Innlent

Fordómar í samfélaginu í garð kvenna með áfengisvanda

Hjörtur Hjartarson skrifar
Fjöldi kvenna sem fara í áfengismeðferð eykst ár frá ári og telja þær nú um þrjátíu prósent allra þeirra sem leita sér hjálpar hjá SÁÁ. Eyða þarf fordómum samfélagsins í garð þeirra kvenna sem fara í áfengismeðferð, segir yfirlæknir á Vogi.

Nákvæmar skrár eru til á Sjúkrahúsinu Vogi um allar innlagnir áratugi aftur í tímann. Þær sýna, meðal annars að hlutfall kvenna af þeim sem innritaðir eru á Vogi, eykst nokkuð stöðugt. Í hópi nýkomufólks í fyrra á Vogi var hlutfall kvenna um 35 prósent en var um 19 prósent fyrir 30 árum.

"Félagsleg staða kvenna hefur breyst", segir Þórarinn Tyrfingsson, yfirlæknir á Vogi. "Þær taka miklu meiri þátt í atvinnulífinu og bara lífinu almennt og eru þá útsettari líka fyrir ósómanum sem þjóðfélagið býður upp á eins og áfengisneyslu. Þær nota áfengi miklu meira en áður var."





Þórarinn Tyrfingsson, yfirlæknir á Vogi
Þórarinn segir að fjölgunina megi skýra með tvennum hætti.

"Bæði er auðveldara á Íslandi að fara til meðferðar heldur en áður var, það er góð þjónusta almennt séð. Svo er líka greinilegt að vandamálið hefur aukist með vaxandi neyslu og notkun áfengis."

En þó aðstaðan og aðgengi fyrir konur hafi farið batnandi hjá SÁÁ ríkja enn ákveðnir fordómar í samfélaginu gegn þeim konum sem eiga við áfengisvandamál að stríða.

"Það er líka tvíeggjað sverð. Það minnkar aðeins drykkjuna, væntanlega. En það er gerir þeim líka erfiðara að fara í meðferð og kannski erfiðara að ná bata aftur á vissan hátt. Þess vegna eru fordómar af hinu slæma", segir Þórarinn.



Kristbjörg Halla Magnúsdóttir, áfengisráðgjafi hjá SÁÁ
Kristbjörg Halla Magnúsdóttir er áfengisráðgjafi hjá SÁÁ. Hún tekur undir orð Þórarins og bætir við að enn virðist ríkja ákveðin skömm hjá konunum sjálfum að viðurkenna að þær séu á leið í áfengismeðferð.

"Maður þarf auðvitað að svara fyrir það, hingað og þangað að vera að fara burt í áfengismeðferð. Það setur stopp í suma", segir Kristbjörg.

Þórarinn vonast til að aukning innritunar hjá konum aukist ekki.

"Ég held að þær ættu ekki að feta í fótspor karlana með ósómann. Það er ekki markmiðið að ná helmingaskiptum í þessum málaflokki", sagði Þórarinn Tyrfingsson.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×