjölmiðil væri nær að slík stofnun verði sett á fjárlög. Þannig væri stofnunin í samkeppni við aðrar ríkisstofnanir og hægt að huga að auknu aðhaldi hjá Ríkisútvarpinu. Það er fráleitt að skattgreiðendur og fyrirtæki séu þvinguð til að halda uppi Ríkisútvarpinu með sérstökum skatti og njóti þannig sérstöðu í tekjuöflun umfram aðrar ríkisstofnanir eins og t.d. Landspítalann,“ segir í tilkynningunni.Páll Magnússon les uppsagnarbréfið í Ofanleitinu í dag.Mynd/Anton Brink
Mest lesið Kjaravaktin: Ögurstund rennur upp Innlent Ráðherra lét henda þeim út þegar rætt var um Heiðarfjall Innlent Fjármálaráðherra flautaður niður af sviði Innlent Konan sem var borin út er látin Erlent Margrét Löf í sextán ára fangelsi en heldur föðurarfinum Innlent Tugmilljóna gjaldþrot félags fíkniefnasmyglara Innlent Ekki rétt sem Halla segir Innlent Samþykktu að slíta kjarasamningum Innlent Niðurrif hafið á Laugasól Innlent Veitingamaður sektaður um tvö hundruð milljónir Innlent Fleiri fréttir Loftslagstilraun hefst í Hvalfirði á næstu dögum Margrét Löf í sextán ára fangelsi en heldur föðurarfinum Veitingamaður sektaður um tvö hundruð milljónir Ekki rétt sem Halla segir Hefja formlegar viðræður um myndun nýs meirihluta Íslensk nóbelsverðlaun og erfið staða framhaldsskólanna Vill fækka borgarfulltrúum um átta Lögreglan leitar upplýsinga um rispaða bíla Fjármálaráðherra flautaður niður af sviði Kristrún reyni að hafa milligöngu í deilunni Ekki eigi að refsa fólki fyrir að hafa stutt á milli barna Nemendur í Reykjavík koma best út úr PISA Kristrún og Þorgerður sækja ekki Hringborð norðurslóða Kjaravaktin: Ögurstund rennur upp Draumur reiðhjólaviðgerðarmannsins rættist Áreitti tíu ára stúlku ítrekað í fjóra daga Kveikja og slökkva á ljósastaurum vegna bilunar Bein útsending: Fjármálaráðstefna sveitarfélaga 2026 Hafi ekki „fært sig eina litla tommu“ Ráðherra lét henda þeim út þegar rætt var um Heiðarfjall Kjaftshögg, blys og hrákur á VÍ - MR Samþykktu að slíta kjarasamningum Niðurrif hafið á Laugasól „Vonbrigði að Icelandair fljúgi ekki lengur til Kulusuk“ Ljósastaurar bilaðir víða í Reykjavík Ræst út vegna logandi rafhlaupahjóls Serbar á Íslandi mótmæla: „Það er ósanngjarnt að taka af fólki réttinn til að kjósa“ Hringdi inn þegar konan reyndist gift öðrum manni Tugmilljóna gjaldþrot félags fíkniefnasmyglara „Við erum að gefa boltann upp“ Sjá meira